Árbók VFÍ - 01.01.1995, Side 105
Lög og reglur 103
Sá, sem flest atkvæði fær við nefndarkosningu, fyrstur er tilnefndur, ef atkvæði eru jöfn
eða nefnd sjálfkjörin, og fyrstur talinn, þegar nefnd er skipuð, skal kalla nefndina saman á
fyrsta fund og stjórna starfsskiptingu í nefndinni.
Það skal vera regla að leiða ekki mikilsvarðandi mál til lykta á þeim fundi, sem þau eru
borin fram á, nema þeirra hafi verið getið í fundarboðinu og með svo löngum fyrirvara, að
félagsmenn hafi haft tíma til að kynna sér þau.
Þó má afgreiða slík má á einum fundi, ef 2/3 fundarmanna samþykkja það, enda standi svo
á, að afgreiðsla málsins þoli enga bið.
3 Siðareglur Verkfræðingafélags íslands
(Samþykktar 29. mars 1955 með breytingum á aðalfundi VFI24. mars 1993.)
Verkfræðingar skulu kosta kapps um að tæknilegar lausnir hæfi einstökum verkefnum og séu
einstaklingum og almenningi til heilla. Verkfræðingar skulu í starfi fylgja bestu faglegu
vinnubrögðum, virða rétt annarra og sýna umhverfinu fyllstu virðingu.
I. Um viðskiptavini.
Viðskiptavinur er bæði sá (verkkaupi eða vinnuveitandi), sem felur verkfræðingi verk, og sá
sem nýtur hinnar tæknilegu lausnar.
1. grein. Verkfræðingar skulu í störfum sínum leggja sig fram um að gæta hagsmuna
viðskiptavina sinna. Þeim ber að vinna störf sín án tillits til persónulegra skoðana,
stjórnmála, þjóðernis, trúarbragða, kynþátta, eða hagsmuna er ekki snerta beint verkefnið
sjálft.
2. grein. Verkfræðingi ber að sýna sanngirni og réttsýni í hvívetna. Hann virðir lög stéttar
sinnar og samfélags.
3. grein. Verkfræðingi er skylt að gera viðskiptavini sínum kunnugt um tjárhagslega
hagsmuni, frændsemi, ráðgjöf, samstarf, eða viðskiptaleg samskipti sem gætu gert starf
hans í þágu viðskiptavinarins tortryggilegt.
4. grein. Verkfræðingi sem tekur að sér verk fyrir verkkaupa er óheimilt að taka við þókn-
un eða fríðindum frá þriðja aðila í sambandi við verkið, nema samþykki verkkaupa komi
til.
5. grein. Verkfræðingi ber að afla sér nákvæmrar skilgreiningar á því verkefni sem honum
er falið. Verkfræðingur skal ætíð gera viðskiptavini grein fyrir áætluðu umfangi
verkefnisins og fá staðfest að viðskiptavinur geri sér ljóst hvað í því felst. Ennfremur
skal verkkostnaður áætlaður.
6. grein. Nú tekur verkfræðingur að sér verkefni sem er hluti stæira verks. Skal hann þá
gaumgæfa forsendur og áreiðanleika upplýsinga sem fást úr öðrum verkhlutum, enda ber
hann ekki aðeins siðferðilega ábyrgð á sínum verkhluta, heldur verkinu í heild með þeim
sem að öðrum verkhlutum standa.
7. grein. Uppgjör og skil verkfræðings til viðskiptavinar skulu vera greinargóð, og ber
verkfræðingi við lokauppgjör verks að láta viðskiptavini í té sundurliðað yfirlit yfir það
starf sem hann hefur unnið.