Neytendablaðið - 01.06.1993, Page 25
Markaðskönnun
Tjöld við flestra
Markaðskönnun Neytendablaðsins á tjöldum í níu verslunum í Reykjavík
leiðir í Ijós að flestir þeirra sem hyggja á tjaldútilegur ættu að geta fundið
tjald við sitt hæfi. Skráðar voru upplýsingar um nokkra tugi tjalda af ýmsum
stærðum og gerðum á mjög mismunandi verði. Ódýrasta tjaldið í könnuninni
kostar 6.995 en það dýrasta 79.900. Þessi tjöld eiga hins vegar fátt sameigin-
legt annað en að kallast tjald. Tjöldin á markaðinum eru flest innflutt og eru
Seglagerðin Ægir og Skátabúðin fyrirferðarmestir innflytjendur. Innlend tjöld
gera sig þó gildandi, einkum A-tjöld og hústjöld. íslensku framleiðendurnir eru
tveir: Seglagerðin Ægir og Tjaldborg.
Töflumar sem hér birtast gefa
aðeins einfalda mynd af tjöld-
unum sem um er að ræða.
Vert er að hyggja að fjöl-
mörgu við kaup á tjaldi, allt
eftir því hvaða tilgangi tjaldið
á að þjóna og hvaða óskir og
þarfir viðkomandi hefur:
▲ Sum tjaldanna eru með
kósuðum þéttikanti á
himni. Það gerir tjöldin
þéttari og stöðugri.
▲ Efnin í tjöldunum geta ver-
ið rnjög mismunandi, þótt í
töflu okkar sé nær ein-
göngu rætt um bómull og
nælon.
í flestum öðrum tilvikum áttu
verslanir í erfiðleikum með að
tilgreina framleiðsluland.
Tjöldin em keypt af evrópsk-
um heildsölum, en líklega
framleidd „einhvers staðar
fyrir austan”. Það kom starfs-
manni blaðsins undarlega fyr-
ir sjónir að seljendur skyldu
ekki þekkja upprunaland
þeirrar vöru sem þeir höfðu á
boðstólum. Einnig kom á
óvart að í sumum til-
vikum höfðu seljend-
urnir litla þekkingu
á vörunni. Sumir
áttu til dæmis erfitt með að
tilgreina stærðir og var
ókunnugt um úr hvaða efnum
tjöldin voru. Þetta var hins
vegar mjög misjafnt. I sumum
verslunum er um algera auka-
grein að ræða, í öðrum tilvik-
um er um að ræða sérverslanir
með tjöld og viðlegubúnað.
hæfi
▲ íslensku tjöldin er yfirleitt
hægt að fá með bæði
„venjulegum” himni og
fleygahimni. Síðarnefnda
gerðin er stærri og dýrari.
▲ Sum tjaldanna eru með
gluggum, flugnaneti og
öðrum slíkum búnaði.
A Braggatjöld og kúlutjöld
eru mismunandi að gerð.
Til dæmis er fjöldi boga
mismunandi.
▲ Botn tjaldanna er mjög
misjafnlega traustvekjandi.
▲ Síðast en ekki síst er vert
að athuga hvort seljandinn
geti útvegað varahluti í
tjaldið.
■ Göngutjöld
Markaðskönnunin náði ekki
til tjalda sem sérstaklega eru
ætluð göngufólki, svonefnd-
um göngutjöldum. Slík tjöld
vega yfirleitt á bilinu tvö til
þrjú kíló. Eftirtaldar verslanir
hafa göngutjöld á boðstólum:
Bflanaust, Fálkinn,
Kringlusport, Seglagerðin,
Skátabúðin og Útilíf. Segla-
gerðin tilgreindi einnig fjalla-
tjöld.
Verslanirnar:
Bílanaust,
Borgartúni 26,
s. 622262
Fálkinn,
Suðurlandsbraut 8
og Þarabakka 3,
s. 814670
Hagkaup,
Skeifunni, s. 684300
Kringlusport,
Kringlunni 6, s. 679955
Seglagerðin Ægir,
Eyjarslóð 7, s. 621780
Skátabúðin,
Snorrabraut 60,
s. 612045
Sporthús Reykjavíkur,
Laugavegi 44
Sportleigan,
Vatnsmýrarvegi 9,
s. 19800
Útiiíf,
Glæsibæ, s. 812922
NEYTENDABLAÐIÐ - Júní 1993
25