Verktækni - 25.04.1988, Page 34
VÖRUKYNNING
Þorsteinn Hjaltason, forstjóri hjá Dælum hf.:
ÞRJÁR DÆLUTEGUNDIR
FRÁ DÆLUM HF.
Gríndex —
dælur sem duga
Grindex hefur framleitt grunnvatns-
dælur frá lokum 6. áratugarins og eru
þær nú í notkun i yfir 70 löndum um
heim allan.
Grindex framleiðir eingöngu raf-
drifnar grunnvatnsdælur og hefur sú
sérhæfing gert Grindex að leiðandi
framleiðanda í heiminum i dag á
þessum tegundum dælna.
Grindex línan samanstendur af 30
tegundum dælna með afköst allt að
14.000 l/mín og lyftihæð allt að 100
m.
Upphaflega voru grunnvatnsdæl-
urnar eingöngu hugsaðar sem
drendælur fyrir byggingasvæði og
námur og viö slíkar aðstæður komu
vel í Ijós gæði Grindex dælnanna.
Grindex dælur má í dag finna í
mörgum öðrum mismunandi verk-
efnum eins og iðnaði, landbúnaði,
fiskirækt, skipasmiðjum og áveitum.
Og á hverjum degi koma ný verkefni
i Ijós.
DP-dælur sem
duga
DP-þrepadælur eru úr ryðfriu stáli
og eru fyrirferðalitlar, má nota fyrir
heitt og kalt vatn og hafa vítt afkasta-
svið. Það þýðir að DP-dælurnar má
nota í margs konar verkefni eins og í
iðnaði, áveitu, landbúnaði, fiskirækt,
háþrýstiþvott og við vatnsöflun al-
mennt í íbúöarhús jafnt sem atvinnu-
húsnæði.
Allir slitfletir DP-dælunnar eins og
dæluhjól, dæluhús og öxull eru úr
ryðfríu stáli.
Afköst Dp-dælnanna eru allt að
16,5 l/s og þrýstihæð allt aö 220 m.
Til að halda uppi réttum vatnsþrýst-
ingi á öllum stærðum húsa, hverfum
og bæjum má nota DP-vatnsþrýsti-
sett. DP-vatnsþrýstisett má sérhanna
eftir kröfum hvers og eins (pláss,
staösetning, aðrennslis og frárennslis
o. fl.) og geta þau minnkað orkuþörf
um allt að 30-40<ýo. DP-vatnsþrýsti-
sett hafa afköst allt að 250 l/s og
þrýstihæð allt að 200 m.
Minex Minette Minor
Major
Matador
Grlndex-dalur I ýmsum stœrðum.
Maxi
— NÝJUNG! —
Dælukerfi fyrír
borholur
Kerfislýsing
Vatn úr tanknum fer gegnum síu
(1) og um sogslöngu i þrýstidæluna
(3).
Frá þrýstidælunni (3) fer vatnið um
þrýstislöngu við háan þrýsting inn (
Norpol borholudæluna (C). Vatn úr
borholunni fer gegnum botnsíu (4)
inn í dæluna, þar sem því er dælt
ásamt vatninu frá þrýstidælunni upp i
vatnstankinn (A) um frárennslis-
slönguna.
Hönnun vatnstanksins er háð
gæðum vatnsins í borholunni.
Borholur
Þar sem Norpol borholudælan er
aðeins 60 mm í þvermál er hægt að
bora borholuna með mjög litlum bor.
Minnsta þvermál getur verið 2W'.
Þetta þýðir mjög lítinn kostnað við
borholugerðina bæði hvað varðar
borun og fóöringu.
Afkastageta
Norpol borholudæla getur dælt allt
að 50 l/mín og lyft meira en 700 m.
Einnig eru til 4” Norpol dælur, sem
vinna á sama hátt og afkasta allt að
100 l/min. Afköst eru háð snúnings-
hraða þrýstidælunnar á barminum.
Aflgjafi (B)
Aflgjafinn samanstendur af tvennu:
1. Orkugjafa sem getur verið mann-
afl (hand- eða fót-) rafmagn,
bensin, olia, vindur (vindmylla),
sólarorka o. fl.
22
VERKTÆKNI — 25. APRÍL 1988