Verktækni - 25.04.1988, Qupperneq 8
Fundur VFÍ
15. des. 1987:
Þáverandi formaður VFÍ, Viðar
Ólafsson setti fundinn og sagði hann
hafa verið hugsaðan sem algjöran
tæknimannafund, en vegna þings-
ályktunar og frétta í fjölmiölum slðustu
daga, væri málið orðið hápólitískt.
Frummælendur voru:
Flreinn Flaraldsson, jarðfræðingur,
Vegagerð ríkisins, Ólafur Bjarnason,
verkfræðingur, VST hf., Sturla
Böðvarsson, byggingartæknifræð-
ingur, sveitarstjóri í Stykkishólmi,
Gunnar Flelgi Flálfdánarson, viðsk.fr.,
framkvæmdastjóri Fjárfestingafélags
íslands.
1. JARÐGÖNG.
Fyrstur tók til máls Hreinn Haralds-
son og ræddi aðallega um möguleika
á jarðgöngum. Hann minnti á Hval-
fjarðarnefnd sem starfaði 1967-72 og
bar saman ýmsa möguleika, m.a.:
1. Góðan veg fyrir fjörðinn.
2. Ferju (Hvaleyri- Katanes).
3. Brú/fyllingu á nokkrum stöðum.
4. Jarðgöng utarlega (vegstokk).
Jarðfræðilegar aðstæöur voru taldar
óhentugar fyrir göng í bergi, m. a.
þykkur jökulgarður á sjávarbotni og
því gert ráð fyrir vegstokk.
( skýrslu til samgönguráöherra vor-
ið 1987, um möguleg jarðgöng á
Vestfjörðum og Austfjörðum, voru í
viðauka kynnt jarðgöng undir Hval-
fjörð á móts við Eyrarfjall. Þar kom
fram að miðað við 800 bíla umferö á
dag myndu slík gefa 15% afkastavexti
miðað við reikniaðferðir Alþjóðabank-
ans, og voru þetta einu göngin I
skýrslunni sem sýndu hagnað.
Vegagerð ríkisins áætlar kostnað
við göng undir Hvalfjörð nálægt 330
Mkr./Km. samkvæmt reynslutölum í
Noregi og áætlunumfrá Færeyjum. Á
töflu 1 sést að um 60% kostnaðar er
enn eftir þó að búið sé að sprengja
jarðgöngin sjálf.
Jarðfræðilegar aðstæður undir
utanverðum Hvalfirði hafa lítið verið
rannsakaðar enn, en þar sem jarðlög
hallast til suðurs er sennilega hægt
að sjá í Akrafjalli þau lög sem norður-
hluti jarðgangnanna munu liggja I.
Vegagerðin hefur áhuga á að láta
sem fyrst (helst 1988) kanna liði 1-4 á
töflu 2. Á mynd 1 sést sennileg lega
gangnanna undir utanverðan Hval-
fjörð um Hnausasker og mynd 2 sýnir
lauslegan langskurð af gangnaleið-
inni og vegfyllingu/vegstokki.
2. VEGFYLLING/
VEGSTOKKUR.
Ólafur Bjarnason kynnti hugmynd
um að brúa fjörðinn utarlega að
mestu með vegfyllingu og stuttri brú,
eða stuttum vegstokki, sem leyföi
umferð 100 þús. tonna skipa. Sunnan
HVALFJARBARGÖNG/BRÚ
Hnausaskers er fjörðurinn aðeins
6-10 m djúpur, en rúmlega 30 m
sjávardýpi eru noröan skersins. Við
aðflæði yrði straumhraði 1-2 m/s. um
siglingarennuna og rennsli færi yfir
100 þús. m3/s.
Vegfyllingin yrði 6 milljónir m3, eöa
þrisvar sinnum meiri aö rúmmáli en
Sultartangastífla, gerö úr möl og grjóti
með ölduvörn úr stórgrýti utan á (sjá
þversnið B- B á mynd 2). Mesta hæð
fyllingar yröi um 35 m, sem er lægra
en Sigöldustífla. ( Noregi hefur verið
gerð 50 m há fylling í sjó nálægt
Þrándheimi. Kanna þarf hvar hentug-
asta fyllingarefnið er að finna og
hvernig hentugast er að koma því á
staðinn. E.t.v. er mögulegt að dæla
upp efni af sjávarbotni, eða vinna efni
úr skriöum fjallanna báðum megin
fjarðar. Stokkurinn yrði steyptur í
þurrkví í 200- 300 m. lengjum, fleytt út
og sökkt. Vegfylling/brú (eða göng)
mun kosta um tvisvar sinnum meira
en Borgarfjarðarbrúin, en skila mun
meiri arði. Varðandi vegfyllingu taldi
Ólafur tæknilega áhættu litla.
3. ÁHRIF Á BYGGÐIR
Á VESTURLANDI.
Sturla Böðvarsson sveitarstjóri I
Stykkishólmi ræddi kosti tengingar
yfir Hvalfjörð fyrir íbúa Vesturlands.
Algjör bylting yrði á Akranesi og allt
upp í Borgarnes en einnig mikil breyt-
ing fyrir allt Vesturland, sem þó mun
ekki skila sér til fulls fyrr en vegakerfið
hefur verið bætt. Áhrifin ná þó mun
lengra, þar sem hér er einnig verið að
stytta leiðina norður í land og á Vest-
firði, sem síðan tengjast enn betur er
nýja Breiöafjarðarferjan verður tekin I
notkun. Atvinnu- og markaðssvæði
fyrirtækja á Vesturlandi munu ná
betur til Reykjavíkur og sumardvalar-
staðir í Borgarfirði færast nær höfuð-
borginni. Einu neikvæðu áhrifin fyrir
Vesturland gætu orðið að eitthvað af
versluninni færðist til Reykjavlkur.
Sturlu fannst aö VFl ætti að hvetja til
arðbærra framkvæmda í samgöngu-
málum, en ekki láta sveitastjórnirnar
einar um þessi mál, þar sem hjá þeim
gætir yfirleitt hreinna staðarhags-
muna en síður áhersla á arðsemi.
Þá kvaðst Sturla hafa mikinn áhuga á
nýjum möguleikum í fjármögnun I
samgöngumálum.
4. NÝJAR LEIÐIR
í FJÁRMÖGNUN.
Gunnar Helgi Hálfdánarson fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingafélags Is-
lands, sem fjallaði um fjárhagshlið
málsins, sagðist fyrst hafa haldið að
hér væri enn eitt tæknifylliríið á ferð-
inni. Við nánari athugun væri e.t.v.
Framhald á bls. 12.
TAFLA 1
KOSTNAÐUR JARÐGANGNA NEÐANSJÁVAR.
Noregur:
Vardö (2,6 Km), 290 Mkr/Km
Álasund (3,5 + 4,2 = 7,7 Km), 230 Mkr/Km
Freifjord (5,2 Km), áætl. 310 Mkr/Km
Færeyjar:
Straumey-Vogar (3 Km) áætl. 310 Mkr/Km
ísland:
Hvalfjörður (,5 Km), áætl. 330 Mkr/Km
Kostnaðarskipting í Vardö:
2/5- sjálft gatið í gegn með vinnustyrkingum
1/5- vatnsvarnir og dælubúnaöur
1/5- endanlegar styrkinga (mest boltar og steinsteypa)
1/5- slitlag, lýsing, drenlagnir, hönnun, rannsóknir o.fl.
TAFLA 2
RANNSÓKNARÁÆTLUN V/HVALFJARÐARGANGA
1. Draga saman núv. jarðfræðiþekkingu á svæðinu
2. Nákvæm jaröfræðikortlagning á strandsvæðum
3. Endurvarpsmælingar (setþykkt, dýpi á klöpp)
4. Hljóðvarpsmælingar (berggerðir, lághraðalög)
5. Kjarnaboranir
Vegalengd í km
Fyrir Hvalfj. Um brú/göng Stytting
Rvík—Akranes 109 51 58
Rvík—Borgarn. 116 70 46
UMFERÐ BÍLA/DAG
Nú Áætlað eftir göng/brú
Fyrir Hvalfjörð um 1000 Meö Akraborog um 220 1800—2506
Ef vegtollur er 400 kr/bíl, þá eru brúttótekjur á ári: 400 kr/bilx2000 bílar/dagx360 dagar=280 Mkr.
Áætlaður byggingarkostnaður
Jaðgöng: 4,5 kmx330 Mkr/km: Um 1500 Mkr.
Vegfylling+vegstokkur: Um 2000 Mkr.
Ath.: Mjög lauslegar áætlanlr.
8
VERKTÆKNI — 25. APRÍL 1988