Neytendablaðið - 01.02.1977, Blaðsíða 4
4
NEYTENDARÁÐSTEFNAN - NEYTENDARÁÐSTEFNAN ^
- NEYTENDARÁÐSTEFNAN
Landbúnaður
Framhald af bls. 3
útflutningsbætur frá sjónarhóli neyt-
enda.
Fjölbreytni og
valfrelsi
Fjölbreytni neyslunnar hefur verið
takmörkuð og valfrelsi neytenda skert
með innflutningsbönnum og mjög mis-
jöfnum niðurgreiðslum. Þetta hefur
færst í betra horf. Niðurgreiðslur mætti
þó jafna meir og hafa hliðsjón af holl-
ustu. Innflutning matvæla til aukinnar
fjölbreytni mætti skattleggja til að
standa undir útflutningsbótum sem af
því leiddi.
Verð- og
tekjumyndunarkerfi
Verð- og tekjumyndunarkerfí má
haga með ýmsum hætti. Flestir munu
vilja meta tekjuþörf bænda af sanngimi,
en þeir bera einnig atvinnurekstrar-
ábyrgð, þ.á m. á aðlögun að markaðs-
þörfum. Landbúnaðurinn gæti haldið
forgangi að innlendum markaði, hugs-
anlega sjálfdæmi um markaðsverð, með
tiltekinni fjárhæð til niðurgreiðslna og
aðhaldi ríkisvaldsins með innflutninga.
Ef skortur myndast eða verð fer yfir
mörk hófstillingar. í stað fulltrúa stétt-
arfélaga launþega í samningum við land-
búnaðinn gætu komið fulltrúar laun-
þega- og neytendasamtaka og ríkisvalds,
t.d. einn frá hverjum.
- NEYTENDARAÐSTEFNAN -
Því miður eru kaupfélögin ekki
Iengur eins lifandi vettvangur lýð-
ræðislegrar ákvörðunartöku eins og
æskilegt væri. Veldur því að stjórn-
cndur gerast of einráðir og sam-
NEYTENDARAÐSTEFNAN
virkjun félagsmanna hverfur í
skuggann af sterku miðstjórnar-
valdi. Þrátt fyrir það, má það ekki
gleymast að kaupfélögin eða sam-
vinnustefnan hefur unnið stórsigra á
sviði félagshyggju", sagði Iðunn
Gisladóttir frá Selfossi.
Þá sagði hún ennfremur m.a.: Nú er
svo komið í því kaupfélagi sem ég þekki
best að ekki er lengur hlustað eftir rödd
félagsmanns, neytandans, eins og áður
var. Nú ráða frekar sjónarmið gróðans en
félagshyggjunnar.
Félagsmenn fá ekki lengur greiddan
„arð“ eins og áður var. Vöruverð er eins
hátt í kaupfélögum eins og annarsstaðar.
Afsláttarkort fást ekki. Hver er þá hagur
félagsmanna? Við því fást ekki svör.
Kvartað er um að kaupfélagið hafi að-
eins dýrar vörur, svo sem nærföt, skyrtur,
o.fl. Beðið er um meira vöruval.
Svar: Heildsalar sem við verslum við
hafa aðeins þessar vörur. Kaupfélags-
st jórinn beitti sér fyrir því að verslanir hér
Iögðu niður heimsendingar fyrir rúmu
ári. Eg reyndi strax að fá þessu breytt og
ræddi við alla aðila. Tvær verslanir tóku
upp heimsendingar 2 daga í viku. Kaup-
félagið, félag neytenda, hefur ekki tekið
upp heimsendingar.
- NEYTENDARÁÐSTEFNAN
Jafna aðstöðu
neytenda-hvarsem
buið er
á landinu
Hópurinn sem ræddi neytendamál
í drelfbýli taldi að vandi neytenda
væri einkum fólgin í hærra verðlagi
vegna flutningskostnaðar frá inn-
flutnings- eða framleiðslustað vöru
og minna framboði á vöru.
Þjónusta er ýmist dýrari úti á landi eða
hún þrífst ekki. Ohægt er um ýmis konar
menningarneyslu í dreifbýli og liggur í
því mikill aðstöðumunur milli byggða
landsins.
Frumskilyrði væri að rannsaka í hverju
mismunur neytenda í dreifbýli og þétt-
býli væri fólgin og í framhaldi af slíkri
rannsókn þyrfti opinberar aðgerðir á
þeim grundvelli sem rannsókn gæfi tilefni
til.
Niðurstaða hópsins: Ohjákvæmilegt er
að jafna aðstöðumun neytenda í landinu
eftir búsetu, ef nokkurt jafnvægi á að
haldast í byggð.