Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.1992, Qupperneq 15

Neytendablaðið - 01.12.1992, Qupperneq 15
Neytendur í Svíþjóð Að upplýsa neytendur Fyrirhuguö aöild aö evrópsku efnahagssvæði og hugsanlega Evrópu- bandalaginu er mikil áskorun til okkar sem eigum aö upplýsa neytendur. Neytendur þurfa aö vita hvort aðstæður þeirra veröa betri eöa lakari á hinum ýmsu sviöum, án þess aö hægt sé aö gera þá kröfu aö hver og einn þekki smáatriði málsins, segir Gudrun Hjelte, ritstjóri sænska neytendablaösins Rád och Rön, í samtali viö Neytendablaðiö. Rád och Rön er gefið út af Konsumentverket og kemur út mánaðarlega. Blaðið kemur að jafnaði út í tæplega tvö hundruð þúsund eintökum og er aðallega selt í áskrift. Gudrun Hjelte hefur langa reynslu af blaðamennsku. Undanfarin 35 ár hefur hún starfað á dagblöðum og tíma- ritum, var meðal annars leið- arahöfundur í Aftonbladet um skeið. Þegar blaðamaður Neytendablaðsins hittir hinn sænska kollega sinn liggur á borði hennar ilmandi ferskt eintak af Rád och Rön þar sem meðal annars er að finna grein um konur í EB. Greinin hefur vakið mikla athygli, en áberandi hefur verið hve mik- ið Rád och Rön hefur fjallað um fyrirhugaða aðild Svíþjóð- ar að EES og síðar EB. Meðal annars hefur blaðið birt greinaflokk um fjölskyldur í sex EB-löndum. Þar hafa blaðamenn reynt að grafast fyrir um aðstæður og daglegt iíf þessa fólks, tekjur og útgjöld og þess hátt- ar. ■ Lesendur vilja vita - Við fáum símtöl frá lesend- um sem hljóða eitthvað á þessa leið: “Getið þið ekki skrifað eitthvað um þetta með EB. Við skiljum bara ekki bofs í því.” Við höfum auð- vitað hugsað okkur að halda áfram að fjalla um EES og EB. Við þurfum að fjalla um mikilvæga hluti eins og staðla og þess háttar, segir Hjelte. Hún segist telja að Svíar séu almennt frekar illa upp- lýstir um þær breytingar sem verða vegna aðildarinnar að EES. - Hér er enginn skortur á upplýsingum, en erfitt getur reynst að ná til fólks. Mér finnst umræðan fara fyrir ofan garð og neðan hjá flestum. Mörgum fallast einfaldlega hendur vegna þess hve viða- mikið málið er. En þeir sem lesa Rád och Rön eiga að fá talsverðar upplýsingar um þessi mál. Það er brýnt að við fylgjumst vel með, segir Hjelte. Hún bendir á að Svíar eigi eftir að greiða atkvæði um að- ild að Evrópubandalaginu, en um þessar mundir virðist þjóðin frekar andvíg aðild. Þó er ljóst að Svíar verða með í EES. - Ég held það sé ljóst að hagur neytenda muni ekki versna vegna aðildar okkar að EES. Ég held að reynsla Dana sýni okkur það. A hinn bóg- inn efast ég um að ýmsar þær breytingar sem rætt er um gangi eftir. Ég hef til dæmis efasemdir um að vöruúrval muni aukast svo mjög og að verðlag muni lækka til muna. En það er ljóst að það verður ekki auðveldara að vera neyt- andi, segir hún. ■ Áhugi fjölmiðla Áhugi fjölmiðla er misjafn- lega mikill, en Hjelte telur hann vera óvenjulega mikinn um þessar mundir. - Mjög mikilvægt er að yf- irmenn fjölmiðla hafi eitthvert vit á neytendamálum. Sumir halda enn að þau snúist bara um potta og pönnur. Ég er Gudrun Hjelte, ritstjóri Rád och Rön: Hlutlœgni er okkur mikilvceg, en það þýðir auðvitað ekki að við getum ekki tekið afstöðu. Við erum með neytendum í liði. Mynd: Garðar. ekki frá því að fjölmiðlar sýni neytendamálum meiri áhuga nú en oft áður og held það sé fyrst og fremst vegna hins erf- iða efnahagsástands. Fjármál heimilanna eru í brennidepli. Þegar maður flettir göml- um blöðum sér maður að sömu málin koma upp aftur og aftur. Við erum að fjalla um mat, verð á mat, leiðir til að spara, um tæki sem verða betri og betri, hættuleg leik- föng, þjónustu banka sem maður botnar aldrei í, fjármál heimilanna. Þessi mál koma aftur og aftur til umfjöllunar. Umhverfismálin voru til um- ræðu í byrjun 8. áratugarins, hurfu um skeið, en eru nú komin aftur. ■ Tökum afstöðu - Stefna okkar hjá Rád och Rön er að fjalla á einfaldan og meðtækilegan en vandaðan hátt um neytendamál. Við leggjum mikið upp úr því að kannanir sem birtast í blaðinu séu nákvæmar og ítarlegar. Kannanimar em dýrar, en þær verða að vera áreiðanlegar og trúverðugar. Hlutlægni er okkur mikilvæg, en það þýðir auðvitað ekki að við getum ekki tekið afstöðu. Við erum með neytendum í liði. Okkar hlutverk er að sýna neytend- um fram á hvernig málin liggja, en þeir verða auðvitað að velja sjálfir, segir Hjelte. NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1992 15

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.