Neytendablaðið - 01.06.1993, Qupperneq 14
Matur og heilsa
Lítil eða engin hœtta á að vera á sýkingu vegna
örveruinnihalds krydds, sé rétt með það farið.
Mynd: Svein Erik Dahl/Samfoto.
Fleira en gott
þykir í kryddi
w
Ymsar tegundir af kryddi eru ómissandi í hverju eldhúsi. Næst
þegar þú setur kryddstaukana á borðið og hyggst leyfa hverjum að
krydda fyrir sig skaltu þó hugsa þig um. í stauknum getur nefnilega
verið meira en það sem æskilegt er; dauð skordýr, dýrasaur og miljónir
örvera. Krydd getur verið hreinasta bakteríusprengja og því vert að
meðhöndla það eftir því. Auk ónotanna af því að vita af aðskotaefnun-
um í vörunni getur verið hætta á matareitrun af völdum krydds.
Sérstaklega er talin hætta á að
í svörtum pipar, paprikudufti
og oregano séu alls kyns
óæskileg viðbótarefni af því
tagi sem nefnd voru hér að
ofan. Því er æskilegast að
sjóða eða steikja kryddið með
matnum í stað þess að krydda
eftir á.
Danska neytendablaðið
Tænk segir frá því að árið
1987 hafi 20 af 60 skipum
Heróín, nikótín, kókaín
w
Igrófum dráttum er munurinn á eiturlyfjaneyt-
anda og reykingamanni aðallega sá að á
meðan sá fyrrnefndi lætur sér nægja eitt „fix” á
dag þarf reykingamaðurinn nokkur hundruð. Auk
þess geta reykingamenn komið eðlilega fram
þrátt fyrir eiturfíkn sína.
Þetta segir danski læknirinn
Philip Tönnesen sem starfar
við lungnasjúkdómadeild
sjúkrahússins í Gentofte og
hefur getið sér gott orð fyrir
rannsóknir á reykingum.
Hann hikar ekki við að nefna
nikótín í sömu andrá og
heróín og kókaín. Reykinga-
maðurinn er líkamlega háður
nikótíni með sama hætti og
sumir ánetjast kókaíni og
heróíni.
Nikótín eykur einbeiting-
arhæfni neytandans og virkar
örvandi þegar maður er
þreyttur. Auk þess dregur
nikótín úr óþægilegum
kenndum, svo sem streitu,
óróleika, kvíða og einmana-
leika. Því finna næstum allir,
sem reyna að hætta að
reykja, að streita eykst. Auk
þess finna þeir sem eru lík-
amlega háðir reykingum fyrir
ýmsum fráhvarfseinkennum.
Nefna má eirðarleysi, ótta,
reiði, svengd, þunglyndi,
hægðatregðu, nikótínþörf,
skort á einbeitingu.
-Tœnk, 3/93
sem fluttu svartan
pipar frá Indlandi
verið vísað frá
Bandaríkjunum
vegna þess að í
vörunni var óeðli-
lega mikið magn af
rottu- og músasaur.
Skipin héldu vitaskuld ekki
sömu leið til baka til Ind-
lands, heldur til Evrópu þar
sem eftirlit er ekki jafn strangt
og í Bandaríkjunum.
Eftirlit með innflutningi
krydds til íslands er gloppótt
eins og víða annars staðar.
Fyrir fáum árum var þó gerð
rannsókn á kryddi og í kjöl-
farið voru tvær tegundir tekn-
ar af markaði vegna þess að
talin var hætta á sýkingu af
völdum þeirra. Síðan hefur
sambærileg könnun ekki verið
gerð.
Flestar tegundir krydds eru
ræktaðar í vanþróuðum lönd-
um, gjarna við aðstæður þar
sem erfitt er að hafa í heiðri
ítrustu kröfur um hreinlæti.
Lítil eða engin hætta á að vera
á sýkingu vegna örveruinni-
halds krydds, sé rétt með það
farið. Því er vert að hafa eftir-
farandi í huga:
. Krydd ber ávallt að sjóða/-
steikja með matnum. Bakt-
eríurnar drepast við 70-80
gráðu hita.
. Forðist að krydda mat eftir
að hann er tilbúinn. Bakter-
íur þrífast einkar vel í volg-
um mat.
. Kælið afganga hið
skjótasta. Agæt aðferð er
að setja þá í skál, kæla í
köldu vatni og setja síðan í
ísskáp.
. Látið kryddaðan mat ekki
standa lengi við stofuhita.
. Djúpfrysting drepur ekki
bakteríurnar. Þegar matur-
inn er afþíddur vakna þær
til lífsins á ný og dafna
. Gott krydd má geyma lengi
en með tímanum kemur
það niður á bragðinu. Bakt-
eríur eiga erfitt uppdráttar í
þurru kryddi en þrífast við
raka og vætu.
MrvTriinAOTAnr: m í ai i
Nt YItNUAo lAHh tH 1ALL Aðatverk hf., Bifreiðastillingin, Blikksmiðja Reykjavíkur, Eggert Kristjánsson hf.,
Hrannargötu 5, Keftavík Smiðjuvegi 40d Súðarvogi 7 Sundagörðum 4
Akraness apótek, Bílasalan Braut sf., Btómastofan Eiðistorgi, Eurocard á íslandi,
Suðurgötu 32, Akranesi Borgartúni 26 Eiðistorgi 15 Ármúla 28
Bakarameistarinn Bílaverkstæði Böðvars og Óla, Bón- og þvottastöðin, Sigtúni 3 Ferðaþjónusta Suðurlands,
Suðurveri, Stigahlíð 45-47 Drangahrauni 7 Breiðumörk 10,
Barbró - veitingar og gisting, Kirkjubraut 11, Akranesi Bílaverkstæði Gísla Hermanns- sonar, Vagnhöfða12 Ceres hf., Nýbýlavegi 12 Davíð S. Jónsson & Co hf., Hveragerði Félagskaup - matvöruverslun,
Þingholtsstræti 18 Hafnarstræti 11, Flateyri
14
NEYTENDABLAÐIÐ - Júni 1993