Neytendablaðið - 01.02.1977, Page 8
8
I
Skinnavara skinnflíkur (leður,
loðskinn og rúskinn) óvönduð
skinnavara og margs konar leð-
urlíki er vaxandi vandamál bæði
fyrir neytendur og hreinsanir
(efnalaugar). í Reykjavík er eng-
in efnalaug sem ábyrgist skinna-
vörur í hreinsun.
Innkaup
Varið ykkur á:
- flíkum sem eru saumaðar úr mörg-
um tegundum af skinnum og spuna-
efnum, því að ólík efni geta þurft
mismunandi hreinsimeðferð og sam-
skeyti ólíkra efna eru ekki slitsterk,
alltaf. Óheppilegasta samseming á leðri
og loðskinni er svínsleður og refaskinn
(loðskinn).
Kaupirðu flík samsetta úr óvenju-
legum efnum ættirðu að fá skriflegt
frá versluninni hvar og hvernig megi
hreinsa flíkina á viðunandi hátt eða
vita hvort verslunin vill e.t.v. sjálf út-
vega hreinsun á flíkinni.
- flíkum sem eru sútaðar og litaðar dökk-
brúnar, svartar eða í öðrum dökkum lit
og fóðraðar með ljósu fóðri. I hreinsun
rennur dökki liturinn og litar frá sér.
Einnig gemr hann smitað frá sér þurr
eða ef flíkin vöknar. Yfírleitt er óheppi-
legt að hafa Ijóst fóður í dökkum flíkum.
- að ljóslitað leður rúskinn eða loðskinn
upplitast fremur í birtu en dökkir litir.
reynslan hefur sýnt að verst halda sér
ljósblá, ljósgræn og ljósrauð blæbrigði.
Hárauðir litir eru vandmeðfarnir í
hreinsun.
- að svínsleður og klofíð leður dregur til
sín óhreinindi og er erfitt að hreinsa, en
svínsleður gemr verið mjög sterkt.
- að lýstar eða bleikar flíkur úr gæru eða
öðru loðskinni með grófum og mislöng-
um hárum er mjög erfítt að halda hrein-
um og hreinsa.
HÆTTULEGAR
MERKINGAR
ÁMOKKAKÁPUM
- ódýrum leðurflíkum úr suðurlöndum,
ósútaðar húðir eru sagðar á sambærilegu
verði á heimsmarkaði. Leðurflíkur í suð-
urlöndum eru ódýrari en í norðlægari
löndum vegna lægri vinnulauna og sút-
unaraðferða sem geta verið mjög mis-