Bændablaðið - 25.06.1996, Side 1
Sn'nabændur
í Bændahfill
Skrifstofa Svínaræktarfélags
íslands er nú flutt úr Þverholti 3 í
Mosfellsbæ í Bændahöllina. Til
þess að hafa samband við
skrifstofu SFÍ er hægt að hringja
beint í skiptiborð hjá BÍ eða beint
númer 563 0334. Þar sem
formaður, Kristinn Gylfi Jónsson,
er í hlutastarfi verður skrifstofan
ekki opin alla daga en sírr.atími til
að byija með verður á
miðvikudögum frá kl. 12:30 til
16:00 og föstudögum frá kl. 10:00
til 14:00.
I athugun að
framleiða
rabarbarvín í
Borgarnesi
Forsvarsmenn Engjaáss ehf.
eru að athuga hvort hag-
kvæmt sé að framleiða rabar-
baravín, en Engjaás ehf. sér
um framleiðslu á öllu áfengi
öðru en bjór sem löglegt er að
framleiða á íslandi. Áður en
það gerist er ætlunin að hefja
framleiðslu á rabarbaragraut.
Engjaás ehf. framleiðir ýmsar
tegundir af ávaxtagrautum. Auka
á fjölbreytni hjá þessari fram-
leiðsluþeild fyrirtækisins m.a.
með framleiðslu á rabarbaragraut.
og því auglýsir fyrirtækið í
Bændablaðinu eftir rabarbara.
Einnig er áætlað að hefja
fljótlega framleiðslu á ýmsum
tegundum af sultum, marmelaði
og ávaxtadesertum og þá úr
rabarbara ekki síður en úr öðrum
ávöxtum eða grænmeti.
Bændablaðið
Lesendur og
auglýsendur
athugið,
Bændablaðið kemur næst út
um miðjan ágúst og verður
það helgað átakinu “Bændur
bjóða heim”. Að því tilefni
verður blaðinu dreift í öll
heimili landsins. Væntanlegir
auglýsendur eru hvattir til að
hafa samband sem fyrst.
Það var létt yfir þeim Ara Teitssyni formanni Bœndasamtaka íslands, Sigurgeiri Þorgeirssyni framkvœmdastjóra BÍ og Guðmundi Bjarnasyni
landbúnaðarráðherra við opnun beendadaga í Hagkaupi. Þeir skáluðu í ógerilsneiddri og ófitusprengdri mjólk og líkaði vel.
“Mér líst afar vel á þetta framtak þeirra
Hagkaupsmanna. Það er virðingarvert og ég
trúi því og vona að það auki ekki eingöngu
kaup fólks á landbúnaðarvörum heldur hafi
áhrif á viðhorf þess til íslensks land-
búnaðar,” sagði Guðmundur Bjarnason,
landbúnaðarráðherra við upphaf bœnda-
daga í Hagkaupi.
Bændadagarnir hófust 20. júní í öllum
verslunum fyrirtækisins og þeim lýkur um
mánaðamótin. í tilefni átaksins verða gefin
út sérstök blöð þar sem greint er frá til-
boðum í verslununum og komið á framfæri
ýmsum upplýsingum um landbúnað.
“Ástæðan fyrir þessum bœndadögum er sú
að stór hluti veltu Hagkaups eru land-
búnaðarafurðir og umræðan um landbúnað
á íslandi hefur verið mjög neikvæð síðustu
ár. Með þessu átaki vildum við leggja okkar
lóð á þá vogarskál að breyta ríkjandi
viðhorfi,” sagði Árni Ingvarsson, sem annast
kjötinnkaup fyrir verslanir Hagkaups.
Þess má geta að á bændadögum verða
um 90 tilboð af ýmsu tagi auk fjölmargra
vörukynninga. Islenskur landbúnaður
verður því vel kynntur í Hagkaupi á
bœndadögum.
Sýning á lífríki í íslenskum
vötnum verður opnuð á Hólum
í Hjaltadal 6. júlí næst
komandi. Sýningin á Hólum
er nýmæli á íslandi en þar
mun fólki gefast einstakt tæki-
færi til þess að skoða íslenska
fiska og önnur vatnadýr í
eðlilegu umhverfi. Sýningin er
byggð á nýjustu rannsóknum
á vistfræði íslenskra vatna
sem Hólaskóli er þátttakandi í.
Það er Þorleifur Eiríksson
dýrafræðingur sem hefur haft veg
og vanda að undirbúningi sýning-
arinnar. Að sögn hans verða á
sýningunni stór búr með íslenskum
vamafiskum. Búrin eru 900-2500
lítra og gefa þau því fiskunum
mikið svigrúm. Þar verða allar
tegundir íslenskra vatnafiska:
homsfli, áll, lax, urriði og bleikja.
“Bleikjan er mjög fjölbreytt í
útliti,” segir Þorleifur. “í Þing-
vallavatni eru til dæmis fjórar
gerðir sem allar verða á
sýningunni. Þannig gefst gott
tækifæri til þess að bera þær saman
á aðgengilegan hátt.”
Smádýralífið í íslenskum
vötnum fær sinn sess á sýningunni
en sýnd verða mismunandi vist-
kerfi með tilheyrandi dýralífi.
Hver staður hefur sínar einkennis-
tegundir að sögn Þorleifs. Þannig
er skömormur áberandi í tjömum á
hálendinu en í mógröfum em það
brunnklukkur og ræðarar. Búrin á
sýningunni verða löng en mjó
þannig að dýrin verða alltaf nálægt
áhorfandum og því verður auðvelt
að skoða atferli bæði fiska og
smádýra.
Á Hólum er sem kunnugt er
miðstöð í kennslu í fiskeldi og þar
em framkvæmdar viðamiklar
rannsóknir sem verða kynntar í
tengslum við sýninguna. Ferða-
menn geta því t.d. fengið að skoða
mismunandi stofna sem verið er að
kynbæta. Umfram allt er þess
kappkostað að gera sýninguna
aðgengilega fyrir almenning
þannig að fólk öðlist ríkari með-
vitund um umhverfi sitt, í þessu
lífríki íslenskra vatna.
Hólar í Hjaltadal er fjölsóttur
ferðamannastaur og þeim fjölgar í
sífellu sem vilja dvelja um lengri
eða skemmri tíma á staðnum.
Sögufrægð staðarins og hin fagra
dómkirkja laða fólk heim að
Hólum en undanfarin ár hefur
verið lagt kapp á að bæta þjónustu
við ferðamenn og nú er reldn fjöl-
breytt gistiþjónusta á staðnum og
veitingasala yfir sumartímann.
Sýningin á lífríki íslenskra vama er
liður í því að auka þjónustuna við
ferðamenn og gefa þeim kost á af-
þreyingu sem er í sem fræðandi og
skemmtileg./GÞ