Bændablaðið - 11.06.2002, Side 12

Bændablaðið - 11.06.2002, Side 12
12 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur ll.júní 2002 Rakstrarvélar ( Heyþyrlur Vinnslubreidd 5,5 - 7,0m Sláttuvélar Pökkunarvél Rúllubindivél) G.SKAPTASON & CO Tunguháls 5 • sími 577 2770 Ferðaþjónusta bænda: Vaxtarbroddurinn í sveitum landsins „Við stefnum að því að vera í fararbroddi í umhverfisvænni ferðaþjónustu á íslandi. Á síðasta aðalfundi var samþykkt að ferða- þjónustubændur mörkuðu sér um- hverfisstefnu og ynnu eftir mark- miðum Staðardagskrár 21. Mikil sóknarfæri eru í umhverfisvænni eða grænni ferðaþjónustu. Gestir eiga að geta verið vissir um að þeir séu að heimsækja ferðaþjónustu- aðila sem hugsar vel um um- hverfið. Slík viðleitni getur verið allt frá því að þurrka þvottinn úti á snúru og til þess að jarðgera allt lífrænt sorp; nota umhverfisvænar vörur, allt frá sápu til hús- byggingaefnis. Það er líka mikil- vægt að upplýsa ferðamanninn um umhverfið því upplýstur ferða- maður er verðmætur ferðamaður. Sagt er að slíkur ferðamaður drepi ekkert nema tíma, skilji ekkert eftir sig nema fótspor og taki ekkert nema myndir. Ef ferða- mönnum mun fjölga jafnmikið og spáð hefur verið næstu árin viljum við taka þátt í því verkefni að lágmarka neikvæðar hliðar þess" sagði Marteinn. -Ferðaþjónustan hefur lengi verið aukabúgrein hjá bœndum, en eru ekki einhverjir farnir að lifa eingöngu á ferðaþjónustunni? „Það er rétt að margir bændur eru með ferðaþjónustuna sem aukabúgrein og eru þá með fáein herbergi sem þeir leigja út. Síðan er sá hópur orðinn býsna stór sem er búinn að leggja niður hefð- bundinn búskap og er eingöngu í ferðaþjónustunni, með 30 til 50 herbergi, veitingasölu og jafnvel ráðstefnuaðstöðu. Þeir eru alveg sambærilegir við stór gistihús og hótel. Þróunin á síðustu árum hefur orðið sú að ferðamanna- tímabilið hefur lengst í báða enda og það hefur gert fólki kleift að stunda ferðaþjónustuna eingöngu." Marteinn Njálsson, ferðaþjónustubóndi í Suður-Bár við Grundarfjörð, var kjörinn formaður stjómar Félags ferðaþjónustubænda á aðalfundi félagsins í mars sl. Hann segir að á þeim fundi hafi verið samþykkt mjög merkileg umhverfisstefna. -Er ferðaþjónusta bœnda sam- keppnishœf við aðra ferðaþjónustu í dreifbýli? „í mjög mörgum tilfellum er hún það, en gæðamálin eru eitt af því sem við leggjum þunga áherslu á um þessar mundir. Við erum ný- búin að fara hringinn í kringum landið og heimsækja alla ferða- þjónustubæi og gera gæðaúttekt. Utkoman var mjög góð og margir bæir með afbragðsaðstöðu. Svo eru þeir líka til sem þurfa að taka sig á, og ég lít á það sem verkefni stjórnarinnar að veita ferða- bændum aðhald í þessum málum. Við vinnum út frá ákveðnum gæðastaðli, og höfum raunar gert það um árabil. Við erum fyrstu heildarsamtök í ferðaþjónustu á Is- landi sem tóku upp ákveðinn gæðastaðal. Gestir geta gengið að ákveðnum gæðum vísum og það teljum við afar mikilvægt þegar verið er að markaðssetja ferða- þjónustu. Gæðamerki okkar er græni burstabærinn og hafa þeir einir rétt til að nota það sem er í félaginu og standast settar kröfur. Brögð hafa verið að því að óvið- komandi aðilar noti merkið okkar. Félagaskrána má hins vegar finna í íslenska bæklingnum sem er að koma út þessa dagana." -Nýtur ferðaþjónusta bœnda einhverra opinberra styrkja? „Ekki frekar en önnur ferða- þjónusta í landinu. En upplýsinga- miðstöðvamar og starf ferða- málaráðs er kostað af ríkinu og er vissulega mikill stuðningur. Það má segja að upplýsingamið- stöðvarnar séu okkar „hafnir" og því afskaplega mikilvægar í vaxandi ferðamannafjölda og þeirri viðleitni okkar að taka vel á móti þeim." Fjarskiptakerfið flöskuháls Marteinn segir að ferða- þjónustubændur séu að koma sér upp miðlægu bókunarkerfi fyrir ferðaskrifstofu sína, Ferðaþjónusta bænda hf„ sem annast markaðs- setningu og sölu á ferðaþjónustu bænda. „Nú er líka verið að sækja fram á Intemetið og við erum komin með netfangið www.sveit.is. Við vinnum að þeim málum í anda verkefnisins „Færum heiminn heim í hlað" sem er upprunnið í landbúnaðarráðuneytinu. Til stendur að koma á miðlægu bókunarkerfi þannig að bókunar- staða ferðaþjónustubæja sé ljós á einum stað. Næsta skref í þessu verkefni er að tengja ferðþjónustu- bændur við kerfið, en því miður er fjarskiptakerfi dreifbýlisins flösku- háls fyrir okkur. Ef við ætlum að tengja okkur við miðstöð okkar í Reykjavík er það kostnaður upp á tugi þúsunda á mánuði, á meðan fyrirtæki í þéttbýli sem nota ADSL þjónustu greiða 4-5 þúsund krónur á mánuði fyrir sítengingu óháð notkun innanlands. Okkur býðst bara ISDN kerfið sem gerir ekki ráð fyrir sítengingu og þau notkunar- gjöld sem við þyrftum að greiða eru mjög há. Þetta er í raun byggðapólitískt mál en vonandi verður þessi aðstöðumunur jafnaður í framtíðinni," segir Marteinn Njálsson. Ferðapiúnustubændum mun Ijfllga Marteinn segist telja öruggt að ferðaþjónustubændum muni fjölga á næstu árum, „enda má segja að ferðaþjónustan sé vaxtarbroddurinn úti í sveitum landsins. Víða um iandið vex ferðaþjónustan hratt og ég sé ekkert sem ætti að geta stöðvað þá þróun. Samt hefur ferðaþjónusta bænda sem búgrein fjarlægst aðrar hefðbundnar búgreinar. Þessu viljum við breyta og fá ferðaþjónustu viðurkennda sem fullgilda búgrein, og kannski verður hún álitin hefðbundin eftir einhver ár!" Sparaðu fé og fyrirhöfn Felqur / Dráttarvéladekk / / Heyvinnuvéladekk / / Vörubíladekk / / Jeppadekk / / Fólksbíladekk / f Rflfgeymor Keðjur Bflsamottur Oryggisheliur Hjá Cámmívinnslunni fœrð þú alU á einurn stað/ Kannaðumðtiðð www.gv.ls Sendum um altt land - Sama veró fré R&ykjavik ■m. i & Gúmmfvinnslan hf. RóUarhvamml 1 > Akureyri Hrteftó «f (M (rekwi Wml 46I 26&0 * («* 461 Wb Þýsku básamottumar frá Gúmmívinnslurmi má nota jatnt undir hesta, kýr, svín og fleiri dýr Eigum á lager 100,110 og 120 cm breiðar mottur i ýmsum kjngdum, etnníg dregia og motturí kerrur.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.