Neytendablaðið - 01.06.1993, Page 8
Filmur og framköllun
Vertíð er hjá framköllunarstofum þegarfólk kemur með sum-
arleyfismyndirnar sínar til framköllunar og stœkkunar.
Ljóst er að miklu getur skipt hvar sumarleyfismynd-
irnar eru settar í framköllun, því samkvæmt
verðkönnun Samkeppnisstofnunar á framköllun og
stækkun Ijósmynda er verðmunur verulegur. Mestur
mældist munurinn á eftirtökum, 132 prósent, en 71-75
prósent munur var á hæsta og lægsta verði á
framköllun og stækkun.
Umtalsverður munur á verði
Verðkönnun Samkeppnisstofnunar náði til
29 verslana á höfuðborgarsvæðinu og
fimm á Akureyri og Egilsstöðum. I ljós.
kom að verð á framköllun og stækkun hef-
ur hækkað að meðaltali um 1,5 prósent frá
því síðasta könnun var gerð í júlí í fyrra.
Eins og sjá má í athugasemdum með
töflunni hér til hliðar bjóða margar versl-
anir afslátt eða bónus í einhverri mynd,
svo taka verður tillit til þess við verðsam-
anburðinn. Verð á framköllun og stækkun
var lægst hjá BónusframköIIun í Reykja-
vík en hæst hjá Framköllun á slundinni (12
mynda og 24 mynda) og verslunum Hans
Petersen, Litaseli og Myndsmiðjunni á Eg-
ilsstöðum (36 mynda). Bónusframköllun
var einnig með lægsta verð á eftirtökum,
145 krónur fyrir 13x18 sentímetra mynd.
Hæst var verðið hjá Ljósmyndabúðinni á
Akureyri.
Verðkönnunin leiddi í Ijós að verðmun-
ur á 24 mynda Kodak Gold hefur aukist. I
könnun sem gerð var í júlí í fyrra mældist
munurinn á hæsta og lægsta verði 13 pró-
sent. Nú var munurinn hins vegar 38 af
hundraði. Verðið var lægst hjá Radíóvirkj-
anum, Borgartúni, en hæst hjá Kyrr-mynd.
1 - •» ^n/ ífr' • 'VtÍMft:’ , íiH
yp
f jf 'jjjfföSy.
W t W*' l iPsé’ 1 "
Garðaúrgangur er ekki sorp
Úrgangurinn úr garðinum er í raun mikilvæg
verömæti fyrir hringrás náttúrunnar.
Fleygöu honum því ekki í sorptunnuna
láttu náttúruna um aö endurvinna hann.
Þeir sem ekki hafa aöstööu til aö koma á fót
endurvinnslu í garðinum hjá sér geta snúið sér
til SORPU sem safnar garðaúrgangi í moldar-
banka.
Á gámastöðvum SORPU getur þú lagt inn í
moldarbankann en mundu aö henda umbúö-
unum ekki - nýttu þær aftur!
S©RPA
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs
Gufunesi, sími 67 66 77
Gámastööin þín er í næsta nágrenni:
ÁNANAUSTUM (lokaö mánudaga)
GARÐABÆ, Miðhrauni 20 (lokað mánudaga)
SÆVARHÖFÐA (lokað fimmtudaga)
GYLFAFLÖT (lokað miðvikudaga)
KÓPAVOGI v/Dalveg (lokað miðvikudaga)
JAFNASELI (lokað þriðjudaga)
MOSFELLSBÆ (lokað mánudaga)
OPIÐ Á MORGNANA:
SÆVARHÖFÐA 8.00-13.00 alla virka
daga nema fimmtudaga
Vetrartími: 30. september -15. apríl kl.13-20
Fyrirtækjum er bent á aö kynna sér
breyttar reglur og gjaldskrá vegna losunar
á gámastöðvar.
Upplýsingar um þjónustuadila i dagbók Mbl. og hjé Gulu línunni sími 62 62 62
8
NEYTENDABLAÐIÐ - Júní 1993