Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.1992, Side 24

Neytendablaðið - 01.12.1992, Side 24
Rekstur heimilisins Fyrirhyggja i fjarmalum Viö leggjum hart aö okkur viö aö afla tekna til heimilisins. Hjá stærstum hluta launa- fólks koma tekjurnar jafnt og þétt, þaö er einu sinni í viku eöa einu sinni í mánuði, og yfirleitt er um svip- aöa upphæð aö ræöa hverju sinni. Ööru máli gegnir um útgjöld heimilisins. Þau geta verið mjög mismun- andi frá mánuði til mánaðar. Utgjöldin verða hærri þegar við þurfum að greiða af hús- næðis- og námslánum. Sum- arleyfi og jól gera strik í reikninginn hjá flestum. Skortur á fyrirhyggju getur gert það að verkum að heimil- ið þarf að fjármagna ýmis út- gjöld með lánum. Margir aðilar hafa hags- 300000 250000 200000 150000 100000 Neysla fjölskyldu II r 1 I* ■ 'I' ■ 11' -■ T 1 T 1 T 1 T 1 T 1 I' ' 'I jan feb mars apr maí júní júlí ág sept okt nóv des Meðal neysla -j-fjöldskyldu. II Meðal neysla fjöldskyldu. I Fjölskylda 1 Fjölskylda II Ráöstöfunartekjur 1.800.000 1.800.000 Húsnaeöi - 444.396 - 444.396 Framfærsla - 592.512 -614.400 Fjárfestingar - 600.000 - 600.000 Fjármagnskostnaður 0 - 114.120 Sparnaöur 163.092 27.084 muni af og þrífast á því að við sýnum sem minnsta fyrir- hyggju og fjármögnum sem mestan hluta neyslunnar með lánum. I bæklingum kortafyr- irtækja getum við til að mynda lesið að raðgreiðslur og greiðsludreifing „auð- veldi“ okkur að eignast dýra hluti og að standa straum af útgjaldatoppum eins og sum- arleyfi og jólum. Reyndin er auðvitað þveröfug. Einu gildir hvemig við reiknum, við greiðum alltaf meira fyrir neysluna ef við fjármögnum hana með lánum. Öll myndum við væntanlega taka 15 prósenta launahækkun fegins hendi. Hví ekki að hrópa þrefalt húrra fyrir þeim degi þegar okkur tekst að losna við yfirdráttinn (15 pró- sent spamaður) og fyrirhyggj- an situr í fyrirrúmi. Súluritið hér á síðunni sýn- ir að einungis þarf dálítinn viljastyrk og fyrirhyggju til að staðgreiða neysluna, án þess að draga endilega úr henni. Lausnin felst í því að leggja til hliðar í þeim mán- uðum þegar nauðsynleg út- gjöld em undir meðaltalinu og nota aukasjóðinn svo þeg- ar útgjöldin verða meiri, til dæmis um jólin. I töflunni hér til hliðar tök- um við dæmi af tveimur heimilum. Þau eru eins að öllu leyti nema einu; önnur fjölskyldan staðgreiðir en hin þarf að fjár- magna hluta af neyslunni með lánum. Fjölskylda I er sú sem hefur fyrirhyggjuna í fyrir- rúmi og losnar þar af leiðandi við verulegan kostnað vegna lána. Mismunur á raunveruleg- um spamaði hjá fjölskyldu I og II þegar keypt hefur verið það sama á árinu 1992 er 136.008 krónur. Skýring á lægri framfærslukostnaði hjá fjölskyldu I er að hún fær staðgreiðsluafslátt á bilinu 3 - 7% af keyptri vöm og þjón- ustu. Sólrún Halldórsdóttir rekstrarhagfræðingur ráðleggur neytendum. Lumar þú á ráðum til sparnaðar? 11 viljum við halda kostnaði við nauðsyn- legan heimilisrekstur í lág- marki til þess að geta notað peningana í eitthvað annað og skemmtilegra. Spamaður kemur oft mismunandi niður á heimilisfólkinu. Til að gera sparnaðinn sem sársauka- minnstan þarf útsjónarsemi. Við lærum hvert af öðru, líka hvemig við getum spar- að. Margt smátt gerir eitt stórt. Ef þú býrð yfir sparn- aðarráðum, láttu þá heyra frá þér. Skrifaðu eða hringdu til Neytendasamtakanna (Skúla- götu 26, 101 Reykjavík, s. 625000) og við munum birta spamaðarráðin á þessari síðu. Vertu með. Við getum öll hagnast á því. 24 NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1992

x

Neytendablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.