Bændablaðið - 18.03.1997, Page 13
Þriðjudagur 18. mars 1997
Bændablaðið
13
Garðyrkjuskóli ríkisins: 10 nemendur skölans yiirheyrðir
Skólaárin 1996-1998 stunda
40 nemendur nám við Garð-
yrkjuskóla, ríkisins, Reykjum í
Ólfusi áfimm mismunandi
brautum. Brautirnar eru
Skrúðgarðyrkju-, umhverfis-,
garðplöntu-, ylræktar- og
blómaskreytingabraut. Nem-
endurnir koma víðs vegar af
landinu og eru frá 18 ára aldri
og upp úr. Bændablaðið fékk
10 nemendur skólans til að
svara nokkrum spurningum
um skólann og fleira. Arangur
þess má sjá hér á síðunni.
Nafn og uppruni: Jónas Freyr
Harðarsson, Reykvíkingur.
Aldur: 29 ára.
Braut: Garðplöntubraut.
Af hverju ákvaðst þú að fara í
Garðyrkjuskólann? Áhugi minn
á ræktun kom smátt og smátt.
Hann fór svo að beinast að trjám
og skógrækt. Ég fór að vinna í
garðinum heima og var svo
heppinn að fá vinnu í Fossvogs-
stöðinni og þá varð áhuginn enn-
þá meiri. Garðplöntubraut hentar
mér best, því þar er mikið komið
inn á trjá- og sumarblómaræktun.
Verknámsstaður:
Fossvogsstöðin í Reykjavík.
Hverjir eru helstu kostir
skólans? Hann býður upp á fög
sem tengjast áhugamáli mínu og
gefur mér þekkingu og titil sem
enginn getur verið án ef hann vill
starfa sem viðurkenndur
fagmaður.
Uppáhalds námsgrein: Tré og
runnar.
Draumavinnustaðurinn: Eigin
garðplöntustöð, að sjálfsögðu.
Nafn og uppruni: Rakel
Magnúsdóttir, Garðbæingur.
Aldur: 22 ára.
Braut: Ylræktarbraut.
Af hverju ákvaðst þú að fara í
Garðyrkjuskólann? Ég valdi
skólann vegna þess að ég hef
mikinn áhuga á garðyrkju og að
vinna með lifandi hluti. Ylrækt
varð fyrir valinu því ég tel þá
grein eiga eftir að vaxa töluvert
hér á landi og eiga góða fram-
tíðarmöguleika.
Verknámsstaður:
Garðyrkjustöðin Melar við Flúðir.
Hverjir eru helstu kostir skól-
ans? Gott bókasafn þar sem
hægt er að finna mjög góðar
upplýsingar um allt sem tengist
garðyrkju. Fræðslu- og vett-
vangsferðir skólans hafa einnig
verið mjög góðar og lærdóms-
ríkar.
Uppáhaldsnámsgrein:
Plöntuvernd.
Draumavinnustaðurinn: Mín
eigin garðyrkjustöð.
Nafn og uppruni: Guðmundur
Bjarnason.
Aldur: 35 ára.
Heima: Keilufell 11 í Reykjavík.
Braut: Skrúðgarðyrkjubraut.
Af hverju ákvaðst þú að fara í
Garðyrkjuskólann? Undanfarin
sumur hef ég unnið við garð-
yrkjustörf og haft gaman af. Vorið
1995 gafst mér tækifæri til að
komast á námssamning í skrúð-
garðyrkju og síðan var ekki aftur
snúið.
Verknámsstaður:
Garðyrkjudeild Reykjavíkurborgar.
Hverjir eru helstu kostir
skólans? Margir hæfir kennarar
starfa við skólann. Einnig er það
kostur að skólinn er fámennur
því fólk kynnist betur í slíkum
skóla en þeim sem eru stærri.
Uppáhaldsnámsgrein: Allt sem
viðkemur skrúðgarðyrjku.
Draumavinnustaðurinn: Sá
vinnustaður sem býður upp á
góða vinnufélaga og fjölbreytt
verkefni.
Nafn og uppruni: Kristin Björk
Gunnarsdóttir, Dalvikingur.
Aldur: 21 árs.
Braut: Umhverfisbraut.
Af hverju ákvaðst þú að fara í
Garðyrkjuskólann? Mig lang-
aði til að fara í eitthvað skapandi
og skemmtilegt nám. Ég valdi
umhverfisbraut að því að mér
fannst hún spanna mjög breytt
svið og þar er líka farið svolítið
inn á ferðamál en ég hef mikinn
áhuga á þeim.
Verknámsstaður: Dalvíkurbær,
unglingavinnan.
Hverjir eru helstu kostir skól-
ans? Hann er lítill og persónu-
legur og því er maður fljótur að
kynnast bæði nemendum og
kennurum. Mérfinnst námið
mjög lifandi og skemmtilegt og
því nýtur maður þess virkilega að
vera í skólanum, ólíkt því sem
maður á áður að kynnast.
Uppáhaldsnámsgrein: Tréog
runnar, ásamt umhverfisfræði.
Draumavinnustaðurinn: Úti-
og innivinna þar sem ég get
starfað nokkuð sjálfstætt og
mikillar fjölbreytni gætir.
Nafn og uppruni: Björg Jóna
Sigtryggsdóttir, Akureyringur.
Aldur: 22 ára.
Braut: Blómaskreytingabraut.
Af hverju ákvaðst þú að fara í
Garðyrkjuskólann? Ég hef
mikinn áhuga á hverju því sem
viðkemur gróðri og þannig lá
leiðin í skólann. Síðastliðið ár
hef ég starfað í blómabúð og því
tilvalið að byrja á blómaskreyt-
ingabrautinni. Vonandi getur
maður svo haldið áfram til að
auka fjölbreytni og vinnumögu-
leika.
Verknámsstaður: Blómabúðin
Akur á Akureyri.
Hverjir eru helstu kostir skól-
ans? I skólanum kynnist maður
fólki frá mörgum landshlutum og
fólki á öllum aldri sem hefur svip-
uð áhugamál og maður sjálfur.
Uppáhaldsnámsgrein:
Verklegar blómaskreytingar.
Draumavinnustaðurinn að
loknu námi: Er hann til?
Nafn og uppruni: Ingvar
Hafbergsson.
Aldur: 26 ára.
Heima: Lambhagi við
Vesturlandsveg í Reykjavík.
Braut: Ylræktarbraut.
Af hverju ákvaðst þú að fara í
Garðyrkjuskólann? Ég hef
starfað lengi við garðyrkju, auk
þess sem ég er uppalinn á
garðyrkjustöð. Ég hef sérstakan
áhuga á ylrækt.
Verknámsstaður: Gróðrastöðin
Lambhagi.
Hverjir eru helstu kostir skól-
ans? Kennarar sem hafa áhuga
á að ná til nemenda.
Uppáhaldsnámsgrein: Almenn
ylrækt og ylræktun pottaplantna.
Draumavinnustaðurinn: Arð-
bær, þægilegur og helst minn
eigin.
Nafn og uppruni: Oddný Guð-
mundsdóttir, frá Neskaupstað.
Aldur: 29 ára.
Braut: Skrúðgarðyrkjubraut.
Af hverju ákvaðst þú að fara í
Garðyrkjuskólann? Þetta er
draumur sem ég lét loks rætast.
Mérfinnst gaman að skipuleggja
og takast á við verkefni sem
byggja þarf upp frá grunni eins
og í skrúðgarðyrkjunni.
Verknámsstaður: Blómaland,
Höfn í Hornafirði.
Hverjir eru helstu kostir skól-
ans? Hann erfámennur, ein-
staklingurinn nýtur sin en týnist
ekki í fjöldanum. Mjög fallegt
umhverfi á Reykjum.
Uppáhaldsnámsgrein: Skrúð-
garðafræði.
Bændablaðsmynd/ÁÞ
Draumavinnustaðurinn: Stað-
ur sem mér líður vel á.
Nafn og uppruni: Boga Kristín
Thorlacius frá Búðardal..
Aldur: 21 árs.
Af hverju ákvaðst þú að fara í
Garðyrkjuskólann? Ég vildi
læra eitthvað þar sem ég gæti
séð eitthvað nýtt fæðast á hverj-
um degi (blómaskreytingar).
Blóm hafa alltaf heillað mig, ekki
síst pottaplöntur.
Verknámsstaður: Iðna Lísa,
Hverafold 1 - 3 í Reykjavík.
Hverjir eru helstu kostir skól-
ans? Staðurinn er mjög fallegur.
Svo eru allir svo jákvæðir og
ákveðnir í að hafa gaman að því
sem þeir eru að fást við. Mjög
breiður aldurshópur.
Uppáhaldsnámsgrein: Afskorin
blóm og greinar og pottaplöntur.
Drauma vinnustaðurinn: Eigin
búð þar sem ég er minn eigin
herra.
Nafn og uppruni: Haraldur D.
Haraldsson.
Aldur: 45 ára.
Heima: Kópavogur.
Braut: Umhverfisbraut.
Af hverju ákvaðst þú að fara í
Garðyrkjuskólann? Eftir að
hafa verið langferðamaður í
skrifstofutengdum störfum með
tilheyrandi inniveru langa lengi,
ákvað ég að leika á forlaganorn-
irnar. I landvörslustörfum sl.
sumar veittist mér sá munaður
að fá tækifæri til að tengjast úti-
veru og náttúru landsins. Áhugi
minn vaknaði á þeim víðfeðmu
málaflokkum sem umhverfis- og
náttúruverndar mál eru. í kjölfarið
fór skynjun mín vaxandi á því að
haldi mannskepnan áfram að
ógna náttúrunni mun náttúran
svara með því að ógna okkur
sjálfum. Umhverfisbrautin sýndist
mér ágætis byrjun og hef ég ekki
séð eftir þvi að veðja á þann hest
enn sem komið er.
Verknámsstaður:
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.
Hverjir eru helstu kostir skól-
ans? Margir ágætir kennarar,
góðir gestafyrirlesarar, góðar
námsferðir í stofnanir sem vinna
að umhverfismálum.
Uppáhaldsnámsgrein: Um-
hverfisfræði.
Drauma vinnustaðurinn: Sá
staður sem byggir á fræðslu,
leiðsögn og ferðamálum þar sem
útivera er mikil.
Nafn og uppruni: Rakel
Jakobina Jónsdóttir,
Reykvíkingur.
Aldur: 25 ára.
Braut: Garðplöntubraut.
Af hverju ákvaðst þú að fara í
Garðyrkjuskólann? Vegna þess
að ég hef lengi haft áhuga á
gróðri og þá aðallega trjám og
runnum. Mig langaði að læra
bæði um fjölgun og svo alla um-
hirðu, þannig að garðplöntubraut
varð fyrir valinu.
Verknámsstaður:
Fossvogsstöðin í Reykjavik.
Hverjir eru helstu kostir skól-
ans? Námið er mjög víðtækt og
yfirleitt farið ýtarlega í það. Við
lærum ekki bara um plöntur og
ræktun heldur líka t.d. vinnuvist-
fræði. Farið er í lærdómsríkar
námsferðir og svo er félagsand-
inn í skólanum mjög góður.
Uppáhaldsnámsgrein: Tré og
runnar og trjá- og runnaklipping-
ar, ásamt plöntuvernd.
Drauma vinnustaðurinn að
loknu námi: Draumurinn er að
eiga eigin stöð og rækta
ungplöntur fyrir nytjaskógana og
ýmislegt fyrir mig í drauma
skóginn minn.
Samantekt og myndir af
nemendum/MHH.