Neytendablaðið - 01.02.1977, Page 7
7
SIEYTENDARÁÐSTEFNAN - NEYTENDARÁÐSTEFNAN - NEYTENDARÁÐSTEFNAN
fær, úrskurður er felldur um varanlega
örorku hans eða hann deyr, þó ekki lengur
en 52 vikur.
Tryggingaráði er heimilt að ákveða, að
dagpeningar skuli greiddir lengur.
Dagpeningar eru kr. 1.195 á dag fyrir
hvem einstakling og kr. 257 fyrir hvert barn í
framfæri þar með talin börn utan heimilisins
sem hinn slasaði sannanlega greiðir með.
Greiðslur samkvæmt grein þessari mega
ekki fara fram úr 3/4 af vinnutekjum bóta-
þega við þá atvinnu, er hann stundaði, er
slysið varð, og mega ekki, ásamt vinnutekj-
um, nema meiru en upphæð dagpeninga að
viðbættum þriðjungi.
Nú greiðir vinnuveitandi hinum slasaða
laun í slysaforföllum og renna þá dagpen-
ingagreiðslur samkvæmt þessari grein til
vinnuveitandans þann tíma, þó aldrei hærri
greiðsla en sem nemur 3/4 hlutum launanna.
3. Ororka
Ef slys veldur varanlegri örorku, skal
greiða þeim, er fyrir því varð örorkulífeyri,
sem er nú kr. 22.147.-.
Ef örorkan er 50% eða meiri, greiðist hálfur
örorkulífeyrir fyrir 50% örorku, hækkar síðan
um 2% fyrir hvert örorkustig, sem við bætist,
uns örorkan nemur 75%, þá greiðist fullur líf-
eyrir.
Nú er örorkan metin meiri en 50% og skal
þá auk örorkulífeyris greiða lífeyri vegna
maka og barna yngri en 16 ára, sem voru á
framfæri bótaþega, þegar slysið bar að hönd-
um.
Ef örorkan er 75% eða meiri, skal greiða
fullar bætur, en sé örorkutapið minna, lækka
bæturnar um 4% fyrir hver 1%, sem vantar á
75% örorku.
Ef orkutap er minna en 50%, er Trygginga-
stofnuninni heimilt að greiða í einu lagi ör-
orkubætur, sem jafngilda lífeyri hlutaðeig-
anda um tiltekið árabil.
Örorkubætur greiðast ekki, ef orkutapiðer
metið minna en 15%.
4. Dánarbætur
Ef slys veldur dauða innan tveggja ára frá
því er það bar að höndum, skal greiða dánar-
bætur, sem hér segir.
a. Ekkja eða ekkill, sem var samvistum við
hinn látna eða á framfæri hans hljóta bætur
kr. 27.750 á mánuði í 8 ár frá dánardægri hins
látna. Bætur samkvæmt þessum staflið falla
ekki niður, þótt ekkja eða ekkill stofni til hjú-
skapar á ný. Nú andast ekkja eða ekkill, sem
bóta hefur notið skv. ákvæðum þessarar
greinar, áður en bætur hafa verið greiddar að
fullu, og skulu eftirstöðvar bótanna greiddar
að jöfnu börnum hinna látna, ef á lífi eru, ella
dánarbúi hans.
b. Ef ekkja eða ekkill eru orðin 50 ára eða
hafa tapað meiru en 50% af starfsorku sinni,
er slysið bar að höndum, greiðist auk bóta
skv. a-lið lífeyrir til 67 ára aldurs kr. 265.764
á ári miðað við 60 ára aldur og 4% fyrir hvert
1%, sem vantar á 75% örorku. Lífeyrir skv.
þessum staflið fellur niður, ef bótaþegi geng-
ur í hjónaband á ný.
c. Barnalífeyrir kr. 135.996 á ári fyrir hvert
barn.
d. Barn eldra en 16 ára sem var á framfæri
hins látna vegna örorku, þegar slysið bar að
höndum, fær bætur eigi minni en 346.779 kr.
og allt að kr. 1.040.337 eftir því, að hve miklu
leyti það naut stuðnings hins látna við fráfall
hans. Þó greiðast ekki bætur, ef örorka er
minni en 33%. Sama gildir um systkini hins
látna, þegar eins stendur á.
e. Foreldri hlýtur eigi minni bætur en kr.
346.779 og allt að kr. 1.040.337, eftir því, að
hve miklu leyti það naut stuðnings hins látna
við fráfall hans.
Bætur skv. a-, d- og e-liðum skulu eigi vera
lægri en kr. 485.493 fyrir hvert slys. Nú lætur
hinn látni ekki eftir sig aðstandendur, sem
rétt eiga til bóta skv. þessum stafliðum og
skal þá bæta slysið með kr. 485.493, sem
skiptist að jöfnu milli barna hins látna, ef á
lífi eru, en ella til dánarbús hans.
Um fósturböm og fósturforeldra gildir
sama og um börn og foreldri. Tryggingaráð
úrskurðar, hvoru skuli greiða, foreldri eða
fósturforeldri, ef hvort tveggja eru á lífi.
Frá dánarbótum, sem greiddar eru vanda-
mönnum, ber að draga þær örorkubætur, er
greiddar hafa verið í einu lagi.
Upphæð iðgjalda er skipt í áhættuflokka og
ákveðin skv. honum.
Auka ber upplýsingastreymi
frá Tryggingastofnuninni
Þetta fannst umræðuhópurinn sem ræddi
erindi Guðrúnar. Einnig að auka ætti upplýs-
ingar um bótarétt og framgang mála við
bótakröfur. Sérstaklega þarf að taka upp
nánara samstarf við launþegasamtök um
þetta atriði. Brögð eru að því, að trúnaðar-
menn á vinnustöðum eru ekki nógu vel í
stakk búnir til að veita upplýsingar ef slys ber
að höndum. Og þarf fólk oft að hafa óþarfa
erfiði og tímafreka snúninga af því að ekki er
rétt af stað farið í bótamálum.
Fram kom að mikill bagi er oft hjá fólki
hversu seint varanleg örorka fæst metin af
hálfu Tryggingastofnunar ríkisins.
Tölur þær sem nefndar eru í grein
Guðrúnar eru síðan 13. nóvember þegar
ráðstefnan var haldin. Þær hafa því
allar tekið nokkrum breytingum vegna
almennt hækkandi verðlags í landinu.
NEYTENDARÁÐSTEFNAN - NEYTENDARÁÐSTEFNAN - NEYTENDARÁÐSTEFNAN