Foringinn - 01.03.1972, Side 4
Að utan:
Nii' raunu vera í heiminum u.þ.b. 20 millj .
skáta, er'skiptast í nær 13 milljónir drengja-
skáta og 7 milljónir kvenskáta í 102 löndum.
Þar af eru 23 lönd í Evrópu, með um 1.400.000
drengjaskáta.
Alþjóðaskrifstofa drengjaskáta er í Genf
í Sviss. Þar er og til Hilsa Evrópuskrifstofan,
er sár um ýmis sameiginleg mál skátabandalaga
í Evrópu.
Alþjóðlegt leiðbeinendanámskeið var haldið
á Úlfljótsvatni um s.l. páska. Stjórnendur voru
Jörgen Rasmusen, framkv.stj. Evropuskrifstofunnar,
Hennig Mysager frá foringjaþjálfunarráði Evrópu-
skrifstofunnar og Ingólfur Armannsson. Þátttakendur og aðstoðar-
fólk var liðlega 20.
Undirbáningur fyrir Jamboree 1975 er þegar hafinn. Rætt
er nána um skiptingu verkefna milli skátabandalaga Norðurlanda.
En eins og kunnugt er munu Norðurlönd (Svíþjóð, Noregur, Danmörk,
Finjiland og ísland) í félagi standa að mótinu. Mótinu hefur
verið valinn staður við Lillehammer í Noregi og mun standa dagana
3.-12. ágúst 1975. Þátttaka er áætluð 15.000 skátar.
Sameiginlegur fundur fulltrúa skátabandalaga Norðurlanda
verður haldinn í ðsló um miðjan maí n.k. Þar munu ýmis mál
bera á góma, svo sem aukið samstarf kvenskáta og drengjaskáta
svo og Jamboree 1975. Páll Gíslason skátahöfðingi situr fundinn
fyrir hönd B.Í.S.
Alþjóðaráðstefna kvenskáta verður haldin í Kanada í sumar.
B.Í.S. mun senda fulltrúa á þessa ráðstefnu.
Evrópuráðstefna drengjaskáta verður haldin í Istanbul í
Tyrklandi I lok september n.k. Aukið samstarf kvennskáta og
drengjaskáta verður ofarlega á baugi þar. Fulltrúi íslenzkra
skáta mun sitja þessa ráðstefnu.
Næstkomandi sumar munu 15 enskir skátar 16-17 ára gamlir
koma til íslands. Munu þeir ferðast um landið en dveljast í
Reykjavík 25.-26. júlí og aftur 13.-14. ágúst. Hafa þeir sýnt
áhuga á að hitta hér íslenzka skáta á líku reki.
Framh. á bls. 14
4