Bændablaðið - 10.05.1995, Blaðsíða 8
8
Bœndablaðið
Miðvikudagur 10. maí 11995
Markaðsmál
Það er af sem áður var þegar
búvörumar “seldust af sjálfu sér”.
Þær lúta sömu lögmálum og flestar
vörur gera í dag; til þess að ná
athygli og vekja áhuga neytenda,
þarf að ástunda öflugt markaðs-
starf.
Samstarfshópur um sölu á
lambakjöti hélt nýverið blaða-
mannafund til þess að kynna það
sölustarf sem í gangi er um þessar
mundir.
Á fundinum kom m.a. fram að
hópurinn fær til starfsemi sinnar
hlut sauðfjárbænda í endurgreiddu
kjamfóðurgjaldi og hluta af neyt-
enda- og jöfnunargjaldi.
Að undanfömu hefur hluta af
beingreiðslum verið varið til
markaðsaðgerða, en þeim verður
að veija til verðlækkana, sem skila
sér til neytenda. Hluta þess fjár,
sem til ráðstöfunar er á þessu ári,
var varið til að lækka verð á birgð-
um af framleiðslu verðlagsársins
1993/94 en um 55 milljónir króna
em til ráðstöfunar og verður þeim
varið til fjögurra verkefna sam-
kvæmt áætlun samstarfshópsins.
sagað á mismundandi vegu í sneið-
ar, heil stykki eða bita.
Kjötið er pakkað í lofttæmdar
umbúðir í snyrtilega kassa með
glæm loki, svo auðvelt er að skoða
innihaldið. Gert er ráð fyrir að
smásöluverð verði um kr. 625/kg.
er best á grillið” Hún stendur til
júlí loka. Samkomulag verður gert
við afurðastöðvar og kjötvinnslur
þannig að smásöluverð lækki um
a.m.k. 15 % á því kjöti sem
sannanlega verður selt sem verkað
grillkjöt.
búðum sem eykur geymsluþol
vömnnar o.fl. Einnig em ýmsir
tilbúnir réttir á boðstólum.
Lambakjöt í yfir 200
útfærslum
í könnun, sem samstarfshópurinn
gerði nýverið í stórmarkaði í
Reykjavík, kom í ljós að á boð-
stólum vom rúmar 200 útfærslur af
lambakjöti eða réttum unnum úr
þeim.
Mikið vöru-
þróunarstarf
Afurðasölur og kjötvinnslur hafa
unnið mikið starf við vömþróun og
markaðssetningu á lambakjöti.
Því til sönnunar sýndi sam-
starfshópurinn fjölmiðlafólki ýmsa
gimilega hluta af lambakjöti. Þeir
heita safaríkum nöfnum svo sem
púrtvínslegið læri, hunangskóti-
lettur, lambasveppasteik, óðalslæri
1. Bestu kaupin
Undanfamar vikur hefur verð
verið lækkað á lambakjöti í gæða-
flokkunum DIA en það er niður
sagað og selt í merktum pokum
undir vömmerkinu “Bestu kaupirí’.
Þama getur fólk fengið fyrsta
flokks vöm á mjög hagstæðu
verði og er leiðbeinandi smásölu-
verð nú kr. 439/kg.
2. Snyrt lambakjöt.
Um þessar mundir er að koma á
markaðinn snyrt lambakjöt, niður
3. Lambakjötsdagar
Þeir eru að hefjast í verslunum um
þessar mundir. Gert er samkomu-
lag við verslanir um að leggja
áherslu á sölu á lambakjöti í
ákveðinn tíma. Verð er lækkað
nokkuð með beingreiðslufé og
lögð áhersla á góða kynningu með
auglýsingum og fleim.
4. Grillkjöt
Sérstök söluherferð hefst 18. maí
nk. undir slagorðinu “Lambakjöt
Áhersla á uppþýtt kjöt
og tilbúna rétti
Um þessar mundir leggur sam-
starfshópurinn áherslu á að kynna
lambakjöt í skyndirétti svo og til-
búna rétti sem stutta stund tekur að
hita upp í örbylgju- eða bakarofni.
Með því að bjóða kjöt í þessu
formi er komið til móts við fólk
sem ekki vill eyða miklum tíma í
matreiðslu.
Þegar að er gáð er framboð
mikið af slíku lambakjöti, þýddir
vöðvar, kjöt í loftskiptum um-
Yfirlit um framleiðslu og sölu ýmissa búvara
Framleiðsla Mars Jan. '95- April '94 Breyting frá fyrra tímabili, %
1995 mars. '95 mars '95 mars '94 3 mán. 12 mán.
Kindakjöt, kg 180 1.177 8.795.642 -0,7
Nautakjöt, kg 283.606 757.706 3.502.254 -6,8 -5,3 6,9
Svínakjöt, kg 255.654 691.511 3.205.150 -15,5 -1,0 10,2
Hrossakjöt, kg 38.568 142.493 814.474 11,1 4,3 -6,4
Alifuglakjöt, kg 139.088 386.357 1.405.632 22,9 14,6 -8,3
Samtals kjöt, kg 717.096 1.979.244 17.723.152 -5,4 0,2 1,6
Innv. mjólk, Itr. 8.104.132 23.922.627 101.037.999 -3,8 -4,1 0,2
Egg, kg 176.815 554.663 2.218.282 -10,4 -2,8 -2,2
Mars Sala innanlands 1995 Jan. '95- mars. '95 Apríl '94- mars '95 Breyting frá fyrra tímabiii, % mars'94 3 mán. 12mán.
Kindakjöt, kg 376.749 941.120 6.806.003 -39,7 -30,8 -14,9
Nautakjöt, kg 276.528 763.899 3.235.442 -4,0 -2,2 -0,5
Svínakjöt, kg 261.033 666.579 3.175.072 -23,6 -5,2 8,9
Hrossakjöt, kg 62.648 195.615 624.269 97,2 48,5 -2,1
Alifuglakjöt, kg 132.289 336.230 1.376.703 8,0 6,9 -9,7
Samtals kjöt, kg 1.109.247 2.903.443 15.217.489 -21,3 -11,7 -6,8
Mjólkurvörur í Itr.:
Umr. m.v. fitu 8.633.355 24.025.713 100.313.658 2,9 2,3 1,9
Umr. m.v. prótein 9.145.526 25.308.300 100.964.131 0,7 1,4 0,7
Egg, kg 196.390 528.163 2.186.856 -8,4 -6,6 -5,1
og margt fleira. Þama gat t.d. að
líta nafnlaust, léttreykt fyrirbæri
sem líktist beikoni og er unnið úr
framparti. Þama gat einnig að líta
sérpakkaða lambavöðva sem
meyma í umbúðunum. Þetta er
vara, sem væntanleg er á
markaðinn. Sama er að segja um
“nagga”. Þeir em væntanlegir á
markað og verður þeim gerð
nánari skil þegar þar að kemur.
Uppskrifta-
samkeppni
í vor verður efnt til uppskriftasam-
keppni í samstarfi við Matreiðslu-
klúbb Vöku Helgafells. Áskrif-
endur Nýrra eftirlætisrétta fá
upplýsingar um keppnina í síðari
hluta maí. Keppnin verður einnig
auglýst í fjölmiðlum svo allir geti
tekið þátt í henni.
Keppnin felst í því að semja
uppskrift að hollum og góðum
skyndirétti úr lambakjöti og verða
góð verðlaun í boði. Markmiðið
með keppninni er að hvetja fólk til
fjölbreytni og nýjunga í notkun á
lambakjöti.
Framleiósla og sala
Vemleg framleiðsluaukning (22,9
%) var á alifuglakjöti í mars sl.
miðað við mars í fyrra. Fram-
leiðsla hrossakjöts óx einnig á
sama tímabili (11,1%). Fram-
leiðsla svínakjöts er hins vegar
15,5% minni og nautgripakjöts
tæpum 7% minni nú í mars saman-
borið við mars 1994. Á 12 mánaða
tímabili er hlutfallsleg aukning
mest í framleiðslu á svínakjöti
(10,2 %) en mestur samdráttur er í
framleiðslu alifuglakjöts (8,3 %).
Salan á kjötmarkaðnum veldur
áhyggjum. Heildarsala á kjöti dróst
saman um 21,3% í mars m.v. mars
Jón Ragnar Bjömsson
í fyrra. Það er auðvitað varasamt
að líta aðeins á einn mánuð í þessu
samhengi því ýmsir þættir geta
valdið miklu útslagi á svo stuttu
tímabili. Samdráttur í kjötsölunni
er 6,8% á 12 mánaða tímabili og
11,7% á þriggja mánaða tímabili.
Samdráttur í sölu kindakjöts
vegur mest því hlutdeild þess er
um 45% í kjötmarkaðnum. Árssala
kindakjöts er nær 15% minni nú en
árið áður og um 40% samdráttur er
í mars. Svínakjöt er eina kjöt-
tegundin sem sýnir söluaukningu á
12 mánaða tímabili (8,9%) þótt
samdráttur sé í sölu þess í mars og
undanfama þrjá mánuði. Þær kjöt-
tegundir, sem em með hlutfalls-
lega aukningu í sölu undanfarið
em hrossakjöt (+48,5% á þremur
mánuðum og +97,2% í mars) og
alifuglakjöt (+6,9% á 3 mánuðum
og +8,0 % í mars).
Innvegin mjólk dregst lítils-
háttar saman til skemmri tíma litið
(-4,1% undanfama 3 mánuði) en
stendur nánast í stað miðað við 12
mánuði (+0,2%). Salan er á
svipuðum nótum og í fyrra því
miðað við 12 mánaða tímabil vex
hún um 1,9 % umreiknað á fitu og
0,7 % umreiknað á prótein.
Framleiðsla eggja er 2-3%
minni hvort heldur litið er á
þriggja eða tólf mánaða tímabil.
Salan hefur einnig dregist saman
eða um 5,1% á tólf mánaða tíma-
bilinu.
Ekki
verOuppbætur lí
ungkálfa
Stjóm Landsambands kúabænda
ákvað á fundi sínum þann 26. apríl
sl. að fella niður verðbætur á
slátraða ungkálfa frá og með 1.
maí. í samþykkt stjómarinnar varð-
andi nautakjötsmarkaðinn segir:
I
Fella niður verðbætur á slátraða
ungkálfa frá næstu mánaðamótum,
með það í huga að nýta þá
fjármuni sem við það sparast til
markaðsstarfs ekki síst erlendis
(USA).
II
Kynna framleiðendum rækilega að
með því er ekki verið að hvetja til
ásetnings allra kálfa þar sem engan
veginn er hægt að tryggja að
útflutningurinn muni skila fullu
verði. Framleiðendur verði hver
fyrir sig að meta áhættuna í því
sambandi.
III
Koma því til leiðar við Bænda-
samtök Islands að teknar verði upp
leiðbeiningar um nautgripaeldi og
kynning á mati nautgripakjöts.”