Neytendablaðið - 01.12.1992, Side 5
Jóhannes Gunnarsson í viðtali við Neytendablaðið: Við eigum vaxtarmöguleika og verkefnin krefjast þess
að við höldum áfram að eflast.
Leysum úr brýnni þörf
Margt hefur breyst og ýmislegt áunnist í neytendamálum á undan-
förnum árum og áratugum. Starfsemi Neytendasamtakanna hefur
eflst og margir telja óraunhæft aö halda aö samtökin geti haldið áfram
aö vaxa á næstu árum. Ég er ekki sammála því. Ég minni á aö enn
hafa tvö af hverjum þremur heimila landsins ekki séö ástæöu til aö
ganga til liðs viö okkur. Einnig er Ijóst aö ríkisvaldið hefur vanrækt
þetta starf. Ég leyfi mér aö vona aö úr þessu rætist og trúi aö svo
verði. Verkefnin eru aö minnsta kosti svg mörg og mikilvæg aö Neyt-
endasamtökin beinlínis veröa aö vaxa. Ég sé ekki fyrir mér neina
stöönun í þessu starfi. Viö eigum mikið verk fyrir höndum sem miðar
aö því aö bæta aðstæður neytenda á sem flestum sviðum. Þar leysum
viö úr brýnni þörf.
Þetta segir Jóhannes Gunnarsson í sam-
tali við Neytendablaðið í tilefni af nýaf-
stöðnu þingi Neytendasamtakanna. Jó-
hannes var endurkjörinn formaður Neyt-
endasamtakanna með lófaklappi á þing-
inu. Með því hefst fimmta kjörtímabil
hans í embætti formanns, árin verða orð-
in tíu þegar nýhöfnu tímabili lýkur. Hann
hefur verið í fararbroddi á miklum upp-
gangstíma í sögu samtakanna og er fyrir
löngu orðinn andlit þeirra.
Hagsmunagæslumaður neytenda, ekk-
ert óviðkomandi. Afskipti hans af neyt-
endamálum eiga sér langa sögu.
■ Neytendamál?
Reyndar vefst fyrir neytendafrömuðinum
strax í upphafi viðtals að skilgreina hug-
takið neytendamál sem hann hefur sífellt
á vörunum. Byrjar að tala um sögnina að
neyta og fær sér vænan bita af unaðslegri
súkkulaðiköku með rjóma og jarðarberj-
um sem okkur er borin á veitingahúsi í
borginni.
Sötrar kaffí með mjólk og sykri. Hann
lítur efins á blaðamanninn. Vefst tunga
um tönn eitt andartak. Afgreiðir málið
loks svona:
- Hin opinbera skilgreining er sú að
neytendamál séu þau mál sem snúast um
kaup á vöru og þjónustu til einkanota.
Þegar löggjafinn skilgreinir hugtakið
hugsar hann fyrst og fremst um viðskipti
og málið snýst vissulega um þau. En
sviðið er vítt og við skilgreinum víðar en
löggjafinn. Raunar eru neytendamálin
svo fjölbreytileg að þeir sem starfa í
málaflokknum lenda eilíft í því að af-
marka sig. Þessi spurning er sífellt á vör-
um okkar án þess að við getum alltaf
veitt einhlítt svar. Okkar svið spannar allt
frá smæstu kaupum upp í mikilvægustu
velferðarmál. Við erum að fjalla um allt
frá þvotti á fatnaði upp í það sem skiptir
miklu fyrir heilsu fólks og hamingju. Við
höfum afskipti af málum sem snúast um
allt frá óverulegum upphæðum upp í
fjárhæðir sem skipta sköpum fyrir af-
komu fjölskyldna, segir formaðurinn.
■ Sjö konur
Aðdragandi þess að Jóhannes situr nú
undir spumingum Neytendablaðsins
hófst í Borgamesi fyrir 14 ámm. Þar
hreifst alskeggjaður róttæklingur af neyt-
endamálunum, með afdrifaríkum afleið-
ingum fyrir hann og Neytendasamtökin.-
Þettagerðist fyrir tilviljun, segir hann.
- Eg var mjólkurfræðingur í Borgar-
nesi árið 1978 og framleiddi osta oní
neytendur. Ég hafði þá mikinn áhuga á
stjómmálum, en hafði ekki velt neyt-
endamálum sérstaklega fyrir mér. Bróðir
minn hafði reyndar verið ritstjóri Neyt-
endablaðsins og ég hafði lesið blaðið. En
það var allt og sumt.
Þá gerðist það að sjö konur í Borgar-
nesi skrifuðu Neytendasamtökunum og
5
NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1992