Neytendablaðið - 01.12.1992, Side 11
Neytendasamtökin
Tryggingafélögin á hálum ís
Nú er um það bil ár um liðið síðan
tryggingafélögin settu nýjar reglur
um uppgjör bóta vegna líkamstjóns, sem
fela í sér mikla afturför frá ríkjandi dóm-
venju fyrir tjónþola. Reglur þessar settu
tryggingafélögin án nokkurs samráðs við
til dæmis samtök neytenda eða lögmenn,
sem gæta réttar skjólstæðinga sinna
gagnvart félögunum.
Helsta breytingin vegna nýju regln-
anna er sú að 15 prósent örorka og þar
undir er talin óveruleg og því ekki bóta-
skyld. Ekkert mark er tekið á útreikning-
um tryggingastærðfræðingá varðandi
tekjutap vegna örorku af þessari stærð-
argráðu. Auk þess á tjónþoli nú að bíða í
þrjú ár með sannanlega skerðingu á laun-
um. Það þýðir að hann verður að sanna
að hann hafi verið tekjulaus frá því slysið
varð og má ekki vinna neitt, ella fær
hann engar bætur. Samkvæmt hinum
nýju reglum tryggingafélaganna ber
heldur ekki að greiða miskabætur.
Nýju reglumar fela í sér verulega
skerðingu á gildandi rétti. Samkvæmt
þeim er bótagreiðslan lækkuð um 50 pró-
sent vegna skattleysis og hagræðis tjón-
þola af því að fá greiðsluna alla í einu í
stað þess að bætumar verði greiddar á
lengri tíma (eingreiðsluhagræði). Enn
fremur hefur framlag í lífeyrissjóð verið
lækkað um 50 prósent.
Þetta er í algjörri andstöðu við gild-
• •••••
Þuríður Jónsdóttir
andi rétt í landinu. Því er ekki úr vegi að
líta á tvo nýlega dóma hæstaréttar. Þeir
ganga þvert á hinar nýju reglur trygg-
ingafélaganna og verður ekki séð að þeir
feli í sér nokkrar breytingar á eldri dóm-
venju.
I dómi hæstaréltar frá 20. febrúar
1992 var fjallað um mál manns sem
hafði misst framan af fingri í vinnuslysi.
I niðurstöðum dómsins kemur fram að
vegna skattleysis og eingreiðsluhagræðis
eru útreikningar tryggingastærðfræðings
lækkaðir um 25 prósent, ekki 50 prósent
eins og kveðið er á um í reglum trygg-
ingafélaganna. Þá vom manninum
dæmdar 300 þúsund krónur í miskabæt-
ur, auk vaxta frá þeim degi er slysið
varð, þrátt fyrir að reglur tryggingafélag-
anna kveði á um að ekki skuli greiddar
miskabætur.
í dómi hæstaréttar frá 6. desember
1991 var fjallað um mál barns sem
skaddaðist á auga og missti sjón. í niður-
stöðum dómsins kemur fram að útreikn-
ingar tryggingasérfræðings eru lækkaðir
um 26,1 prósent vegna skattleysis og ein-
greiðsluhagræðis, ekki 50 prósent eins og
reglur tryggingafélaganna gera ráð fyrir.
Stúlkunni vom einnig dæmdar 200 þús-
und krónur í miskabætur, auk vaxta.
Báðir dómamir ganga sem sagt þvert á
reglur tryggingafélaganna. Því vil ég
vara tjónþola við því að afsala sér rétti
sínum samkvæmt gildandi rétti, enda þótt
freistandi geti verið fyrir marga að fá
greiðsluna strax.
Þuríður er lögmaður og varaformaður
Neytendasam takanna.
NEYTENDAFÉLÖGIN - / ÞÍNA ÞÁGU
Neytendafélag
höfuöborgarsvæöisins:
Skúlagötu 26,101 Reykjavík,
opið virka daga kl. 9-16, s. 62
50 00. Formaður Jón Magn-
ússon. Starfsmenn Elfa Björk
Benediktsdóttir og Sesselja
Ásgeirsdóttir.
Neytendafélag Akraness:
Formaður Asdís Ragnarsdótt-
ir, Furugrund 17, s. 11932.
Neytendafélag Borgarfjaröar:
Formaður Ragnheiður Jó-
hannsdóttir, Fálkakletti 10,
Borgarnesi, s. 71713. Viötals-
tímar í Snorrabúð á þriðjudög-
um kl. 17-18, s. 71185.
Neytendafélag Grundarfjaröar:
Formaður Matthildur Guð-
mundsdóttir, Grundargötu 23,
s. 86715.
Neytendafélag Stykkishólms:
Formaður Hrafnhildur Hall-
varðsdóttir, Tjarnarási 17, s.
81290.
Neytendafélag Dalasýslu:
Formaður Guðrún Konný
Pálmadóttir, Lækjarhvammi 9,
Búðardal, s. 41190.
Neytendafélag ísafjaröar
og nágrennis:
Formaöur Aðalheiður Steins-
dóttir, Tangagötu 15, 400 ísa-
firöi, s. 94-4141.
Neytendafélag Skagafjaröar:
Formaður Birna Guðjónsdótt-
ir, Öldustíg 4, Sauðárkróki,
s. 35254.
Neytendafélag Akureyrar
og nágrennis:
Glerárgötu 20, pósthólf 825,
Akureyri. Opiö kl. 9-13 virka
daga, símatími kl. 11 -13, s.
11336, fax 11332. Formaður
Vilhjálmur I. Árnason.
Neytendafélag Húsavíkur:
Formaöur Pálína Hjartardóttir,
Garðarsbraut 2, s. 42082.
Neytendafélag Seyöisfjaröar:
Formaður Guöný Jónsdóttir,
Suðurgötu 2, s. 21444.
Neytendafélag Noröfjaröar:
Formaður Elma Guömunds-
dóttir, Mýrargötu 29, Nes-
kaupstað, s. 71532.
Neytendafélag
Fljótsdalshéraös:
Formaður Oddrún Sigurðar-
dóttir, Laufási 12, Egilsstöð-
um, s. 11183.
Neytendafélag
Austur-Skaftafellssýslu:
Formaður Herdís Tryggva-
dóttir, sími 81781. Starfsmað-
ur Hjördís Þóra Sigurþórsdótt-
ir, opiö 13.00-17.00 virka
daga, sími 81501.
Neytendafélag Suöurlands:
Eyrarvegi 29, Selfossi. Opið
þriðjudaga og fimmtudaga kl.
10-12, s. 22970. Formaður
Valgerður Fried, Hjarðarholti
6, s. 21566. Starfsmaður Hall-
dóra Jónsdóttir.
Neytendafélag Vestmannaeyja:
Formaður Ester Ólafsdóttir,
Áshamri 12, s.12573.
Neytendafélag Suöurnesja:
Hafnargötu 90, pósthólf 315,
Keflavík. Opið þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 13-16, s.
15234. Formaður Drífa Sig-
fúsdóttir, Hamragarði 2, Kefla-
vík, s. 13764. Starfsmaöur
Guðbjörg Ásgeirsdóttir.
Stjórn Neytenda-
samtakanna:
Jóhannes Gunnarsson,
formaöur
Þuríöur Jónsdóttir,
varaformaður
Ingveldur Fjeldsted,
gjaldkeri
Raggý Guöjónsdóttir,
ritari
Aöalheiöur Steinsdóttir
Drífa Sigfúsdóttir
Gissur Pétursson
Guðrún Jónsdóttir
Möröur Árnason
Steindór Karvelsson
Vilhjálmur I. Árnason
Þorlákur H. Heigason
Neytendasamtökin eru landssamtök neytendafélaga sem eru starf-
andi víöa um land. Félögin veita neytendum á starfssvæöum sínum
aöstoö ef óskað er. Einnig er hægt að leita aðstoðar á skrifstofu
Neytendasamtakanna aö Skúiagötu 26, 3. hæð, Reykjavík. Opið
virka daga kl.9-16, sími 62 50 00.
NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1992
11