Bændablaðið - 11.06.2002, Side 8

Bændablaðið - 11.06.2002, Side 8
8 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur ll.júní 2002 dk BUBOT UPPFYLLIB KRÚFUR BSK UM BAFBÆNT BÚKHALD Eins og kunnugt er hafa Bænda- samtök íslands á boðstólum, handa lögaðilum á lögbýlum er stunda búrekstur af einhverju tagi, bókhaldskerfið dkBúbót er uppfyllir kröfur RSK um raf- rænt bókhald samkvæmt yfir- lýsingu hönnuða dkBúbótar þar um. Því er ekkert því til fyrir- stöðu að taka upp þessa aðferð fyrir þá aðila er það vilja. Þar sem hér er um nýja aðferðafræði að ræða í þessari atvinnugrein vil ég fara yfír nokkur helstu atriði er þarf að hafa í huga vegna reglna er RSK setur þar um. Rafrænt bókhald byggir á þeirri hugmyndafræði að minnka útprentun á pappír, t.d. reikningum sem allstaðar eru notaðir í við- skiptum í einni eða annarri mynd. Þegar rekstraraðili tekur ákvörðum um að taka upp rafrænt bókhald má hann að uppfylltum skilyrðum prenta reikning út á óforprentað blað, td. A4. Ef sá aðili er kaupir vöruna hefur yfir rafrænu bók- haldskerfi að ráða er engin þörf á útprentun en reikningurinn þess í stað sendur í tölvupósti eða með öðrum stafrænum hætti til kaupanda vörunnar sem hefur þá eftir þeim reglum er þar gilda um, heimild til að nýta innskatt af vörunni. Þó þetta sé vissulega spenn- andi kostur og hluti af framtíðinni, þá kemur á móti sú kvöð að afrita gögn bókhaldsins með tryggum hætti og geyma öll rafræn gögn í sjö ár. Ef tölva bilar eða gögn úr rafrænu bókaldskerfi tapast og ekki er unnt að ná þeim til baka með afriti er litið á það sem brot á bókhaldslögum og meðhöndlað sem slíkt. Við sem störfum við þjónustu og þróun hugbúnaðar verðum æ oftar vör við að diskettur, sem eru gjarnan notaðar við afritun, eru orðnar langt frá því að vera áreiðanlegur kostur. Því mæli ég endregið gegn notkun þeirra við afritun á gögnum eins og úr rafrænu bókhaldi. Þeir kostir sem koma þar til greina eru Tape- stöð (segulband), R/W Geisladrif (skrifari), Zip drif og síðast en ekki síst svokölluð netafritun sem byggir á því að afrit eru flutt dul- kóðuð á netþjón einhvers staðar í veröldinni sem geymir þau með tryggum hætti. Til að rekstraraðili megi nota rafrænt bókhald og skrifa út úr því reikninga á auð blöð þarf yfír- lýsingu frá hönnuði kerfisins þar um. Slík yfirlýsing er fengin með milligöngu Bændasamtaka Islands frá dkRetis og þá undirskrifuð af prókúruhafa þess fyrirtækis og stfluð á nafn rekstraraðila/lögaðila. Mörgum kann að þykja þetta mikið mál en þetta er unnið samkvæmt regium RSK og reglugerðum ráðherra. Eftir sem áður er gamla aðferðin að prenta með nálaprentara á forprentaða reikninga í þríriti í fullu gildi og styður dkBúbót við slíka prentun og þarf þá ekki neina sérstaka yfirlýsingu um rafrænt bókhald þar sem þá gilda reglur um bókhald og góðar bókhaldsvenjur. Fyrir þá sem vilja kynna sér kröfur vegna rafræns bókhalds enn frekar skal bent á leiðbeiningar RSK og reglugerð nr. 598/1999 og reglugerð nr. 015/200 lum breyt- ingu á reglugerð 598/1999 um rafrænt bókhald. Leiðbeiningar og reglugerðir er að finna inn heimasíðu RSK á slóðinni http://www.rsk.is Þetta eru eingöngu punktar um rafrænt bókhald og bókhald almennt og eiga eingöngu að nýtast sem slfldr. Frekari upp- lýsingar vegna skattareglna er að fá hjá RSK og eins og áður segir á heimasíðu þeirra. Hvað dkBúbót sjálfa snertir þá sjá starfsmenn tölvudeildar um daglega þjónustu. Hjálrnar Ólafsson, forritari og þjónustufullirúi í tölvudeild Bœndasamtaka íslands Nýip sMmenn Bændasamtakanna Hallgrímur Sveinn Sveinsson, búfræði- kandidat og ] kerfis- fræðingur hóf I störf hjá i Bændasam- tökunum um síðustu mánaðamót. Hallgrímur er' þrítugur að aldri. Hann lauk kandidatsnámi í búvísindum frá LBH á Hvanneyri 1997 og námi í kerfisfræði frá Háskólanum í Reykjavík nú í vor. Hallgrímur mun starfa á ráðgjafarsviði og einkum sinna þróunarverkefnum á sviði búfjárskýrsluhalds og öðrum verkefnum í búfjárrækt. Aður en Hallgrímur hóf nám í kerfisfræði var hann héraðsráðunautur í bú- fjárrækt hjá Búnaðarsamtökum Vesturlands. Sigurður Eiríksson, rekstrar- fræðingur, hóf störf hjá Bændasam- tökunum um síðustu mánaðamót. Hann er 36 ára að aldri. Hann lauk námi í rekstrar- fræði (B. Sc.) frá rekstrardeild Háskólans á Akureyri 1998. Sigurður mun starfa á ráðgjafar- sviði og sinna tímabundið verkefnum á sviði búrekstrar, bókhalds og áætlanagerðar. Starfs- aðstaða hans verður að hluta í húsnæði BSE á Akureyri. Síðustu tvö ár hefur Sigurður verið verkefnisstjóri við undirbúning og innleiðingu gæðastýringar í sauðljárrækt við Landbúnaðar- háskólann á Hvanneyri.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.