Neytendablaðið - 01.12.1992, Síða 12
Kvörtunarþjónustan
Afdrifarík bílakaup
Framanaf nýiiönu sumri
haföi ég vart friö fyrir lög-
fræöingum sem sí og æ
voru hringjandi meö hót-
anir um aö láta hiröa af
mér bílinn. Komu raunar
heim til mín í eitt skipti.
Af einhverjum ástæöum
hafa þeir þó ekki látiö
veröa af því.
Svo farast öldruðum manni
orð um afleiðingar bílavið-
skipta sem hann gerði fyrir
um það bil einu ári. Hann
keypti og staðgreiddi bíl á
bílasölu og fékk afsal.
Hann hugði að fyrri eigandi
myndi tilkynna eigenda-
skipti og uggði ekki að sér.
í byrjun maí á þessu ári
komst hann hins vegar að
því að svikist hafði verið
um að tilkynna eigenda-
skiptin.
Bíllinn var því áfram á
nafni fyrri eiganda. Þá þeg-
ar hafði verið gert fjárnám í
bifreiðinni vegna skuldar
fyrri eiganda. Skuldin var til
komin vegna kaupa á tíma-
riti. Upphaflega nam hún
28 þúsundum króna, en er
nú komin á annað hundrað
þúsunda með áföllnum
kostnaði og vöxtum.
Maðurinn sneri sértil
kvörtunarþjónustu Neyt-
endafélags Suðurnesja,
sem hefur lagt talsverða
vinnu í að reyna að greiða
úr flækjunni, án árangurs.
Fyrri eigandi neitar að
borga skuldina. Bæjarfógeti
segist ekkert geta gert í
málinu. Lögmenn segja
ekkert hægt að gera. Hið
fræga innheimtufyrirtæki
Innheimtur og ráðgjöf seg-
ist ekkert vilja slá af kröf-
unni. Ekki hefur náðst í
kröfueigandann sjálfan. Af
tvennu illu er skárra að
hinn ólánsami bílkaupandi
greiði skuldina fremur en
að missa bílinn í hendur
kröfuaðilum.
„Ég átti mér auðvitað
einskis ills von, enda með
ólíkindum að slíkt geti
gerst. Af þessu hefi ég haft
umtalsverð óþægindi og
nokkurn kostnað. Auk þess
get ég ekki selt bílinn, með-
an fyrrgreind eignabönd
hvíla á honurn," segir mað-
urinn í bréfi til Neytendafé-
lags Suðurnesja.
Fókus hefur enn ekki boðið viðunandi bœtur vegna myndavélar
sem týndist.
Fókusmálið enn óleyst
Verslunin Fókus í Lækj-
argötu hefur enn ekki séö
ástæöu til aö leysa kvört-
unarmál á hendur versl-
uninni sem sagt var frá í
síðasta tölublaöi. Vegna
þessa vill kvörtunarþjón-
usta Neytendasamtak-
anna ítreka aö hún getur
ekki mælt meö viöskipt-
um viö verslunina.
Skjólstæðingur kvörtunar-
þjónustunnar kom með
myndavél til viðgerðar í
Fókus í upphafi árs og var
tjáð að hann gæti sótt vél-
ina að nokkrum dögum
liðnum. Svo reyndist þó
ekki vera. Myndavélin týnd-
ist og nú, nær ári síðar,
hefur maðurinn enga
myndavél fengið í hendurn-
ar. Verslunin hefur ekki vilj-
að bjóða viðunandi bætur,
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
kvörtunarþjón-
ustunnar til að
leysa málið far-
sællega.
Rétt er að
taka fram í þessu sam-
bandi að yfirleitt gengur vel
að knýja fram réttmæta
lausn á deilumálum neyt-
enda við eigendur versl-
ana, en Fókusmálið er eitt
af fáum dæmum um hið
gagnstæða.
STENDUR NEYSLAN í PÉR?
Leiðbeininga- og kvörtunarþjónusta
Neytendasamtakanna er opin virka daga kl. 9-4.
Sími 62 50 00
■ Má skila?
Nú þegar jólainnkaupin
eru í algleymingi er rétt
að minna á þá reynslu
undanfarinna ára að
mörgum hefur reynst
erfitt að fá vöru skilað að
jólahátíðinni lokinni.
Neytendur hafa engan
lögbundinn skilarétt á
ógallaðri vöru, en sú hefð
hefur þó myndast í flest-
um verslunum að taka við
vörunni aftur sé þess
óskað og að vissum skil-
yrðum uppfylltum. Mikil-
vægt er að kynna sér
skilaskilmála verslana fyr-
irfram til þess að komast
hjá óþægindum síðar.
Best er vitaskuld að fá
skriflega staðfestingu
verslunar á því að skila
megi vörunni síðar og þá
með hvaða skilmálum,
innan hvaða tímamarka
og svo framvegis.
Margar verslanir hafa
fastmótaðar reglur um
skil á ógallaðri vöru, en
svo er alls ekki um allar
verslanir. Um skil á göll-
uðum varningi gilda
ákvæði kaupalaga, sem
áður hafa verið kynnt hér
í blaðinu.
■ Slæm þjónusta
Kona í Ólafsvík sneri sér
til kvörtunarþjónustunnar
vegna undarlegrar
reynslu af viðskiptahátt-
um verslunarinnar Rocký
í Ólafsvík. Konan keypti
þar skó á dóttur sína. Inn-
an skamms uppgötvaði
hún að skórnir voru sinn
af hvorri stærð. Konan
bar vandamálið upp við ,
eiganda verslunarinnar. í
stað þess að leiðrétta
málið með bros á vör,
eins og flestir myndu
gera, brást eigandinn
hinn versti við og varð
viðskiptavinurinn að yfir-
gefa verslunina án þess
að hafa fengið úrlausn
sinna mála. Konan sneri
sér þá til kvörtunarþjón-
ustunnar, sem hafði sam-
band við eiganda Rocký.
Viðbrögð eigandans voru
þau sömu; hann vildi ekk-
ert gera og taldi málið
Neytendasamtökunum
einfaldlega óviðkomandi!
Málið eróleyst.
STARFSMENN:
Elfa Björk Benediktsdóttir
og Sesselja Ásgeirsdóttir
12
NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1992