Verktækni - 25.04.1988, Blaðsíða 28
TÆKNI OG FRAMFARIR
kaupum og ráðgjöfum. Meðal þess-
ara gagna voru drög að sérskil-
málum vegna opinberra fram-
kvæmda, sem Fjárlaga og hagsýslu-
stofnun hefur nýlega látið gera.
Starfshópur innan nefndarinnar fór
yfir þessar útboðslýsingar allar og
skráði atriði sem voru talin eiga erindi
í almenna skilmála. Ennfremur voru
erlendir staölar um þetta efni athug-
aðir, þar á meðal Norðurlandastaðl-
arnir og hinir alþjóðlegu FIDIC skil-
málar, sem nýlega eru komnir út í 4.
útgáfu. Jafnframt þessu var leitað til
fjölda einstaklinga, sem hafa afskipti
af verksamningum og þeir beðnir um
hugmyndir.
Nú liggur fyrir tillaga að endurskoð-
uðum staðli og er áætlað að senda
hana formlega út til gagnrýni í apríl
og óska eftir athugasemdum fyrir
miðjan maí, þannig að unnt verði að
prenta staðalinn I júnf á þessu ári, ef
vel gengur.
( fyrrgreindum starfshópi eru
Gunnar S. Björnsson, Jónas Frf-
mannsson og Stanley Pálsson, en
Jóhannes Þorsteinsson deildarstjóri
staðladeildar Iðntæknistofnunar hef-
ur haft umsjón með verkinu og ann-
ast skráningu. Leitað var til Páls Sig-
urðssonar prófessors og hann feng-
inn til þess að gagnrýna handrit aö
tillögunni. Haft var samband við is-
lenska málstöð um gagnrýni á mál-
fari. Þá var Helgi Bernódusson út-
gáfustjóri Alþingistiðinda fenginn til
þess að lesa tillöguna yfir.
Allir þessir aðilar bentu á ýmislegt
sem betur mætti fara.
Almennir útboðs- og samningsskil-
málar um verkframkvæmdir eru leið-
beiningar um góðar venjur, sem náð
hafa ákveðinni festu f atvinnulífinu.
Staðallinn hefur ekki lagagildi. Hverj-
um og einum er I sjálfsvald sett að
nota staðalinn eða láta hann ónotað-
an.
Styrkur staðalsins felst í því að
hann er „agreed document". Helstu
hagsmunaaðilar f byggingariðnaði
standa að samningu hans og hafa
lagt blessun sína yfir hann.
( þeirri staðaltillögu, sem nú liggur
fyrir er gerð ráð fyrir talsvert miklum
breytingum og viðbótum við gildandi
staðal. Efnisröðun og -uppbygging er
þó að mestu óbreytt.
Við skoðun útboðslýsinga frá hin-
um ýmsu verkkaupum kom í Ijós að
það er algengt að útboðslýsingar
hafa að geyma ftarlega viðauka við
og breytingar" á (ST 30. Hafa sumir
ráðgjafar að því er virðist komið sér
upp „stöðluðum" viðbótum af þessu
tagi. ( útboðslýsingum sjást stundum
ákvæði þannig eða þessu Ifk: ,,ÍST 30
er hluti þessarar útboðslýsingar. Á
þeim stöðum, þar sem ósamræmi
kann að vera milli staðalsins og ann-
arra ákvæða í lýsingunni skulu
ákvæði staðalsins þó víkja". Hér er
um óheppilega notkun staðalsins að
ræða, sem ætti ekki að þurfa að sjást.
Jónas Frfmannsson
Litið var á það sem markmið við
endurskoðunina að minnka þörf fyrir
viðauka og breytingar. Skilmálar
staðalsins eiga að vera almenns eðlis
og æskilegt að hann sé þannig úr
garði gerður, að ekki þurfi að gera
breytingar, þegar útboðslýsing er
samin. Upplýsingar, sem eru sér-
tækar fyrir ákveðið útboðsverk, eiga
hins vegar heima í sérskilmálum.
Á alþjóðlegum vettvangi fer fram
vinna við staðlagerð. Nefna má nor-
rænu staðlasamvinnuna INSTA og
Evrópu staðlasambanið CEN. Iðn-
tæknistofnun stefnir að vaxandi þátt-
töku í starfi þessara stofnana. Ljóst er
aö ísland getur haft mikið hagræöi af
því að vera meö í slíkri staðlavinnu og
má raunar fullyrða að hún sé þýð-
ingarmikil forsenda fyrir iðnþróun og
hagvexti í landinu. ( náinni framtfð er
gert ráð fyrir að Evróþulöndin taki
upp sameiginlega staöla á miklum
fjölda fagsviða. Allt bendir til þess að
við hér á Fróni munum þannig taka
formlega í notkun fjölda staðla á er-
lendum tungumálum, áður en langt
um liður. Á þetta sérstaklega við um
staðla um tæknileg efni. Hins vegar
benda upplýsingar, sem fengist hafa,
ekki til þess að alþjóðlegar reglur
leysi af hólmi þjóðarstaðla um verk-
samninga ( náinni framtfð. Þess má
þó geta, að áriö 1975 kom út á veg-
um Norðurlandaráðs tillaga að sam-
eiginlegum Norðurlandastaðli um
verksamninga. Var hún samin af Tore
Sandvik, norskum prófessor í lögum.
Tillagan, sem raunar var mjög vand-
lega unnin, og byggði á gildandi
stöðlum á öllum 5 Norðurlöndunum
komst þvf miður aldrei af tillögustigi.
(stuttri frásögn gefst lítið tækifæri til
þess að fjalla um einstök atriði, sem
lagt er til að breytt verði eða bætt við
(ST 30 þessi skulu þó nefnd:
1. kafli. Orðskýringar.
Bætt er við þessum hugtökum:
Hliöarverktaki, alverktaki, forvalsút-
boð, forsögn og alútboð.
3. kafli. Auglýsing um útboð.
Settar eru reglur um auglýsingu
forvalsútboðs.
4. kafli. Útboðsgögn.
Gert er ráð fyrir þvf sem megin-
reglu, að heimilt sé að gera frávikstil-
boð.
6. kafli. Efni tilboðs.
Hér eru ítarlegri reglur en áður um
það hvernig með skuli fara ef villur
eða misræmi er í útboði.
7. kafli. Tilboð opnuð. . .
Nánari reglur en áður um hvað eigi
að lesa upp, þegar tilboö eru opnuð.
15. kafli. Tryggingarfé.
Gefinn er kostur á því að setja 15%
framkvæmdatryggingu (( stað 10%),
en sleppa geymslufé.
16. kafli. Breytingar.
Sett eru ákveðin hámarksákvæði
um breytingar. Tillaga verktaka um
hagræðingu veitir honum rétt til hlut-
deildar í hagnaði.
22. kafli. Áhætta — vátrygging-
ar...
Kvöð um brunatryggingu er
óbreytt, en bætt er við ábendingu um
að krefjast megi annarra trygginga.
Á síðastliðnu ári átti sér stað mikil
endurskipulagning f íslenskum stöðl-
unarmálum. Þá setti stjórn Iðntækni-
stofnunar íslands (ITÍ) á fót Staðlaráð
(slands (STRÍ) og fól því hlutverk sitt á
sviði stöölunar. Ennfremur ákvað
ríkisstjórnin að Island gerðist aðili að
Comité Européen de Normalisation
(CEN).
Um miðjan júní verður ísland full-
gildur aöili að CEN, en nú eru aðildar-
ríki 16, öll riki Evrópubandalagsins
og öll ríki EFTA nema Island. Aðal-
hlutverk CEN er að semja Evrópu-
staðla (EN), en þeim er ætlað að
gegna lykilhlutverki í að auðvelda við-
skipti meðal þátttökuþjóðanna. Hefur
Evrópubandalagið sett sér það mark-
mið að koma á frjálsum innri markaði
fyrir árslok 1992 og er ein megin-
forsenda þess talin vera að koma í veg
fyrir tæknilegar hömlur (viðskiptum og
þjónustu. Tæknilegum hömlum verð-
ur rutt úr vegi með því að koma á
sameiginlegum reglum og stöðlum
innan markaðssvæðisins. Gert er ráð
fyrir, að stór hluti þeirra EN staðla,
23. kafli Eignarréttur...
Verkkaupi eignast nú verkið, þegar
hann greiðir fyrir það. (Áður eftir því
sem verkinu miðaði áfram).
Ákvæði eru sett um eignarrétt að
gömlu efni, sem fjarlægja þarf við
endurbyggingu eða viðgerðarvinnu.
24. kafli. Frestir — tafabætur.
Nú er talað um „tafabætur" í staö
„févftis" áður.
25. kafli Tímabundin stöövun —
vanefndir — riftun.
Ákvæði í þessum kafla eru nú mun
itarlegri en áður.
28.- 33. kafli. Úttekt, yfirmat,
ábyrgö, mælingar, greiöslur,
ágreiningur.
Um öll þessi atriöi eru nú ftarlegri
ákvæði en áður.
34. kafli. Undirverktakar.
Sérstakur nýr kafli er nú um sam-
skipti aðalverktaka og undirverktaka.
Ef einhver, sem þessar Ifnur les óskar
eftir frekari vitneskju eða vill láta í Ijós
athugasemdir, er sá hinn sami beð-
inn að gera svo vel að hafa samband
við deildarstjóra staðladeildar ITÍ eða
einhvern fyrirgreindra „endurskoð-
enda" staðalsins ÍST 30. □
Stöölun; lykill að
þróun og hagvexti
sem nauðsynlegt er að setja fyrir
1993 verði á sviði byggingariðnaðar
og er áætlað að lokið verði við 400 til
500 nýja staðla áöur en fresturinn
rennur út.
Með aðild sinni að CEN skuld-
bindur ísland sig til þess að taka upp
óbreytta alla EN staöla innan 6 mán-
aða frá útgáfudegi. Heimilt er þó að
semja sérstaka þjóöarviðauka við
þessa staðla þegar séreiginleikar
byggingarefna eða veðráttu eru veru-
lega frábrugðnir forsendum staðals-
ins. Enn fremur er í mörgum tilvikum
gert ráð fyrir, að ákveðin tölugildi
staðlanna geti verið mismunandi frá
einu landi til annars.
Til þess að sinna þvi mikla verki að
meta og staðfæra þann fjölda EN
staðla, sem væntanlegur er, svo og til
þess að sjá um frumritun og endur-
Þorsteinn Helgason, prófessor,
formaður Byggingarstaðlaráðs:
STÖÐLUN í
BYGGINGA RIÐNAÐI
16
VERKTÆKNI — 25. APRÍL 1988