Verktækni - 25.04.1988, Side 31

Verktækni - 25.04.1988, Side 31
VÖRUKYNNING Grétar Leifsson, vélaverkfr. hjá ísleifi Jónssyni hf.: GRUNDFOS DÆLUR HENTA FISKELDISFYRIRTÆKJUM ÖR VÖXTUR. Á síðustu árum hefur fiskeldi á ís- landi aukist svo um munar. Nú er svo komið að langt yfir 100 stöðvar eru þegar komnar á stað, sumar eru Þegar komnar í fullan rekstur á með- an aðrar eru aðeins á teikniborðinu. Þessi öri vöxtur hefur því miður verið á kostnað forsjálninnar og þeir sem hafa gengið fremstir hafa margir hverjir þurft að læra af biturri reynslu og þurft að taka á sig fjárhagslegt tjón. Fjármagnsskortur í þyrjun og langur framleiðslutlmi, eru hvati til þess að velja ódýrari lausnir fram yfir þær bestu. Sérfræðingar eru stund- um kallaðir til of seint, oft eftir að búið er að ákveða ýmsa veigamikla þætti, s.s. staðsetningu stöðvarinnar og leiðir til vatnsöflunar. Sérfræðingarnir eiga síðan að velja bestu lausnirnar við þröngar aðstæður. SJÓÖFLUN. Það er til góð reynsla af dælingu á heitu og köldu vatni hérlendis, en það sem ekki var til staðar var sjó- dæling í því magni sem orðið hefur. Algengt hefur verið að grafa brunna í fjörukamb og dæla sjónum upp með brunndælum. Þessar dælur eru Ojarnan úr plasti og steypujárni, upp- haflega hannað fyrir ásalt vatn. í fyrsta lagi eru brunnarnir oft ófull- nægjandi þar sem engin trygging er fyrir því að brunnurinn gefi nóg og að sandur og grjót berist ekki inn í dæl- una. Reynslan hefur verið sú að end- ingin er sjaldnast meiri en eitt til tvö ár, og það furðulega er að oft er þetta talið nokkuð gott. Stundum eru þó einnig aörir þættir sem sþila inn í t-d. rafmagnstruflanir. Jafnframt hefur verið sóttst eftir fáum og stórum dælum, sem dæla allt að 300 l/s. Réttari lausnir. Við hjá ísleifi Jónssyni h.f., álítum að bestu lausnirnar fáist með dælum sem séu hannaðar fyrir sjó frá byrjun °g að notaðar séu fleiri og smærri dælur. Smærri dælur íþyngja rafkerf- 'nu síður, eru meðfærilegri og auð- veldari í viðhaldi. Jafnframt gerir þaö minna til þó svo að ein dæla stoppi °9 ódýrara er að hafa varadælu til- búna. Við höfum selt GRUNDFOS dælur í um 35 ár hérlendis og þar af djúpdælur í um 10 ár. Við álltum út frá 'angri reynslu að áreiðanleg sjóöflun fáist einna best meö djúpdælum, en GRUNDFOS framleiðir slíkar dælur fyrir þrýstihæð frá 10 mvs til 600 mvs og afköst frá 0,6 m3/h til 280 m3/h. RYÐFRÍTT STÁL. Strax frá upphafi var tekin sú megin ákvörðun hjá GRUNDFOS að byggja alla megin þætti djúþdæl- anna úr ryðfríu stáli. Ekki aðeins að styrkur riðfría stálsins er mjög hár gegn hita og tærandi vökvum, heldur er lítill massi betri gagnvart titringi og hávaða. Jafnframt er ryðfrítt stál eitt besta efnið gagnvart hvörfunar af völdum „kavitation" og sandi, þar sem t. d. steypujárn hvarfast auð- veldlega. Dælurnar eru léttar og mjóar, sem gefa mikið streymi úr hverri borholu. Flinsvegar er ryðfritt stál ekki allt eins. Ffjá GRUNDFOS er aðallega talað um þrjár megin gerðir, A-gerð, sem er algengust fyrir kalt og heitt vatn (W.Nr. 1.4301), N-gerð, fyrir kaldan sjó (W.Nr. 14401) og R-gerð, fyrir heitan sjó (W.Nr. 1.4539). Þegar velja á milli þessara tegunda er nauðsynlegt að láta efnagreina vatn- ið og mæla hitastig þess. Verðmunur á þessu þrennu getur veriö verulegur og liggur hann aðallega i dælunni sjálfri, þar sem stálnotkun er mest og eykst munurinn við aukningu þrepa. DÆLUR SEM DUGA. GRUNDFOS er þekkt fyrir að huga að smáatriðunum í hönnun og fram- leiðslu. Sem dæmi má nefna legurnar í sjálfri dælunni, sem eru úr gúmmíi. Gúmmíið er ekki hringlaga, eins og öxullinn, heldur sexhyrnt eða átt- hyrnt. Þegar sandur berst uþþ í dæl- una, myndi hann festast ef ekki væru þessi millibil sem sandurinn kemst í og sogast því upþ í gegnum dæluna. Á öxlinum beint undir fyrsta hjóli er sérstakur snigill, sem mun halda dælunni og þar með legunum rök- um, og hindra þannig að legurnar eyöileggist, ef borholan gefur ekki nægjanlegt flæði. Dælurnar hafa aldeilis frábæra nýtni, um og yfir 70% við hönnunar- álag. Það má geta þess að GRUND- FOS, jafnt sem aðrir dæluframleið- endur gefa oftast eingöngu uþþ dælunýtni, en ekki mótornýtni. Til- gangur þessa er aðallega til þess að velja dælu þannig að við gefnar forsendur um heildarþrýstihæð og flæði, vinni dælan sem næst há- marksnýtni eða örlitið hægramegin á kúrfunni. Þess má einnig geta, að enn sem komið er, er engin alþjóðlegur staðall til varðandi dælunýtni. Fram- leiðendum er því í lófa lagið að mæla og meta slíka nýtni hver með sinni aðferð, hinsvegar er auðveldar að fá góða nýtni á tilraunastofu eða með reikningsaðferðum, en við raunveru- legar aðstæður. Varlega skal því farið með slíkar nýtnitölur þegar meta á rekstrarkostnað. EIGIN MÓTORFRAM- LEIÐSLA. GRUNDFOS gerði sér snemma grein fyrir því að ekki væri nóg aö búa til góðar dælur, ef svo mótorinn væri vafasamur. Nú er svo komið að GRUNDFOS framleiðir flest alla þá mótora sjálfir, sem hefur gert GRUNDFOS að einum stærsta mótorframleiðanda í heiminum í dag. Nýlega setti GRUNDFOS á markað- inn nýja útgáfu af 4" mótor MS 402 og 6" mótor MS 600. Með djúþdælu- mótor má fara í allt að 80°C hita, en ef hitastigið er hærra, er möguleiki að komast í allt að 99°C hita, með borholudælu (mótor uppi). Flér ræð- ur hiti og efnasamsetning vatnsins jafnframt vali á réttri tegund af ryðfríu stáli. Það ber að hafa I huga að djúp- dælumótor hefur alltaf örlítið lægri nýtni en venjulegur mótor. Þetta er vegna þess að stálhimnan sem um- lykur stator-vafningana, er þykkari, sem leiðir af sér töf. Ef þessi kápa væri höfð þynnri, vaeri það á kostnað endingarinnar. Inni i mótornum á milli stators og rótors, er sérstakur vökvi, sem sér um að smyrja mótorlegurnar og kæla mótorinn. Legurnar eru úr keramik og eru þær viðhaldsfríar. Hið mikla vökvamagn tryggir góða kælingu og geriö það kleift að hægt er aö stað- setja mótorinn láréttan og/eða í ognum geymi. Sérstök membra inni í mótornum tekur ugp þenslu á vökv- anum. Að utan er mótorinn algerlega hermetiskt lokaður úr ryðfríu stáli. Jafnframt mótorum þarf start- og öryggisbúnað, sem GRUNDFOS framleiðir einnig. Þar sem mótorar í fiskeldi er startað afar sjaldan, er oft- ast um beint start að ræða. Djúp- dælumótorar eru huldir bæði sjón og heyrn, er því erfitt að meta hvernig mótornum líður. Því er nauðsynlegt að hafa allan nauðsynlegan öryggis- búnað, s.s. útslátt vegna hitastigs, fasajafnvægi, fasaröð, undir- og yfir- álagi Sþennu og straums. Jafnframt þarf að fylgjast með hitastigi, spennu og straum, enn allan slfkan öryggis- búnaö framleiðir GRUNDFOS sér- staklega fyrir djúpdælumótora. Ef notaður er viðurkenndur búnaöur sem passar við dælurnar, má þannig tryggja áfallalausan rekstur og jafn- framt má vekja athygli á að iðgjöld trygginga ráðast gjarnan af þeim öryggisbúnaði sem notaður er. Dæmi eru um að andvirði slíks bún- aðar sparist um leið og tryggt er. ALLT Á SAMA STAÐ. Þess ber að geta að ísleifur Jóns- son h.f. hefur starfað í 66 ár og hefur því langa reynslu við sölu á tækjum og efni til vatnsöflunar. Lögð er áhersla á að finna heildarlausn á hverju verkefni. Benda má á að GRUNDFOS framleiðir flest allar þær tegundir dælna sem notaðar eru í fiskeldi í dag og eru GRUNDFOS dælur þegar til staðar í flestum fisk- eldisfyrirtækjum hérlendis. □ VERKTÆKNI — 25. APRÍL 1988 19

x

Verktækni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.