Foringinn - 01.03.1972, Qupperneq 8

Foringinn - 01.03.1972, Qupperneq 8
Skátastarf ad FLÚÐUM 18.-19. marz fór fram kynning á skátastarfi að Fláðum í Hrunamannahreppi. Aðdragandi þessarar ferðar var sá, að B.Í.S. fér fram á það við fálagsforingja Dalbáa í Rvík, og Svannasveitina Emblu í Kópavogi, að fræða hrunamenn um vort göfuga starf. En áður höfðu Fláðabúar óskað eftir slíkri kynningu. Við vorum 9, sem tókum þátt í þessari ferð. Frá Dalbúum voru 5, og frá Emblu 3, en níundi maður var frá H.S.S.R. Eftir 2 tíma ferðalag fengum við frábærar móttökur, hlaðið kaffiborð, samtal við ráðamenn á staðnum,og um kvöldið byrjaði alvaran af fullum krafti. Kynningin hófst kl9, en áður höfðum við komið upp smá sýningu á ýmsum skátahlutum, bókum, merkjum, skikkjum, vinnubókum og bæklingum sem var dreift á milli fólksins. Kynningin fór fram í fyrirlestrarformi og skiptum við verkefnum á milli okkar. Talað var um ljósálfa og ylfinga, upphaf og uppbyggingu hins raunverulega skátastarfs, búninga og merki, fólagsskipan, inni og úti störf, dróttskáta, forseta- merkið, blaðaútgáfu og inntöku-athafnir innan dróttskátasveita, hjálparsveitir og störf þeirra. Kvikmindir voru einnig sýndar úr skátastarfinu, útilegum og mótum. Á milli atriða voru kennd og sungin skátalög. Reiknað var með, að áheyrendur vorir kæmu með fyrirspurnir varðandi skátastarfið, en ekki voru þær margar. Áheyrendurnir voru um 20 fullorðnir og 50 börn, sem báru fram flestar spurningarnar. Þá var skipt yfir í lóttara form og smá kvöldvöku slegið upp, með leikjum og söng. Á sunnudagsmorgni var áætlað að þeir sem áhuga höfðu á starfinu kæmu og ræddu við okkur, en helst til lítið varð úr því, fyrir utan það, að Atli, fóí.for. Dalbúa, Thor, frá H.S.S.R. ræddu við slökkviliðsstjóra staðarins. Árangur af för þessari er ekki hægt að segja um. Það er sjálfsagt erfitt að koma élíku starfi af stað, en við vonum hið besta, og að byrjunarörðugleikarnir drepi ekki þann áhuga sem fyr ir er. Móttökurnar sem við fengum voru £ alla staði frábærar, * og lýsum við því hór með yfir, að við í Emblu tökum allar slíkar ferðir að okkur í framtíðinni, ef óskað er. fyrir hönd okkar allra, Aðalbjörg ðlafsdóttir.

x

Foringinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foringinn
https://timarit.is/publication/905

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.