Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.06.2002, Side 7

Neytendablaðið - 01.06.2002, Side 7
í stuttu máli Tæki sem brenna gasi Vinnueftirlitið hefur eftirlit með sölu og markaðssetningu tækja senr brenna gasi (sbr. reglugerð nr. 108/1996). Þetta eru meðal annars gaseldavélar til heimilisnota, fyrir sumarbústaði, ferða- hýsi og tjöld, ofnar til hitunar, ísskáp- ar, hitarar fyrir ferðahýsi, yljarar og vatnshitarar. Þessar reglur eru óffá- víkjanlegar grunnkröfur um að gastæki séu örugg í notkun og valdi hvorki heilsutjóni né umhverfísspjöllum. Meðal atriða, sem reglumar kveða á um eru kröfúr um eftirfarandi: 1. CE-merkingu tækja. 2. Að tæki sem ætluð eru til notkun- ar innanhúss séu með öryggisbúnaði sem kemur í veg fyrir að óbrunnið gas safnist upp í herbergjum. 3. Að tækjunum fylgi leiðbeiningar á íslensku. I leiðbeiningunum eiga að vera: - tæknilegar leiðbeiningar til þess sem setur tækið upp, - leiðbeiningar um notkun og með- ferð, - viðeigandi viðvaranir, einnig á umbúðum. 4. Að á tækjunum séu upplýsingar um takmarkanir á notkun, t.d. „Ein- göngu til notkunar utanhúss“ þegar við á. Vinnueftirlitið hefur á þessu ári bannað sölu á nokkmm tækjum sem brenna gasi en uppfylla ekki ofan- nefndar kröfur. Kaupendur tækja sem brenna gasi em hvattir til þess að gæta að því að tækin séu CE-merkt, að óska eftir leiðbeiningum á íslensku og fá staðfestingu á því að tækin uppfylli lágmarkskröfur um öryggi í samræmi við ofantaldar reglur. Þing Neytendasamtakanna 27- 28. september 2002 Verum með í að móta stefnuna Þing Neytendasamtakanna 2002 verður haldið dag- ana 27.-28. september nk. Þingið er æðsta vald í málefnum samtakanna. Þingið verður haldið í Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðinni) og hefst það föstudaginn 27. september kl. 13.30. Samkvæmt lögum Neytendasamtakanna geta allir skuldlausir félagar samtakanna verið þingfull- trúar á þinginu, enda tilkynni þeir um þátttöku með a.m.k. viku fyrirvara. Stjóm Neytendasamtak- anna hvetur áhugasama félagsmenn að tilkynna um þátttöku sem fyrst, enda auðveldar það allan undirbúning þingsins. F.h. stjórnar Neytendasamtakannna Jóhannes Gunnarsson formaður Þinn réttur Það er ekki sjálfgefið aö aLLir þekki almannatryggingakerfið en nauðsynlegt ef veikindi eöa slys ber að höndum. Upplýsingar um almannatryggingar má meóal annars fá • á heimasíðu Tryggingastofnunar, www.tr.is, er aLltaf eitthvað nýtt, • i þjónustumiðstöð á Laugavegi 114, sími 560 4460 - daglegur afgreiðslutimi kL. 8.30 til 15.30, • hjá umboóum Tryggingastofnunar um Land aLLt, • í bækLingum um einstaka þætti aLmannatrygg- inga sem Liggja frammi hjá stofnuninni, i um- boöum, heiLbrigðisstofnunum og víðar. Tryggingastofnun tekur þátt í kostnaói við sjúkra-, iðju- og taLþjáLfun og við ferðir vegna óhjákvæmi- Legrar læknismeðferóar. Um þessi atriói og fjöL- mörg önnur gilda ákveðnar regLur sem getur verió gagnLegt að kynna sér. GjaLdskrá ráóherra giLdir um tannlækningar og er hún LágmarksgjaLdskrá. Viöskiptavinir tannLækna, sem og annarra sérfræðinga í heiLbrigðisgeiranum, eiga fuLLan rétt á aó fá skýringar á greiðsLum. Hik- aðu ekki við að spyrja. Tryggingastofnun fer fram á tiLtekin vottorð vegna afgreiðsLu ákveðinna máLafLokka. GjaLdskrá fyrir þessi vottorð er t.d. að finna á heiLsugæsLustöóv- um og á heimasíóu Tryggingastofnunar, www.tr.is. Kynntu þér máLin og hafðu samband ef eitthvaó er óLjóst. TRYGGINGASTOFNUN^J? RÍKISINS Laugavegi 114-116, 150 Reykjavík Sími 560 4400 - veffang www.tr.is NEYTENDABLAÐIÐ - júní 2002 7

x

Neytendablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.