Bændablaðið - 25.06.1996, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 25.júní 1996
Bœndablaðið
13
Undanfarin ár hefur fram-
leiðsla lambakjöts verið um
helmingur af kjötframleiðslu í
landinu. Miðað við könnun Mann-
eldisráðs sem kom út 1992, er
meðalársneysla lambakjöts um 24
kg, þremur kg minna en áætluð
fiskneysla. Það er því ljóst að
berist hingað geislavirk efni í
stórum stfl, þá getur umtalsvert
magn efnanna komist í fæðukeðju
okkar með lambakjöti. Árið 1990
hófust hér á landi rannsóknir á því
hversu mikið berst af geislavirkri
samsætu sesíns (137Cs) úr jarð-
vegi og gróðri í sauðfé. Fóður-
deild Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins stendur að þessu verk-
efni í samvinnu við Geislavamir
rfldsins og er hér um að ræða hluta
af samnorrænu verkefni íslands,
Færeyja, Noregs, Svíþjóðar og
Danmerkur.
Ýmis geislavirk efni hafa
dreifst út í náttúruna af manna
völdum vegna kjamorku-
sprenginga í andrúmslofti, kjam-
orkuiðnaðar og kjamorkuslysa.
Algengast er að fylgjast með
geislavirka efninu 137Cs því það
er tiltölulega langlíft (magn þess
rýmar um helming á hveijum 30
ámm) og það ferðast greiðlega um
fæðukeðjuna.
Við Islendingar höfum yfirleitt
talið að einangrun landsins væri
trygging okkar fyrir ómenguðu
umhverfi. Svo þarf þó ekki að
vera því varasöm efni geta borist
með háloftavindum og úrkomu
langar leiðir. Nú em tíu ár liðin frá
Tjemobylslysinu og varð það
mönnum veruleg áminning.
Geislavirk efni bámst þá víða um
Evrópu, en nær ekkert barst hingað
Við Islendingar höfum
yfirleitt talið að einangrun
landsins væri trygging
okkarfyrir ómenguðu um-
hverfi. Svo þarfþó ekki að
vera því varasöm efni geta
borist með háloftavindum
og úrkomu langar leiðir.
Nú eru tíu ár liðinfrá
Tjemobylslysinu og varð
það mönnum veruleg
áminning. Geislavirk efhi
bárust þá víða um Evrópu,
en nœr ekkert barst hingað
til lands vegna hagstœðra
skilyrða. Ekki er víst að
við verðum svo heppin
næst
til lands vegna hagstæðra skilyrða.
Ekki er víst að við verðum svo
heppin næst. Viðbrögð við þessari
mengun urðu hörð víða í Evrópu,
einnig á svæðum þar sem lítilla
heilsufarslegra áhrifa var að vænta.
Jafnvel lítil geislamengun í mat-
vælum gat haft í för með sér að
þau urðu ósöluhæf.
I þessum rannsóknum hefur
sýnum verið safnað á þremur
stöðum, á hálendismóa á Auðkúlu-
heiði, láglendismýri að tilrauna-
búinu á Hesti í Borgarfirði og á út-
hagamóa á tilraunastöðinni að
Stóra Ármóti. Geislavamir ríkis-
ins hafa einnig mælt styrk geisla-
virks sesíns í lambakjötsýnum frá
sláturhúsum víðs vegar um land á
hveiju hausti frá og með árinu
1989.
Þessar rannsóknir staðfesta að
styrkur geislavirks sesíns er lítill
hérlendis. í kjöti er styrkurinn
langt undir viðmiðunarmörkum
sem notuð em í alþjóðavið-
skiptum. Styrkur geislavirks
sesíns getur verið mjög breytilegur
vegna ýmissa þátta, svo sem jarð-
vegsgerðar, úrkomu, gróðurfars og
fæðuvals lamba. Aðrar rannsóknir
benda til þess að sesín sé
tiltölulega lausbundið í íslenskum
jarðvegi, sem veldur því að hlut-
fallslega meira af efninu berst í
gróður og þar með í skepnur.
Niðurstöður úr þessum rann-
sóknum staðfesta einnig að hverf-
andi lítið magn geislavirkra efna
barst hingað eftir slysið í Tjemo-
byl. Þau geislavirku efni sem hér
er að finna bámst hingað fyrir
rúmlega 30 ámm þegar tilraunir
með kjamorkuvopn vom enn
stundaðar í andrúmsloftinu.
Niðurstöður þessa verkefnis hafa
verið notaðar sem gmnnur í
norrænt reiknilíkan þar sem skoða
má áhrif geislamengunar í um-
hverfi á það magn sem berst í
sauðfé og hvemig bregðast megi
sem best við ef til slíkrar mengun-
ar kemur.
Niðurstöður þessara rannsókna
staðfesta að lítið er að finna af
geislavirkum efnum í íslensku
lambakjöti. Reynslan af viðbrögð-
um við Tjemobylslysinu sýnir að
reglubundnar mælingar og
rannsóknir á þessu sviði em
mikilvægar vegna sölu á erlendum
jafnt sem innlendum mörkuðum.
Jóhann Þórsson,
Rannsóknastofnun
landbúnaðarins
Sigurður Emil Pálsson og
ElísabetD. Ólafsdóttir,
Geislavörnum ríkisins
Bændur
Neporex WSG2
Alficron Plus
Verjist flugnavandamálinu fyrirfram.
Notið Neporex beint á lirfurnar,
fljótlegt.
Súfluga er ekkifœdd sem lifir af Alficron
Fljótvirkt - öruggt - langtímavirkni ca 7 vikur
-enginn sprautun - penslað.
Engar lirfur, engar flugur Engar flugur, engar lirfur "TE5JCS