Verktækni - 25.04.1988, Page 25
ALIT
Trausti Valsson, skipulagsfræðingur:
HUGMYNDIR UM
HÁLENDISVEGAKERFI
Fyrir ellefu árum birti ég hugmyndir
mínar fyrst um strúktúr framtiðar-
vegakerfis landsins. Þessi strúktúr er
Hringvegurinn og þvertengingar í
hringnum yfir hálendið til að stytta
leiðir og gera N-, S-, og A-land að
samverkandi byggðasvæði.
Fyrst ( stað þótti flestum þessar
hugmyndir allt að því fáráðlegar, en
eftir því sem árin hafa liðið, hafa
menn smám saman vanist hugmynd-
inni.
Framtíðin er oft skemur undan en
menn hyllast til að ætla og til dæmis
hef ég orðið var við að menn hafa
orðið hissa á hvað mikið er komið af
þeim vegum sem falla að hugmynd-
inni að hálendisvegakerfi. Breiðu lín-
urnar á myndinn: sýna hvað komið er
af kerfinu og þær punktuðu það sem
á vantar. (Sjá mynd 1)
Heim kominn úr framhaldsnámi
hóf ég á síðasta ári nýtt kynningar-
átak á hugmyndum mínum. Síöast-
liðið vor gaf ég út rit um málið: ,,Hug-
mynd að fyrsta heildarskipulagi (s-
lands", með styrk frá Byggðastofnun
og Skipulagi rfkisins.
( ritinu bendi ég á þaö sem eitt
mikilvægasta markmið íslandskipu-
lags að beina byggðaþróun framtíð-
Traustl Valsson.
arinnar inn á jarðhitasvæði landsins.
Þau fylgja skálinu NA yfir landið eins
og sést á meðfylgjandi korti. (Mynd 2)
Öflugasta tæki til að stjórna þróun
æskilegasta byggðamynsturs er að
leggja vegakerfi samkvæmt þessu
mynstri, því þar sem vegir koma
dafnar byggð.
NA-skálínuna kalla ég byggðaás
framtfðarinnar og er hann sýndur á
næstu mynd. (Mynd 2)
Þó hin fjölmörgu langtíma byggða-
sjónarmið heildarskipulagsins sé það
sem fyrst og fremst býr að baki vega-
kerfishugmyndinni, er það þó skiljan-
lega hinn ýmsi ávinningur sem kem-
ur strax fram við lagningu vegakerfis-
ins sem vekja athygli ráðuneyta,
stjórnmálamanna, stofnana og al-
mennings.
Ávinningurinn er t.d. styttri vega-
lengdir milli landshluta og aukning
ferða innlendra og erlendra ferða-
manna um landið. □
Ákvöröunarstaöir
Um hring-
veginn
Um hálendið
Stytting á
akstursleiö
432 km Um 360 km Um 70 km
710 km Um 460 km Um 250 km
487 km Um 300 km Um 190 km
556 km Um 235 km Um 320 km
704 km Um 335 km* Um 380 km
Fjallabaksleið.
FELÖG
TÍMARIT
ÁHUGAHÓPAR
VERKTÆKNI kynnir reglulega hverskyns sérfélög,
áhugahópa, tfmarlt, skýrslur o. fl.
Hafið samband við ritstjóra (heimasími 652238)
og látið vita af áhuga ykkar á að koma slíku
á framfæri í blaðinu.
VERKTÆKNI — 25. APRÍL 1988
13