Verktækni - 25.04.1988, Síða 2
FÉLAGSFUNDIR OG -TILKYNNINGAR
VFÍ — VFÍ — VFÍ — VFÍ — VFI — VFÍ — VFÍ — VFÍ — VFÍ — VFÍ — VFÍ — VFÍ — VFÍ — VFÍ — VFÍ — VFÍ — VFÍ —
HÁLENDISVEGIR FRAMTÍÐARINNAR
OG ÁHRIF ÞEIRRA
Ráöstefna Verkfræöingafélags íslands 6. maí 1988 kl. 09—17 aö Hótel Loftleiöum.
Ráöstefnan er öllum opin og er dagskrá hennar kynnt nánar í fjölmiölum.
Skráning þátttakenda á skrifstofu félagsins. — Sími 688511.
HÁSKÓLI tækniskóli
iSLANDS ÍSLANDS
ifeto
BANDALAG
HÁSKÓLAMANNA
HIO iSLENSKA VERKFRÆÐINGAFÉL TÆKNIFRÆÐINGAFÉL
KENNARAFÉLAG ISLANDS iSLANDS
NÁMSKEIÐ
Arðsemireikningar og gerð tölvulíkana
EFNI: Námskeiðiö er ætlaö öllum er fást við athuganir og mat á fjárfestingum og
atvinnustarfsemi. Markmiö námskeiösins er að kynna helstu aðferðir sem notaðar
eru við mat á arðsemi fjárfestinga og kenna sérstaklega gerö reiknillkana fyrir
tölvur (IFPS: Interactiv Financial Planning System). Meðal þess sem fjallað verður
um eru núvirðisreikningar, innri vextir, fjárstreymi, fjámögnun, rekstrarfé, sköttun,
uppbygging reiknillkana, áætlun um rekstursreikning og efnahagsreikning,
naemnisathuganir og arðsemikröfur. Lögð verður áhersla á að þátttakendur geri
eigin likön og vinni eigin verkefni meö IFPS.
TÍMI: 2 -6. maí.
LEIÐBEIN.: Geir A. Gunnlaugsson framkvæmdarstjóri Marel h.f. og Páll Jensson
prófessor H.l.
Tölvugrafík; Grafísk kerfi með hliðsjón
af CAD — Haldið í samvinnu við Upplýsinga- og
Merkjafræðistofu Háskólans UMH
Námskeiðið er fyrst og fremst hugsað fyrir tækni- og verkfræðinga, arkitekta, en
gæti nýst þeim er nota vilja tölvur viö teikningu á öðrum sviðum, t.d. við teiknun
auglýsinga.
Námskeiðið byggir á hliðstæðu námskeiði sem kennt hefur verið við H.l. undan-
farin ár. Sérstakar forkröfur eru ekki gerðar; æskilegt er þó að nemendur þekki
eitthvað til tölva (t.d. MS-DOS eða vinnslu á Macintosh) og a.m.k. eins forrituna-
máls (t.d. FORTRAN eða C). Hámarksfjöldi þátttakenda er: 25 manns.
EFNI: Yfirlit yfir „tölvugrafik". Vélbúnaður. Hugbúnaður. Stöðluð gagnvirk tölvu-
grafik, GKS, VDI. — Notkun GKS, VDI: Byrjunaratriði. Gluggun, klipping, bútun.
Gagnvirk teikniforrit. Ýmis notkunardæmi. — Rúmfræði fyrir tölvumyndun:
Grundvallaratriði, varpanir, llkanagerð, „faldar línur", tvivíð tölvumyndun. —
„Graflk" I þrlvíðu: „Faldir fletir". Lýsing i tölvumyndum. Skygging. Litir. —
Hönnun með tölvugrafík, CAD: Vélbúnaður, hugbúnaður, notkun.
VERKLEGAR ÆFINGAR: Stöðluð tölvugraflk (kjarni fyrir alla). Viðfangsefni: GKS,
VDI, IGES, META-skrár. — Hönnun meö tölvugrafík, CAD: Einstaklingsbundið
val á verksviði og tölvukerfi: — Vélbúnaður: IBM AT/PS-2 model 80, Macintosh
ll/Laser Writer. Professional Graphics kerfi, VGA, Vectrix Pepe. —Hugbúnaður:
„VersaCAD Deseigner", „AutoCAD" „Adobe PostScript", „Adobe illustrator".
VAL: UNIX/IBM RT: — MOVIE. BYU (3D-teiknipakki fyrir fasta hluti); lýsing,
skygging, litir. — UNIRAS, teiknipakki fyrir jarðvísindi, jarðtækni). —CIEDS
(Comp. Aided Integr. Electr. Design Series), hönnunar og teikniforrit fyrir raf-
eindatækni.
LEIÐBEINENDUR: Sigfús Björnsson, forstöðumaður UMH — Ásmundur
Eiriksson, sérfræðingur UMH — Guðrún Rögnvaldsdóttir, sérfræðingur UMH
TlMI: 9.-13. mal.
ÞÁl l IÖKUGJALD: Kr. 25.000.- Innifalin ítarleg handbók og kaffi.
Þekkingarkerfi og notkun þeirra
við ákvarðanatöku í framleiðsluiðnaði og við stjórnun
fyrirtækja og stofnana — Kynning
ÞÁTTTAKENDUR: Kynningin er ætluð stjórnendum og rekstrarstjórum fyrirtækja
og stofnana.
EFNI: Þekkingakerfi („Expert systems") eru kerfi, þar sem upplýsingar og
ákvarðanareglur á tilteknu sérsviði eru settar inni tölvu með kerfisbundnum hætti,
þannig að þær eru tiltækar og aðgengilegar hverjum sem er sem hefur aögang
að kerfinu. Kynnt verður notkun slikra þekkingakerfa almennt og hjá Dupont-
fyrirtækinu.
LEIÐBEINANDI: Dr. Örn Aðalsteinsson framkvæmdarstjóri Dupont og dr. Oddur
Benediktsson prófessor.
TÍMI: 16.-17. mai.
Notkun TMS32020 örgjörva í
tölfræðilegri merkjafræði
MARKMIÐ: Sérhæfðir örgjörvar eru notaðir I rauntímakerfum fyrir stafræna
merkjavinnslu (Digital Signal Processing) t. d. við fjarskipti, mælitækni, stýringu,
tölvuteiknun, tal, síun, samsvörun, merkjagjöf. Þróun örgjörva til þessara nota
hefur verið ör og 3. kynslóöir þeirra verða teknar I notkun á næstunni. Tilgangur
námskeiðsins er að kynna þátttakendum TMS32020 örgjörvann frá Texas
Instruments bæði fræðilega og með því að nota þróunarbretti, sem sett er i
IBMPC samhæfða tölvu. Áhersla verður lögð á verklega þjálfun með þvi að nota
þróunarbrettið og skrifa forrit fyrir örgjörvann.
EFNI: Kynning á merkjafræðilegum örgjörvum. TMS fjölskyldan. — TMS32020:
Uppbygging, minni, jaðarbúnaður. Skipanir. Forritun í vélamáli. Notkun
örgjörvans. Þjálfun í algrímaforritun. — Þróunarbretti: Lýsing IBMPC tenging.
Hugbúnaður fyrir forritaþróun. — Þjálfun i notkun örgjörvans í rauntimavinnslu
við einföld stafræn merkjafræöileg viðfangsefni.
LEIÐBEINANDI: Tore Fjállbrant prófessor, Háskólanum I Linköping. Námskeiðið
fer fram á ensku.
TÍMI: 17.-19. mai kl. 9-12.
ÞÁTTTÖKUGJALD: Kr. 6.500.
Tölvunámskeið endurmenntunarnefndar
og Reiknistofnunar HÍ í vor og sumar
Boðið verður upp á námskeið í ritvinnsluforritunum WORD og WORD-PERFECT,
töflureikninum MULTIPLAN, gagnasafnsforritinu Dbase III+ , námskeið um MS-
DOS stýrikerfið, UNIX stýrikerfið og um lölvupósl. Allt fyrr PC vélar. Auk þess fyrir
Macintosh forritin Work og Word. Þessi námskeiö verða öll haldin á timabilinu 16.
maí til 3. júni.
Auk þess verður haldið í sumar 50 klst. námskeið um tölvunolkun, þar sem farið
verður í ritvinnslu, töflureikni og gagnasöfn, allt fyrir PC vélar.
Nákvæm dagskrá mun liggja fyrir um mánaðamótin aprfl/maf.
Skráning fer fram á skrifstofu Háskóla íslands, sími 694306.
Allar nánari upplýsingar veitir Margrét S. Björnsdóttir
endurmenntunarstjóri, Nóatúni 17, sími 23712 og 687664.
2
VERKTÆKNI — 25. APRÍL 1988