Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.06.2002, Síða 11

Neytendablaðið - 01.06.2002, Síða 11
Gæðakönnun Stór sjónvarpstæki Hér er aðallega fjallað um tæki með 28-32 tommu skjái (70-82 cm) en stærstu skjá- imir í markaðskönnuninni eru 44-56 tommur (mælt hom í hom). Núna stendur valið oft á milli 16:9 breiðskjás og „venjulegs“ 4:3 skjás þegar fólk kaupir sjónvarpstæki. Við birtum héma nýja gæðakönn- un og markaðskönnun sem geta auðveldað fólki að greina á milli þeirra kosta sem í boði em. 4:3 eöa 16:9? Nærri helmingur sjónvarps- tækjanna í markaðskönnun- inni er af nýrri kynslóð með 16:9 breiðskjá - 47 gerðir af 117. „Venjulegur skjár“ hefur hlutföllin 4:3. Breiðskjár hentar aðallega fólki sem horfir mikið á bíó- myndir í sjónvarpstækinu, ekki síst af DVD-diskum. Næstum allar bíómyndir síð- ustu áratuga sem fást á DVD- diskum eru breiðtjaldsmyndir. Breiðskjár sem dugar vel þarf að vera stór og er því dýr. Odýrustu breiðskjástækin kosta um 80 þús. kr. en dýrasta sjónvarpstækið í markaðskönnuninni er Philips 36 PW 9765 sem kostar ríf- lega hálfa milljón kr. í Euron- ics. Sjónvarpsstöðvar senda enn yfirleitt lítið sem ekkert efni í 16:9 hlutfallinu. Áhorf- endur nota oft brun-hnappinn (súmmið) til að glenna 4:3- mynd út í allan breiðskjáinn til að losna við dökka borða til beggja hliða. Við þetta er hætta á að myndin verði óskýrari og bjagist en þó ráða sum tækin sjálfvirkt bót á slíkum myndgöllum að nokkru leyti. Ef sýnd er breiðtjalds-bíó- mynd í sjónvarpstæki með 4:3-skjá koma svartir borðar fyrir ofan og neðan myndina. 50 eða 100 MHz? í búðinni er þér eflaust tjáð að meiri myndgæði fáist með 100 Hz-tæki en 50 Hz, að 100 Hz- skjár sé þægilegri fyrir augun o.s.frv. Það er hálfúr sannleik- urinn. Tölurnar 50 og 100 Hz segja til um tíðni á sekúndu og muninn á þeim hraða sem það tekur tækið að byggja upp nýjan myndramma á skján- um. 100 Hz-tæki skila frábær- lega vel kyrrmyndum, gæða- prófa-munstrum og borðum, skýringartexta og textavarps- stöfum. I þessum tilvikum og þegar myndefnið hreyfist hægt eða lítið er 100 Hz- myndin stöðug og skörp og augsýnilega betri en í 50 Hz- tæki. Hins vegar fylgja 100 Hz- tækninni gallar sem geta dregið verulega og jafnvel al- veg úr yfirburðunum. Skerpan hverfur þegar mikill hraði er á myndefoinu og dómnefndin sá þá engan mun á 50 Hz- og 100 Hz-tækjum. Snöggar hreyfingar geta orðið loðnar og óeðlilegar og titlar sem hreyfast hratt (t.d. í enda sjón- varpsþáttar eða bíómyndar) greinast illa. Og til að kostir 100 Hz-tækninnar nýtist yfír- leitt þurfa móttökuskilyrði og loftnet að vera mjög góð. Myndgæði Myndgæðin skipta mestu máli í gæðakönnunum ICRT, vega 35% (þægindi í notkun vega 25% og hljóðið 20%). Sjón- varpstækin fá flest svipaðar einkunnir tyrir myndgæði og ekkert þeirra lægri en meðal- einkunn. Hins vegar er það umhugsunar- og áhyggjuefni að ekki eitt einasta tæki í könnuninni fær hámarksein- kunn. Meira um skjái Sífellt fleiri sjónvarpsgerðir eru nú með flötum skjá („real“ flat). Hann hefur tvo kosti umfram eldri, kúpta gerð: Hægt er að horfa á flatskjá að Lítið á www.ns.is Lykilorð: af.27 1 nýrri markaðskönnun Neytendablaðsins á www.ns.is eru alls 117 gerðir sjónvarpstækja. Þar koma fram mörg atriði um hverja gerð, t.d. stað- greiðsluverð, seljendur, framleiðsluland, skjástærð, tengjamál, ýmsar stillingar, fjöldi síðna í minni texta- varps og athugasemdir. ítarlegri umtjöllun og nánari upplýsingar um stóru sjónvarpstækin er á vef Neytendasamtakanna, www.ns.is. Lykilorðið er af.27. Úrvalið í markaðskönnuninni eru 117 tæki á verðbilinu um 43-550 þús. kr. Flest eru í dýrasta flokknum, 16:9 og 100 Hz. Gerðir, tækni og verð Skjár: 50 hz 100 hz 4:3 31 geró 22 gerðir Verðbit: 43-299 þús. kr. Verðbil: 85-297 þús. kr. 16:9 17 gerðir 47 gerðir Verðbil: 80-180 þús. kr. Verðbit: 100-550 þús. kr. NEYTENDABLAÐIÐ - júní 2002 11

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.