Bændablaðið - 15.10.1996, Side 1
Alþjóðaviðskiptastofnunin
vel innan markn
í landbúnaðarhluta samnings-
ins vegna aðildar íslands að
Alþjóðlegu viðskiptastofnun-
inni eru ákvæði um hversu
mikiil innanlandsstuðningur
skuli leyfður, skuldbindingar
um innflutningskvóta og
skuldbindingar um lækkun út-
flutningsbótagreiðslna ríkis-
ins. Aðildalöndunum ber að
tilkynna árlega hvernig við
þessar skuldbindingar hefur
verið staðið. Tvær tilkynningar
hafa verið sendar inn af hálfu
íslands. Annars vegar hvernig
staðið er að úthlutun á inn-
flutningskvótum fyrir unnar og
óunnar landbúnaðarvörur og
hins vegar hversu mikinn
innanlandsstuðning land-
búnaðurinn hefur fengið á
fyrsta ári samningsins. Báðar
þessar tilkynningar hafa verið
teknar upp á fundum
landbúnaðarnefndar Alþjóða-
viðskiptastofnunarinnar.
Engar athugasemdir hafa ver-
ið gerðar fram að þessu af
hálfu aðildarþjóðanna um
framkvæmdina.
Að mati Guðmundar Sigþórs-
sonar í landbúnaðarráðuneytinu, sem
er formaður ráðgjafanefndar um inn-
og útflutning landbúnaðarvara sem
skv. ákvæðum búvörulaganna skal
vera landbúnaðarráðherra til ráðu-
neytis um þessi mál, ber það vott um
að við séum á réttri leið með fram-
kvæmd á ákvæðum samningsins um
stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar-
innar, sem margir kannast við sem
GATT-samninginn.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
mundar stöndum við vel að vígi
hvað varðar skuldbindingu um að
takmarka hinn svokallaða saman-
lagða innanlandsstuðning við land-
búnað. Samkvæmt skuldbinding-
um okkar mátti hann að hámarki
nema 15,4 milljörðum króna miðað
við meðalgengi á SDR (sérstökum
dráttarréttindum) en nam skv.
tilkynningu okkar til Alþjóðavið-
skiptastofnunarinnar 10,1 milljarði
kr. eða aðeins 2/3 hlutum af leyfi-
legri upphæð. Langmestur hluti
markaðsstuðningsins er tilkominn
vegna þeirrar tollverndar sem er
heimil skv. samningnum eða 9,4
milljarðar kr. Mismunurinn er mark-
aðstengdar greiðslur, sem hafa bein
áhrif á verðmyndun landbúnaðar-
afurðanna skv. þeim skilgreiningum
sem í samningnum er að finna.
Guðmundur sagði að fram
hefði komið á fundi landbúnaðar-
nefndarinnar, sem hann sat ásamt
fastafulltúa íslands í Genf, að
aðildarþjóðir að Alþjóðaviðskipta-
stofnuninni reyndu eftir megni að
breyta stuðnigsfyrirkomulagi við
þá veru að hann teldist til svo-
kallaðra “grænna greiðslna” sem
væru ekki markaðstruflandi og
þyrfti ekki að skera niður. Sam-
kvæmt ákvæðum samningins væri
ekki skylt að lækka greiðslur út á
einingu lands eða einingu búfjár,
ótengdar framleiðslumagni, sam-
kvæmt ákvæðum samningsins.
Rannsöknir i
snmnrexemi
lijii islenskim
iiestum
Nú er unnið að undirbúningi
rannsóknarverkefnis á sumar-
exemi hjá íslenskum hrossum
á erlendri grund þar sem
kanna á meðal annars hvort
um arfgengan sjúkdóm sé að
ræða.
Sumarexem er ofnæmi fyrir
skordýri sem ekki lifir hér á landi
en er útbreitt í öllum þeim löndum
sem íslenski
hesturinn er
fluttur út til.
Það er ákaf-
lega misjafnt
hversu næm
hrossin eru
fyrir of-
næmisvald-
inum og til-
gangur verk-
efnisins er
einmitt að
kanna hvort
hægt sé að
gera hrossa-
stofninn sterkari fyrir þessum
kvilla með ræktunarstarfi.
Rannsóknin verður unnin eftir
svipuðu módeli og rannsókn á arf-
gengi spatts hjá íslenskum hross-
um og er nú verið að fara yfir
skrár um íslenska hesta í hinum
ýmsu löndum til að velja hross í
verkefnið.
Styrkur fékkst frá Útflutnings
og markaðsnefnd íslenska
hestsins og er verkefnið á vegum
Hólaskóla og yfirdýralæknis en
stefnt er að samvinnu við
innlendar og erlendar
rannsóknastofnanir. Jakobína
Sigvaldadóttir dýralæknir hefur
verið ráðin verkefnisstjóri.
Bændablaðsmynd/Jón Eiríksson
15. október helgaður konum í dreifbýli
Alþjóðasamtök búvöruframleiðenda (IFAP) Iiafa ákveðið
að 15. október ár hvert skuli helgaður konum í dreifbýli
enda er vitað að í mörgum löndum heims framleiða konur
mikið meira en helming af landbúnaðarvörunum þóttþcer
ráði einungis yfir örlitlu broti af því landi og fjármunum
sem notaðir eru. Bœndasamtök íslands minnast dagsins í
þetta sinn með því að helga útgáfu Bœndablaðsins sem
ber upp á þennan dag konum í dreifbýli á íslandi. Á
myndinni er Gerður S. Ólafsdóttir á Ytri-Reykjum í
Miðfirði. - Sjá nánar ritstjórnargrein á bls. 4.
Heimilt að nota
hluta vaxta- og
geymslugjalds til
að ðrva slátrun
utan hefðbundins
Á undanförnum árum hefur
ríkissjóður greitt afurðastöðv-
um vaxta og geymslugjöld til
að standa undir kostnaði við
geymslu kjöts milli sláturtíða
og skapa grundvöll fyrir upp-
gjöri við bændur fyrir 15. des-
ember ár hvert.
I búvörusamningi frá 1.
október 1995 segir, að frá árs-
byrjun 1997 verði ráðstöfun vaxta
og geymslugjalda falin bændum.
Auk þess að mæta vaxta og
geymslukostnaði er heimilt að
nota hluta gjaldsins til að örva
slátrun utan hefðbundins slátur-
tíma, enda dragi sú slátrun úr þörf
á birgðahaldi.
Heildarfjárhæð til ráðstöfunar
í þessu sambandi á árinu 1997 er
240 milljónir.
Ekki hafa enn verið fast-
mótaðar reglur um úthlutun þessa
fjár en vænta má að afgreiðsla
vaxtagjalds til sláturleyfishafa taki
mið af hversu hátt hlutfall slátur-
leyfishafinn hefur greitt framleið-
anda vegna innlagðra sauðfjáraf-
urða á hverjum tíma.
Hugmyndir hafa verið uppi
um að greiða geymslugjald sem
eingreiðslu út á framleitt magn til
sölu innanlands með það að mark-
miði að koma í veg fyrir þá um-
ræðu að mánaðarleg geymslugjöld
verki letjandi á sölustarf./GG