Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 16

Neytendablaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 16
Þing Neytendasamtakanna • Hár flutningskostnaöur. • Háir óbeinir skattar. • Skortur á samkeppni. • Há álagning. • Óhagstæö innkaup vegna smæöar markaöarins. • Langur opnunartími verslana. • Mikill kostnaöur viö verslun vegna offjárfestingar og langs opnunartíma. Ofangreind atriði voru öll nefnd til skýringar á dýrtíð- inni á íslandi á fundi Neyt- endasamtakanna um vöruverð á íslandi. Fundurinn var haldinn í vöru. I öðru lagi sagði Einar að óbeinir skattar sem legðust á vöru og þjónustu væru mun hærri hér á landi en í flestum öðrum Evrópuríkjum. Dýrtíðin tengslum við þing samtak- anna undir yfirskriftinni: Hvers vegna er verðlag svo hátt á Islandi? Er það vegna fákeppni eða lágmarkaðrar samkeppni, aðgerða stjórn- valda, samtaka söluaðila, óhagstæðra innkaupa eða ein- hvers annars? Svar frummælenda á fund- inum var í raun: Vegna alls þessa. Um leið voru tillögur þeirra til úrbóta þær að ná niður flutningskostnaði, draga úr óbeinni skattheimtu ríkis- ins, að örva samkeppni, að lækka álagningu og að freista þess að ná hagstæðari inn- kaupum. Einar Sveinsson, formaður Verslunarráðs íslands, taldi yfirskrift fundarins ekki óeðli- lega, einkum í Ijósi nýlegrar verðkönnunar Verðlagsstofn- unar, þar sem Reykjavík kom afleitlega út úr samanburði við sjö aðrar evrópskar borgir. Einar tiltók þrjár meginorsak- ir hins háa verðlags á íslandi. í fyrsta lagi nefndi hann flutningskostnað vegna fjar- lægðar frá mörkuðum og smæð markaðarins. I þessu sambandi vitnaði hann í þau orð framkvæmdastjóra Hag- kaupa að farmgjöld næmu 10- 15 prósent af verði innfluttrar Loks nefndi Einar skort á samkeppni, sem að hluta til mætti skýra með smæð mark- aðarins. Hann taldi hagræð- ingu og samkeppni lykilorð í umræðunni um lækkun vöru- verðs hér á landi og sagði að hægt væri að ná fram hagræð- ingu með ýmsu móti. Jafn- framt taldi hann að sam- keppni vegna EES myndi leiða til lækkunar vöruverðs. Kristján Jóhannsson, lekt- or við viðskipta- og hagfræði- deild Háskóla Islands, gerði verð á matvörum að umtals- efni sínu og þá einkum land- búnaðarvörum. Kristján vitn- aði í niðurstöður viðamikillar athugunar sem unnin var á vegum Hagfræðistofnunar H.I. fyrir neytendanefnd nor- rænu ráðherranefndarinnar. Hann benti á að matvörur næmu um 20 hundraðshlutum af útgjöldum heimilanna, en þó mun meira hjá þeim tekju- lægstu. Því væri mikilvægt að ná verði á þessum vörum nið- ur. Samkvæmt niðurstöðum könnunar Hagfræðistofnunar mætti lækka heildarútgjöld heimilanna um sjö prósent og heildarútgjöld til matvæla- kaupa um rúm 40 prósent með því að gefa innflutning landbúnaðarvara frjálsan og 16 á íslandi afnema allar stuðnings- og vemdaraðgerðir stjórnvalda hvað varðar landbúnaðarvör- ur. Svar Kristjáns við spum- ingu fundarins var því á þessa leið: Hvað varðar matvömr felst svarið í þeirri staðreynd að einstakri atvinnugrein hef- ur tekist að halda uppi verð- lagi með hjálp stjómvalda, til verulegs óhagræðis fyrir stór- an meirihluta þjóðarinnar. „Verslunin stendur undir dýrum fjárfestingum og háum fjármagnskostnaði. Við ger- um þær kröfur til verslunar- innar að hér sé ekki minna úr- val en í helstu verslunarhverf- um stórborganna og opnunar- tíminn hefur verið að lengjast, allt til að þóknast okkur neyt- endum. Verslunin eykst ekki með lengri opnunartíma og við gerum okkur grein fyrir því, að það erum við sem borgum fyrir allan lúxusinn," sagði María E. Ingvadóttir, sem lét af embætti varafor- manns Neytendasamtakanna á þinginu. María taldi unnt að knýja fram lækkun verðlags með hagræðingu, hagstæðari inn- kaupum, lægri álagningu og lægri virðisaukaskatti. Þessar aðgerðir myndu að hennar mati verða til þess að auka Von um betri tíð v Iályktun þings Neytendasam- takanna um vöruverð eru stjórnvöld hvött til að skapa verslun og framleiðslu í landinu þau skilyrði að hér verði mögu- legt að byggja upp hagkvæmara og öflugra viðskipta- og athafna- líf. í ályktuninni segir að nauð- synlegt sé að íslenskir viðskipta- aðilar hafi ekki verri stöðu vegna aðgerða stjómvalda en sam- keppnisaðilar þeirra í öðrum löndum. Síðan segir: „Offjárfesting í verslun hér á landi hefur meðal annars leitt til hærra verðs til ís- lenskra neytenda en neytenda í nágrannalöndum okkar. Innlend ir framleiðendur neysluvarning^ selja vörur sínar nær undantekn ingarlaust á mun hærra verði en NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1992

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.