Árbók VFÍ - 01.01.1995, Page 101
Lög og reglur 99
Aðalfundur
26. gr.
Aðalfundur skal haldinn í marsmánuði ár hvert.
Dagskrá fundarins skal tilkynnt í fundarboði, svo og allar tillögur, sem þurfa samþykki
aðalfundar samkvæmt félagslögum.
í fundarboði skal einnig tilkynna um allar tillögur um nýjar framkvæmdir eða fjárskuld-
bindingar, sem nema 30% eða meira af árlegum félagsgjöldum. Slíkar tillögur frá félags-
mönnum skulu hafa borist stjórninni fyrir 15. febrúar.
Skýrslur framkvæmdastjórnar og fastanefnda skulu liggja frammi á aðalfundi.
Á dagskrá fundarins skal vera:
l.Skýrslur um störf félagsins á liðnu starfsári.
2. Reikningsskil.
3. Tillögur og lagabreytingar.
4. Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda.
5. Kjör skv. félagslögum og kjör endurskoðenda.
ó.Önnur mál.
27. gr.
Aukaaðalfund skal kalla saman, þegar stjórninni þykir ástæða til eða þegar 50 félagar óska
þess skritlega.
28. gr.
Aðalfundir og aukaaðalfundir eru lögmætir, ef fundarboð er löglegt skv. 25. gr.
Alniennir félagsfundir
29. gr.
Félagsfundir skulu haldnir, þegar stjórn félagsins sér tilefni til. Framkvæmdastjórn
ákveður fundarefni og fundartíma. Stefnt skal að því, að félagsfundir séu 4-6 á ári hverju,
venjulega á tímabilinu 15. sept. til 15. maí. Fundarefni skulu valin í samræmi við markmið
félagsins og áhugamál félagsmanna.
Framkvæmdastjórn getur boðið gestum á félagsfundi.
Hver félagsmaður getur með leyfi formanns eða framkvæmdastjóra boðið gestum á félags-
fundi. Framkvæmdastjórn getur og ákveðið, að einstakir fundir séu opnir almenningi og
auglýst þá samkvæmt því.
Félagsmaður, sem flytur erindi eða skýrslu á fundi í VFÍ, skal láta í té ritaðan útdrátt af
því, sem hann flytur, ef þess er óskað.
Umræður á fundum skulu skráðar af fundarritara í fundargerðarbók. Framkvæmdastjórn
getur með samþykki höfunda eða frummælenda látið birta í Tímariti VFÍ eða á annan hátt
erindi og skýrslur, sem fluttar eru á fundum, eða útdrátt úr þeim og útdrátt úr umræðum.
Án samþykkis framkvæmdastjórnar má engar skýrslur birta um það, sem fram hefur farið
á fundi.
Allsherjaratkvæðagreiðsla
30. gr.
Aðalstjórn félagsins getur látið fara fram allsherjaratkvæðagreiðslu, þegar henni þykir
ástæða til eða 50 félagar óska þess skriflega.