Neytendablaðið - 01.06.1993, Blaðsíða 20
Heimilistækin
Umhverfis-
vænni ísskápar
Freonlausir ísskápar eru komnir á markaö í Evrópu og
má búast við að þeir komi á markað hérlendis á
næsta ári. Freon er sem kunnugt er mjög skaðlegt óson-
laginu og því hefur mikil áhersla verið lögð á það á und-
anförnum árum að koma því úr notkun hið fyrsta. Freon-
laus ísskápur hefur verið þróaður og framleiddur í Þýska-
landi með stuðningi Grænfriðunga. Framleiðslan kallast
Greenfreeze og ber þýska umhverfismerkið, bláa engil-
inn, til staðfestingar á vænleika sínum við umhverfið.
í grein í sænska neytendablað-
inu Rád och Rön er greint frá
þremur aðferðum sem fram-
leiðendur ísskápa hafa valið til
þess að losna við freon, öðru
nafni klórflúorkolefni (CFC).
Electrolux hefur sett á markað
ísskápa þar sem vetnisflúor-
kolefni (FIFC) sér um kæling-
una í stað freons. Vetnisflúor-
kolefnið veldur ósonlaginu
ekki skaða en er á hinn bóginn
eitt þeirra efna sem stuðla að
gróðurhúsaáhrifunum svo-
nefndu. I Greenfreeze er kæli-
vökvinn hins vegar úr bútan-
og própangasi, gastegundum
sem meðal annars em notaðar í
kveikjara. Einangmnin er
frauðplast sem þanið hefur ver-
ið með pentan í stað ffeons.
Þessi framleiðsla hefur þeg-
ar vakið mikla athygli og er
eftirsótt. Helstu framleiðendur
heimilistækja í Þýskalandi
reyndu að koma óorði á Green-
freeze í fyrstu. Þeir vömðu
seljendur meðal annars við að
selja Greenfreeze þar eð hætta
væri á að þeir springju. I febm-
ar síðast liðnum kynntu hins
vegar Bosch, Siemens, Lieb-
herr og Miele fsskápa með
sömu kælitækni.
Hérlendir seljendur sem
Neytendablaðið ræddi við
sögðust telja lfklegt að ísskápar
af þessari gerð myndu koma á
íslenskan tnarkað um mitt
næsta ár. Þeir töldu erfitt að
meta hvort nýju skáparnir yrðu
dýrari en þeir freonskápar sem
nú bjóðast.
Þýski framleiðandinn AEG
Framleiðendur hafa nú þróað ísskápa ánfreons (CFC). Freon
er eitt þeirra efna sem valda ósonlaginu skaða.
hefúr valið aðra leið en þeir
framleiðendur sem hér hafa
verið nefndir. AEG er nú að
þróa ísskápa sem eru endur-
vinnanlegir að mestu leyti og
einangraðir með lofttæmi í stað
frauðplasts. Kælivökvann má
einnig endurvinna. Fyrirtækið
reiknar með að ísskápur af
þessari gerð verði settur á
markað eftir þrjú ár. Talið er að
hann muni kosta um tvöfalt
meira en venjulegir ísskápar.
Þess ber að geta að ýmsir
framleiðendur hafa dregið
mjög úr notkun freons í ísskáp-
um á undanförnum árum.
Freon má hreinsa og endumýta
og er það gert hérlendis. Þeim
íbúum höfuðborgarsvæðsisins
sem þurfa að losa sig við
ísskápa er bent á að koma þeim
á gámastöð Sorpu. Þar er kæli-
vökvanum tappað af skápunum
og það endurnýtt, að minnsta
kosti að hluta til. Aður var
farið með ísskápa sem hvert
annað sorp og kælivökvanum
veitt út í andrúmsloftið til höf-
uðs ósonlaginu. Það ver okkur
sem kunnugt er gegn útljólu-
bláum geislum sólar.
Heimilisbókhald NS fæst á eftirtöldum stöðum:
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Bónus, Eiðistorgi, Iðufelli, Skútuvogi,
Reykjavíkurvegi, Smiðjuvegi og Faxafeni
Mál og menning, Laugavegi og Síðumúla
Hagkaup, Hverafold, Hólagarði, Kjörgarði,
Skeifunni og Kringlunni.
Fjarðarkaup, Hólshrauni
Eymundsson, Austurstræti,
Borgarkringlunni, Eiðistorgi og við Hlemm.
Miðvangur, Miðvangi
Nóatún vestur í bæ
Garðatorg, Garðatorgi
Kjöt og fiskur, Mjódd
SUÐURNES:
Bókabúð Keflavíkur, Keflavík
Nesbók, Keflavík
Sparkaup, Keflavík
Hagkaup, Njarðvík
VESTURLAND:
Verslunin Einar Ólafsson, Akranesi
Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi
Verslun Jóns og Stefáns, Borgarnesi
Hólmakjör, Stykkishólmi
Hrannarbúðin, Grundarfirði
Ásakjör, Grundarfirði
Verslunin Hvammur, Ólafsvík
Verslunin Kassinn, Ólafsvík
Kjörbúðin, Hellissandi
Dalakjör, Búðardal
VESTFIRÐIR:
Bókaverslun Jónasar Tómassonar, ísafirði
Vöruval, ísafirði
Verslun Einars Guðfinnssonar, Bolungarvík
Kjöt og fiskur, Patreksfirði
NORÐURLAND:
Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga
Hagkaup, Akureyri
Samland sf., Akureyri
Valberg, Ólafsfirði
KEA, Ólafsfirði
Svarfdælabúð KEA, Dalvfk
Kaupfélag Þingeyinga, Húsavík
AUSTURLAND:
Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstöðum
Kaupfélag Héraðsbúa, Reyðarfirði
SUÐURLAND:
Höfn-Þríhyrningur, Selfossi
Kaupfélag Árnesinga, Selfossi
Hverakaup, Hveragerði
Kaupfélag Árnesinga, Hveragerði
Kaupfélag Rangæinga, Hvolsvelli
Kaupfélagið Vestmannaeyjum
Kaupfélag Árnesinga/Betri bónus,
Vestmannaeyjum
20
NEYTENDABLAÐIÐ - Júní 1993