Bændablaðið - 15.10.1996, Page 10
10
Bændablaðið
Þriðjudagur 15. október 1996
B kominn tfmi til nð
tennjnst Intennetinu?
Intemetið er á allra
vörum. Þó íslensku-
fræðingar hafi komið með
nokkrar tillögur að ís-
lensku heiti á fyrirbærinu
svo sem Alnet og
Heimsnet þá hefur nafnið
Intemet fest sig í sessi. En
hvað er hér á ferðinni?
Intemetið er net af
milljónum tölva sem
tengjast saman í eitt
alþjóðanet. Enginn einn
aðili á Netið né stjómar
því. Notendur, eða “net-
farar” eins og sumir vilja
nefna þá, skipta tugum
milljóna og fjölgar um
þúsundir á hverjum degi.
Notendur hafa stjómað
þróun Intemetsins sjálfir að mestu
leyti án afskipta opinberra aðila.
Undanfarið hafa þó nokkur lönd
samþykkt lög sem banna dreifingu
á ofbeldi og klámi. Þessu hafa
áköfustu netfarar mótmælt
harðlega. Þeir telja Intemetið vera
eins vinsælt og raun ber vitni
einmitt vegna þess að það hafi
fengið að þróast í friði án nokkurra
afskipta stjómvalda. Þessi þáttur er
mikilvægur meðal annars vegna
þess að í löndum þar sem ríkir
einræði og harðstjórn hefur Inter-
netið verið notað af lýðræðis-
sinnum til að koma skoðunum
sínum á framfæri við umheiminn.
Því hafa stjómvöld eins og Kína
haft illan bifur af útbreiðslu Inter-
netsins.
Einn af meginkostunum við
Internetið er hve þægilegt er að
leita að upplýsingum en til þess
eru svonefnt leitarforrit. Með
Intemetinu er unnt að senda tölvu-
póst heimshoma á milli á örskots
stundu. Hver og einn sem gerist
netfari fær netfang og aðgang að
póstkerfi. Það þýðir að allir geta
sent öllum hvenær sem er sólar-
hringsins. Aðsendur póstur bíður
þar til viðtakandi hefur samband
Jón Baldur
Lorange
forstöðumaður
Tölvudeildar BÍ
við Internetið. Með
tölvupósti er
mögulegt að
senda sendi-
bréf og
tölvu-
gögn
svo sem
forrit og
gagnaskrár.
Margir gerast
áskrifendur að efni á
Intemetinu og fá það síðan sent
reglulega í tölvupósti. Hér getur
verið um fræðilegt efni að ræða
eða afþreyingu af einhverju tagi.
Sumir netfarar nota Intemetið til
þess að spjalla við aðra netfara á
svokölluðum spjallrásum (chat
dægurmál
ýmiss
konar og
fræðingarnir
um fræðileg mál-
efni að sjálfsögðu. Fréttasjúkir
netfarar komast í feitt á netinu því
Hvað er unnt að gera á Intemetinu? Flestir nota Inter-
netið til að leita að margvíslegum upplýsingum. Upp-
lýsingamagnið sem fyrirfinnst þar er gífurlegt enda hef-
ur Netið verið kallað Upplýsingahraðbrautin (Informa-
tion Highway). Á Netinu eru upplýsingar frá fyrir-
tækjum, menntastofnunum, stjórnvöldum, þjóðþingum
(svo sem Alþingi íslendinga), einstaklingum o.fl. o.fl.
Hér gildir sannarlega orðtakið - Leitið og þér munuð
finna, segir Jón Baldur Lorange
channels). Sagt var frá því í fjöl-
miðlum fyrir nokkm að ungur
maður, hér á landi, hefði kynnst
sænskri stúlku með þessum hætti
sem leitt hafi til giftingar þeirra.
Sumir spjalla um stjórnmál eða
fjölmiðlar eru fyrir löngu búnir að
uppgötva möguleika Intemetsins.
Hægt er að gerast áskrifandi af
Morgunblaðinu og Dagblaðinu og
jafnframt er unnt að komast í allt
greinasafn Morgunblaðsins svo
dæmi sé tekið. Erlend blöð og
tímarit af öllum stærðum og gerð-
um finnur fólk á netinu. Ahugafólk
um stjómmál getur hoppað inn á
heimasíðu Alþingis íslendinga eða
Hvíta hússins í Washington. Á
heimasíðu Alþingis má skoða allar
ræður alþingismanna og frumvörp,
sem lögð hafa verið fram. Á
heimasíðu Alþingis má til dæmis
leita að öllum ræðum uppáhalds
stjómmálamannsins eða leita að
öllum ræðum eða frumvörpum þar
sem fjallað er um skattheimtu. Álls
konar verslun er einnig orðin áber-
andi og fyrir nokkm opnaði fyrir-
tækið Margmiðlun hf. “verslunar-
miðstöðina” Heimakringluna á
Netinu. Að síðustu má ekki
gleyma tölvuleikjum en
þeir finnast víst líka á
Internetinu. Skák-
áhugafólk getur teflt
eina skák við
annan netfara,
eða tölvuforrit,
eða fylgst með
mikilvægum
skákeinvígum í
beinni út-
sendingu á
skjánum.
En hvað
þarf til að
tengjast Inter-
netinu? Það
sem þarf er ein-
menningstölva,
hraðvirkt mót-
ald, aðgangur að
símalínu, sam-
skiptaforrit og
áskrift að Inter-
netinu. Þeir sem veita
áskrift að Intemetinu eru m.a.
fyrirtækin Skíma, Miðheimar og
Nýherji. Áskriftin kostar tæplega
kr. 2.000,- á mánuði. Við þetta
bætist svo símakostnaður og gildir
þar innanlandstaxti. Mikilvægt er
að kaupa nógu hraðvirkt mótald og
kemur þar ekki annað til greina nú
en hraðinn 28.800 b/s. Þó það sé
örlítið dýrara en hægvirkari þá er
það fljótt að borga sig vegna lægri
símareiknings. Verð á slíku mót-
aldi er frá kr. 15.000 - 50.000.
Rétt er að leita ráðlegginga hjá
fagmönnum áður en mótald er
keypt því þau eru mjög mismun-
andi. Með áskriftinni er innifalið
samskiptaforritið, sem er svo-
nefndur Web Browser, til þess að
tengjast veraldarvef (WWW -
World Wide Web) Intemetsins.
Einmenningstölvan þarf helst að
vera minnst með örgjörvan 486/33
MHz og öflugt skjákort, því mynd-
ræn vinnsla er eitt af aðals-
merkjum veraldarvefs Intemetsins.
Svínabændur
Mðhin kynbðiasielnu ng
innflutningun eriðaefnis
Á vegum Svínaræktarfélags
íslands og Fagráðs í svínarækt
er nú unnið að mótun kyn-
bótastefnu í svínarækt til
næstu 10 ára. Svínaræktarfé-
lag íslands hefur sl. ár unnið
að framræktun íslenska svína-
stofnsins m.a. með eflingu
skýrsluhalds og innflutningi á
erfðaefni til þess að kynbæta
íslenska svínastofninn. Fag-
ráð í svínarækt var stofnað sl.
vetur og tók við verkefnum
svínaræktarnefndar sam-
kvæmt lögum um búfjárrækt. í
fagráði situr Félagsráð SFÍ á
hverjum tíma ásamt tveimur
fulltrúum frá Bændasamtökum
íslands þ.e. lands-
ráðunaut í svínarækt
og stjórnarmanni hjá
Bl.
SFI á og rekur ein-
angmnarstöð fyrir svín í
Hrísey. Síðan í ágúst
1995 hafa verið flutt yfir
500 svín af norskum
landskynsstofni á svína-
bú vítt og breytt um
landið. Jafnframt hefur
verið samið við svína-
bændur í Smárahlíð í Hmna-
mannahreppi um að framrækta og
varðveita heilbrigðisstig norska
stofnsins. Megintilgangur með
innflutningi norska landkynsins
var að auka hagkvæmni svína-
kjötsframleiðslunnar og draga úr
skyldleikarækt í svínaræktinni hér
á landi með því að blanda norska
svínastofninum saman við íslensku
svínin. Nú í vetur munu koma á
markaðinn blendingar af íslensk-
norska stofninum.
Mjög mikilvægt er að móta
skýra kynbótastefnu til nánustu
framtíðar svo íslensk svínarækt
geti á sem hagkvæmastan hátt búið
sig undir vaxandi
samkeppni í framtíðinni.
Ákveðið hefur verið að
leita eftir ráðgjöf frá
Danske slagterier í
Danmörku um fyrir-
komulag svínakynbóta á
íslandi. Þetta er ekki
óeðlilegt því að Danir
eru í fremstu röð í
svínarækt í veröldinni.
Margt bendir til þess
að þar sem svínarækt er
tiltölulega lítil hér á landi miðað
við nágrannalöndin, verði seint
hægt að ná sama árangri í
svínarækt og þar. Því er allt útlit
fyrir að íslensk svínarækt verði í
framtíðinni að tengjast svínarækt á
Norðurlöndunum og flytja verði
reglulega inn erfðaefni til þess að
íslenskir svínabændur sitji við
sama borð hvað varðar hagkvæma
svínastofna.
Mikill áhugi er fyrir því meðal
svínabænda að flytja inn Yorkshire
svínastofn og þá helst frá Finn-
landi. Noregur og Finnland eru
þau lönd sem til greina koma að
flytja inn erfðaefni frá og er það
aðallega af heilbrigðisástæðum þar
sem Island og þessi lönd eiga það
sameiginlegt að vera laus við
marga alvarlega svínasjúkdóma.
Einnig er áhugi fyrir því að
flytja inn Landkyn frá Finnlandi
og nota það til þess að bæta og
viðhalda norska landkyns-
stofninum.
Svínaræktarfélag Islands hefur
óskað eftir viðræðum við yfirdýra-
lækni og landbúnaðarráðuneytið
um fyrirkomulag á innflutningi á
erfðaefni í svínaræktinni í náinni
framtíð.
Er eitthvað á
netinu fyrir garð-
yrkjubændur?
Vinsældir alnetisins eöa Internet aukast dag
frá degi en gagnsemi þess liggur ef til vill ekki
í augum uppi. I garöyrkju hafa Amerikanar
forustu minnsta kosti hvaö fjölda heimasíöna
varöar. Mikiö er af efni sem fyrst og fremst er
beinttil almennings en einnig máfinna
sérhæföar greinar fyrir garðyrkjubændur. Hér
á eftir fara vefföng sem aö ég hefi rekist á og
gætu veriö.til gagns og gamans fyrir
einhverja. í flestum tilfellum þarf svo nefndan
viewertil að þýöa greinar en þoöiö er uþp á
aö hlaöa honum inn í gegnum netiö.
Dr. John Erwin, háskóianum í
Minnesóta.Veffang: http://134.84.58.52
Þarna má finna ýmsar ræktunarupplýsingar
en erfitt er aö komast inn.
Dr. Dan Lineberger, TexasA&M. Veffang:
http://aggie-horticulture.tamu.edu.
Á Nursey/Floral Information síöunni má sjá
greinar sem hægt er að nálgast og prenta út.
Dr. Dough Bailey, háskólanum í N-Karolínu.
Veffang:
http//www2.ncsu.edu/unity/lockers/project/
floriculture/www/index.html
Þama má finna ýmsan fróöleik m.a. forrit sem
reiknar út magn af sýru til aö ná ákveönu pH í
lausn.
Tim Rhodus, háskólanum í Ohio. Veffang
http://hortwww-2.ag.ohio-state.edu
Auk margvíslegs fróöleiks má finna hér slóöa
sem leiða þig á aöra markveröa staöi. Hér má
leita aö upplýsingum meö leitarstreng
(search) hjá háskólum og
rannsóknastofnunum i USA, Kanada og
Hollandi.
Grower Talks, tímarit. Vetfang :
http//www.growertalks.com
Hér þarf aö skrá sig og fá Kilorö. Hérna
getur maðurflett upp grei um um ákveöin
efni, sem birst hafa í Floraculture International
og GrowerTalks. Einnig er nægt að fletta upp
auglýsingum og auglýsa.
í Noregi er háskólinn í Ási meö heimasíöu (
http://wwwnlh.nlh.no/).
Þar má finna ýmsar upplýsingar og greinar en
hægt er aö komast beint í þær undir veffangi:
http://wwwnlh.nlh.no/institutt/ipf/puþlikasjone
r/default.htm /MÁ
Áhugamenn um
vélar og tæki geta
nú fræðst um
Kverneland á
internetinu!
Netfang: http://www.kverneland.com
Nú er hægt aö fá nýjustu fréttir frá Kverneland
á Internetinu en Kverneland er einn stærsti
framleiöandi á landbúnaöartækjum í
heiminum. Tilgangurinn meö heimasíöunni er
aö gefa upplýsingar um
Kvernelandfyrirtækjahópinn, einstök fyrirtæki í
hópnum, framleiösluvörur, fréttatilkynningar
og aörar upplýsingar tengdar landbúnaöi.
Heimasíöu Kverneland er einkum ætlaö aö ná
bl fjögurra hópa tengdum landbúnaöi - s.s.
bænda, bændasamtaka, bændaskóla og
stofnana tengdum landbúnaði, bænda- og
viðskiptablaöa og fjárfesta og
fjármálafyrirtækja.
i fréttatilkynningu frá Ingvari Helgasyni hf.
segir um þetta netfang aö fréttimar um
Kverneland gefi möguleika á hrööu
uþþlýsingastreymi um Kverneiand þar sem
uþþlýsingar um t.d. framleiðsluna,
fréttatilkynningar, sýningar o. fl. veröa
reglulega uppfærðar. Einnig er hægt aö
senda tölvupóst til aö afla nánari upplýsinga.
Umboösaöili Kverneland á íslandi er Ingvar
Helgason hf.