Neytendablaðið - 01.12.1992, Side 25
Markaðskönnun
Mikið úrval kaffivéla af
ýmsum stærðum og gerðum
þeir eftir að kynna sér niður-
stöður gæðakönnunarinnar.
Ýmiss konar búnaður
Vélamar í markaðskönnun
Neytendasamtakanna eru af
ýmsum stærðum og gerðum
og verða hér nefnd nokkur at-
riði sem vert er að hafa í huga
þegar svipast er um eftir
kaffívél fyrir heimilið.
Dropaloki
Margar vélanna eru búnar
svonefndum dropaloka eða
stoppventli, sem gerir það að
verkum að hægt er að taka
forskot á sæluna, það er að
kippa könnunni undan áður
en vélin er búin og fá sér kaffi
án þess að kaffið í síunni
renni niður á hitaplötuna.
Lítill skammtur
Margar vélanna hafa sérstak-
an rofa fyrir litla skammta af
kaffi, gjama 2-4 bolla.
Samkvæmt dönsku gæða-
könnuninni vill kaffið oft
verða hálf kalt þegar þessari
aðferð er beitt. Auk þess er
hætta á að aðferðin dragi úr
bragðgæðum vegna þess hve
lengi vatnið er þá í snertingu
við kaffið.
Föst sía
Yfirleitt er miðað við að nota
kaffipoka, en til eru dæmi um
vélar með fastri síu.
Hitastig vatnsins
Dæmi eru um að hægt sé að
stilla vélina á mismunandi
hitastig, eftir óskum. Sem fyrr
segir benda niðurstöður
dönsku gæðakönnunarinnar
til þess að margar vélanna
virðist ekki ná að hita vatnið
nægilega vel.
Þrjár vélanna í könnun NS,
Philips Café Gourmet,
Technivorm Moccamaster og
Rowenta FG 35, eiga sam-
kvæmt upplýsingum seljenda
25
Markaðskönnun Neytendasamtakanna á kaffivélum náði til 26 verslana í
Reykjavík og voru skráð 25 mismunandi vörumerki. Alls eru um það bil
80 tegundir kaffivéla í töflunni hér í næstu opnu. Verð þeirra er æði misjafnt.
Meirihlutinn kostar innan við fimm þúsund krónur, en hægt er að fá kaffivélar
fyrir mun hærra verð, allt að 15 þúsund krónum. Flestar verslananna sem
könnunin náði til veita staðgreiðsluafslátt, gjarna þrjú til fimm prósent. Könn-
un Neytendasamtakanna var gerð í nóvember, fyrir gengisfellingu. Hún þarf
ekki að vera tæmandi.
Kaffiþyrstir íslendingar þurfa
ekki að kvarta yfir skorti á
framboði á kaffivélum.
íslendingum virðist þykja
kaffisopinn góður og á flest-
um heimilum er notast við
sjálfvirkar kaffivélar. f grein í
sænska neytendablaðinu Rád
och Rön kemur þó fram að
vísasta leiðin til að fá gott
kaffi er að hella uppá með
gamla laginu, helst ekki
minna en einn lítra í senn.
Gamla aðferðin tekur yfirleitt
skemmri tíma en í vélunum,
það er að segja sjálf uppáhell-
ingin, og meiri líkur eru á að
hitinn í nýlöguðu kaffinu
verði eins og til er ætlast.
Æskilegt er talið að nýlagað
kaffi sé 80-90 gráðu heitt áður
en því er hellt í bolla, en um
það bil 60 gráðu heitt þegar
það er komið í bollann.
Dönsk gæðakönnun
í danskri gæðakönnun, sem
kynnt er í blaðinu Rád og
resultater, kemur fram að
margar kaffivélar ná ekki að
hita vatnið eins og æskilegt
væri. Það á einkum við þegar
lagað er lítið magn, tveir til
þrír bollar. Danska gæða-
könnunin nær til fáeinna véla
sem einnig er að fínna í mark-
aðskönnun Neytendasamtak-
anna. í umfjöllun danska
blaðsins kemur skýrt fram að
dýrustu vélamar gefi ekki
endilega besta kaffið og að
hinn ýmsi búnaður sem marg-
ar vélanna hafa sé ekki endi-
lega til þess fallinn að auka á
gæði kaffisins.
Félagsmenn NS geta haft
samband við kvörtunar- og
leiðbeiningaþjónustuna óski
NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1992