Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.1992, Side 9

Neytendablaðið - 01.12.1992, Side 9
Lyktarlaus hvítlaukur Ósannaðar staðhæfingar Verölagsstofnun hefur aö undanförnu fjallaö um kæru vegna fullyrðinga sem komiö hafa fram um framleiðslu, eiginleika og verö lyktarlauss hvít- lauks af gerðinni Kyolic. Innflytjandi vörunnar hefur í auglýsingum sínum og bæklingum sett fram ýmsar fullyröingar sem Verðlagsstofnun telur aö séu ósannaðar og brjóti í bága viö lög. Umfjöllun stofn- unarinnar um málið er þó ekki aö fullu lokiö. Annar innflytjandi hvítlauks lagöi kæruna fram. Undanfarin misseri hefur far- ið fram talsverð umræða um áhrif hvítlauks á heilsu manna og hafa innflytjendur svo- nefnds lyktarlauss hvrtlauks tekið virkan þátt í umræðunni. Þá hafa þeir verið iðnir við að auglýsa vöru sína. Hefð fyrir neyslu hvrtlauks er ekki mikil hér landi, en víða erlendis hefur hvítlaukur um aldir verið ómissandi þátt- ur í matarmenningunni. Jafn- framt hafa menn lengi haft þá trú að hvítlaukur sé góð vöm gegn ýmsum kvillum. Munu fyrstu heimildir um notkun hvítlauks sem krydd- og lækningajurtar vera frá 2600- 2100 fyrir Krist. Einkum er talið að neysla hvítlauks geti haft jákvæð áhrif á blóðþrýsting. Talið er að neysla hans hafi góð áhrif á blóðrás og hafi hemjandi áhrif á ýmis efni sem geta valdið krabbameini. Einnig hafa komið fram fullyrðingar um að hvítlaukur auki kyn- hvöt manna og að hann sé bakteríudrepandi. I grein eftir Stefan Niclas Stefánsson lyfjafræðing í Morgunblaðinu fyrr á árinu (22. febrúar) kem- ur fram að vísindamenn sem þekkja til rannsókna á hvít- lauk séu þeirrar skoðunar að best sé að borða hvítlaukinn sjálfan, þar eð hvítlaukssam- setningar innihaldi sjaldnast öll efni hvítlauksins. Hvítlaukur inniheldur fjöl- mörg efni og efnasambönd. Eitt þeirra, allisín, veldur hinni sterku lykt sem fælir suma frá neyslu hvítlauksins. Á henni byggja menn sölu svonefnds lyktarlauss hvít- lauks, oftast í töfluformi. Nokkrar tegundir af þessari vöm eru á markaði hér á landi. Eftir að Verðlagsstofnun barst kæra frá samkeppnisað- ila Kyolic gerði stofnunin at- hugasemdir við samtals tíu fullyrðingar sem innflytjand- inn hefur sett fram við mark- aðssetningu á vörunni. Þeirra á meðal eru fullyrðingar um að Kyolic sé eini lyktarlausi hvítlaukurinn, að hann sé lang ódýrasti hvítlaukurinn, að hann sé mest seldi hvítlaukur veraldar og að ekki finnist „samjöfnuður undir sólinni - gæði, heilnæmi, hollusta.”“ Innflytjandinn hefur verið beðinn um að nota fullyrðing- amar tíu ekki í auglýsingum sínum framvegis, né aðrar sem gefa það sama eða sam- bærilegt til kynna. Ennfremur telur Verðlagsstofnun að inn- flytjandinn hafi ekki getað sýnt fram á vísindalega stað- festingu þess að Kyolic hafi meiri virkni en hráhvítlaukur. NEYTENDASTARF ER ÍALLRA ÞÁGU Aðsetur hf., Eiöistorgi 11 Bernharð Laxdal, Laugavegi 63 Bifreiöaverkstæöið Vélvirkinn sf., Dugguvogi 23 Bílapartasala Garöabæjar sf., Lyngási 17 Björgunarfélagið Vaka hf., Eldshöfða 6 Body Shop, Laugavegi 51 og Kringlunni Bókabúðin Grafarvogi, Hverafold 1-3 Bókabúð Steinars - Oröabókaútgáfan, Bergstaðastræti 7 Blómaverkstæði Binna, Skólavörðustíg 12 Byggðaverk, Reykjavíkurvegi 60 Birgðaverslun og sælkeraver- slun F&A, Fosshálsi 27 og Borgarkringlunni Dúx og Gegnum glerið, Faxafeni 7 Efnalaugin Perlan, Langholtsvegi 113 Eiízubúðin, Skipholti 5 Eva/Gallerí, Laugavegi 42 E.P. stigarhf., Vesturvör 11 Fagtún hf., Brautarholti 6 Fasteignasalan Séreign, Skólavörðustíg 38a Freemans hf., Bæjarhrauni 14 Gallabuxnabúðin, Laugavegi 64 Gallerí Inga Elín, Álafossvegi 18, Mosfellsbæ G. Hannesson Co., Borgartúni 23 Gilbert Ó. Guðjónsson úrsmiður, Laugavegi 62 Gleraugnaverslunin í Mjódd, Álfabakka 14 Goðsögn hf., Rauðarárstíg 14 Gólflagnir, Smiðjuvegi 72 G.P. húsgögn, Bæjarhrauni 12 Grímur - Ijósmyndaver, Faxafeni 10 Gæðasalat, Fljótaseli 24 Hanz, Kringlunni 8-12 Harðviðarval hf., Krókhálsi 4 Héðinn hf., verslun, Seljavegi 2 Hjólagallerí, Suðurgötu 3a Hljóðfæraverslun Poul Bernburg hf., Rauðarárstíg 16 Verslunin Hljómbær hf., Hverfisgötu 103 Holtakjúklingur, Urðarholti 6, Mosfellsbæ Hringás hf., Smiðjuvegi 4a Hrói höttur, Hringbraut 119 Hurðaiðjan HIKÓ, Kársnesbraut 98 Iðja, félag verksmiðjufólks, Skólavörðustíg 16 löntölvutækni hf., Reykjavíkurvegi 72 I. Guðmundsson & Co. hf., Pverholti 18 Innkaupasamband bakara hf., Suðurlandsbraut 20 Innrömmun Guömundar Kristinssonar, Ánanaustum 15 Innrömmun og hannyrðir - skóverslun, Pönglabakka 6 íslenskir aðalverktakar, Kefla víkurflug velli Jón Hjartarson & Co.Jryggvag. Kaffiboð - espressokaffivélar, Aðalstræti 9 Karl K. Karlsson hf., Skúlagötu 4 Kasmír, Faxafeni 5 Kassagerð Reykjavíkur hf., Kleppsvegi 33 Kápan, Laugavegi 66 Kennarasamband íslands, Kennarahúsinu v/Laufásveg Kistan sf., Laugavegi 99 Kjötsalan hf., Smiðjuvegi 10 Klaki, Hafnarbraut 25 Klettaútgáfan hf. - bókaútgáfa, Ánanaustum 15 Klippótek, Eddufelli 2 Kosta Boda, Kringlunni 8-12 Kr. Porvaldsson & Co., Sundaborg 9 Kristinn Sveinsson, Vagnhöfða 27 NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1992 9

x

Neytendablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.