Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.1992, Page 23

Neytendablaðið - 01.12.1992, Page 23
veldara fyrir okkur alla að lifa.“ Sveinn fjallaði ítarlega um gildi gæðamats og taldi að fyrr eða síðar yrði að taka það upp, því fyrr því betra. Vék síðan að þjónustu við neyt- endur út frá þeirri forsendu að þjónustan væri fyrir neytand- ann: ■ Þjónusta - fyrir hvern? „Eg vil taka eitt mjög skýrt dæmi um hagsmuni neytand- ans í þessu sambandi. Þegar við greiðum fyrir vöru í smá- sölu, greiðum við samtímis fyrir framleiðslu hennar, flutning á sölustað og af- greiðslu þar. Þá kemur til á- lita, hvort sölubúðirnar láti í té afgreiðslu á vörum á þeim tíma, sem hentugastur er fyrir neytandann, hvort lokunar- tíminn sé miðaður við hags- muni hans eða þá, sem af- greiða, eða hvort reynt hafi verið að samrýma hagsmuni beggja. Neytendur hafa aldrei verið spurðir, enda enginn viðbún- aður af þeirra hálfu í þessu efni frekar en öðrum. Þó heyrist ekki annað en að þeim finnist lítið tillit tekið til sín og erfitt sé að fá tíma til að verzla, og nær ókleift um sumarmánuðina. Mikill fjöldi manna getur yfírleitt aldrei verzlað nema með því að fá frí úr vinnunni - eða laumast burt. Öllu er lokað samtímis - að viðlögðum sektum, og það skiptir engu máli, þótt mönn- um sé brýnasta nauðsyn að komast í búðir eftir hinn mikla lokunartíma. Það er þó neytendanna vegna, sem verzlanir eru til, en ekki vegna þeirra, sem afgreiða þar eða reka þær. Er ekki til önn- ur lausn og hagstæðari fyrir neytendur en sú, að allir stein- hætti á sama tíma?“ ■ Gegn órétti Mörg dæmi önnur tók Sveinn um tillitsleysi og lélega þjón- ustu við neytendur, en hér verður að stikla á stóru í löngu erindi. Sveinn fjallaði í framhaldi af þessu um það hvemig neytendur gátu náð fram rétti sínum, teldu þeir sig órétti beitta. „Neytandinn getur leitað til dómstólanna, ef hann telur sig órétti beittan. En sú leið er svo seinfarin, áhættusöm og dýr, að hún veitir neytandan- um mjög litla vemd í hinum daglegu viðskiptum hans. Það hallar alltaf á neytendur, því að þeir eru sundraðir gagnvart samtökum, en langoftast er það það lítið í einu, að þeim þykir ekki borga sig að „fara í hart“. Og aðstaða þeirra hefur líka kennt þeim að láta alltaf undan nema þegar mælirinn gerist yfirfullur... Hérþurfa sterk neytendasamtök að grípa í taumana. Eg hugsa mér, að þau gæfu fólki kost á almennri réttarþjónustu: þannig að neytendur gætu leitað þangað, er þeir þættust órétti beittir, og þessi deild innan samtakanna tæki þá málið að sér. Þau gætu einnig gefið skjótar upplýsingar um það, hvort um lögbrot væri að ræða, og ef það væri skýlaust, efast ég um, að menn vildu eiga í málarekstri við samtök- in, en kysu heldur að sættast... Málgagn samtakanna myndi að sjálfsögðu skýra ítarlega Sveirm Asgeirsson (t.v.) fjall- aði um nauðsyn þess að stofna neytendasamtök í októ- ber árið 1952. Hann varð fyrsti formaður samtakanna sem stofnuð voru í mars 1953. Myndin var tekin þegar Sveinn afhenti Jónasi Guð- mundssyni fisksala viðurkenn- ingarskjal fyrir aðbúnað allan og hreinlæti. frá allri starfsemi þeirra, ekki sízt málaferlum, og mætti bú- ast við, að tilvera slíkrar rétt- arþjónustu væri ein nægileg til að afstýra mörgu óréttlæt- inu, svo að jafnvel jaðraði við tillitssemi við neytendur, þar sem hennar hefði ekki áður verið vart.“ Lokaorð Sveins voru þessi: „...bjartsýni mín er þó ekki meiri en svo, að ég er viss um, að hið eina, sem dugar, eru máttug neytendasamtök, borin uppi af þeim, sem verst eru leiknir af ríkjandi við- skiptaháttum, og sem fylgja kröfum sínum um gagnkvæmt tillit fast eftir - eins fast og þörf gerist. En að einu leyti er ég bjartsýnn. Þjóðfélag okkar er þeirrar stærðar, að senni- lega gætu engir breytt þessu jafnfljótt og vel og einmitt ís- lendingar.“ Sjónarhóll neytandans Sveinn segir frá aðdrag- anda og viðbrögðum við útvarpserindum sínum í við- tali við Neytendablaðið fyrir tíu árum. Þegar hann flutti erindi sín í útvarpið var hann nýkominn frá námi í Sví- þjóð. Hann stofnaði heimili og alvara hversdagslífsins tók við. Innan skamms varð hann þess áskynja að víða í samfélaginu gætti verulegs tillitsleysis gagnvart neyt- endum. „Ekki svo að skilja að ég hafi yfir neinu að kvarta öðr- um fremur, síður en svo, en ég fór af ýmsum ástæðum að líta á hlutina frá þessum sjónarhóli. Og það var margt sem kom mér all kynlega fyrir sjónir. Almennt gerðu menn þó lítið veður út af þessu, að minnsta kosti op- inberlega,“ segir Sveinn í viðtalinu. Viðbrögðin við erindinu voru á ýmsa lund. Að sögn Sveins vafðist fyrir mörgum hvemig einhvers konar fé- lagsskapur ætti að geta bætt úr aðstæðum neytenda, nóg væri af félögunum fyrir. Þeir voru þó margir sem voru sammála Sveini um að þörf væri á samtökum neytenda og eins og áður hefur komið fram vom þau stofnuð fáein- um mánuðum eftir að Sveinn flutti erindi sín í út- varpi. Aðrir verða svo að meta hvort neytendur hafi með stofnun samtaka komist af hinni grýttu braut. NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1992 23

x

Neytendablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.