Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.1992, Síða 32

Neytendablaðið - 01.12.1992, Síða 32
Unglingabólur geta verið viðkvœmt mál og gert erfið- an aldur enn erfiðari. Til eru ráð við unglingabólum Flestir fá einhverju sinni unglingabólur. Yfirleitt veldur þetta tíma- bundnum óþægindum, sem hverfa án þess aö hafst sé að. Sumir veröa hins vegar útsteyptir í bólum og þarfnast meðhöndlunar. Sumir bera Ijót ör af bólunum og veröa ævinlega minntir á þetta erfiöa tímabil. Hins vegar eru til lyf sem halda unglingabólum niðri og hafa lyf þessi oröiö áhrifaríkari á undanförnum árum. Lyfin ber aö nota í samráöi við lækni. Unglingabólur eiga sér ýmsar orsakir. Ein þeirra er aukin framleiðsla kynhormóna á unglingsaldrinum. Karlhormónar, sem myndast einnig hjá stúlkum í nokkrum mæli, hafa áhrif á fitukirtlana í húðinni. Fitukirtlamir vaxa og fituframleiðsla húð- arinnar eykst. Fitukirtlar þessir em al- gengastir í andliti, á baki og á bringu og því myndast bólumar einkum á þessum hlutum líkamans. Bólumar myndast vegna þess að fitu- kirtlamir stíflast og bólgna. Við það myndast gröftur sem margir freistast til að kreista út. Það gerir vandamálið bara verra. Rétt er að geta þess að bólurnar smita ekki og breiðast ekki út. Ekki er vit- að hvers vegna aðeins sumir verða illilega fyrir barðinu á sjúkdómnum, en oft er hann arfgengur. Meðferð sjúkdómsins fer eftir eðli hans. Yfirleitt er hægt að halda bólu- myndun niðri með útvortis sýklalyfjum, kremi eða áburði, en í alvarlegri tilfellum getur reynst nauðsynlegt að nota sýklalyf í inntöku. Útfjólublátt ljós er einnig nefnt til vamar unglingabólum. Misjafnt er hvort lyfin eru lyfseðilsskyld og verð lyfj- anna er einnig mjög mismunandi. Yfirleitt leysa lyfin ekki vandamálið, en halda því niðri. Margt hefur verið sagt og skrifað um unglingabólur og kannski munu einhverjir undrast sumar eftirfarandi fullyrðinga, en að baki þeim liggja vísindaleg rök: • Mataræði hefur enga þýðingu. • Vatn og sápa gera ekki gagn (en skaða heldur ekki). • Kreistið bólumar ekki, það gerir illt verra. • Nota má farða, en varist feitan farða og krem. • Verið á varðbergi gagnvart getnaðar- vamapillum. Sumar hafa slæm áhrif á bólur, aðrar góð. • Og munið: Bólumar smita ekki! (Byggt á grein séifrœðings í danska neyt- endablaðinu Tœnk.) Varúð! Ertandi Margir prýða heimili sín með jólastjömu vikurnar fyrir jól og blómaframleiðendur hafa verið iðnir við að auglýsa plöntuna að undanfömu. Jólastjama er í hópi fjölmargra eitraðra plantna. Mjólkurlitur safi hennar er ertandi, einkum fyrir augun. Þeir sem eiga forvitin börn eða fá þau í heimsókn ættu að passa vel að þau komist ekki í of nána snertingu við þetta fallega blóm. Komist safinn í augun ber að skola þau án tafar með vatni, en leita til læknis ef sviðinn hverfur ekki við svo búið. Þeim sem vilja fræðast nánar um eitraðar stofuplöntur er bent á umfjöllun í fjórða tölublaði Neytendablaðsins í fyrra.

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.