Bændablaðið - 11.06.2002, Side 13

Bændablaðið - 11.06.2002, Side 13
Þriðjudagur ll.júní 2002 BÆNDABLAÐIÐ 13 Björn Gunnlaugsson, tilraunastjóri Garðyrkjuskólans: Vðgesdr í garOIOndum Sumarið er komið og þá lifnar allt af dvala, líka skordýr í görðum sem svo mörgum er illa við og nauðsynlegt er að bregðast við ef gróðurinn á ekki að fara illa. Bjöm Gunnlaugsson, tilraunastjóri Garðyrkjuskólans að Reykjum í Ölfusi, mun halda fyrirlestur þann 8. júní nk. um það hvernig best sé fyrir fólk að bregðast við vágestum í görðum, sem eru einkum trjámaðkur, blaðlús, ryðsveppur og kál- maðkur. Hinn síðastnefndi er auk þess mikill vágestur hjá garðyrkjubændum sem stunda kálrækt. Kálmaðkur vandi garðyrkjubænda „Það er rétt, kálmaðkurinn er vandamál fyrir bændur og menn nota vamarefni til að glíma við hann. Varnarefnið sem um ræðir heitir Birlane og það er fastur liður hjá garðyrkjubændum að strá því yfir garðlöndin til að verjast kálmaðkinum. Ef bændur ætla að fá uppskeru sem atvinnumenn verður ekki hjá þessu komist. Neytendur eiga þó ekki að þurfa að óttast að fá efnið í sig við neyslu afurðanna því strangar reglur gilda um leyfilegt magn og uppskeru- frest þegar efnið er notað og efnaleifar hafa mælst undir við- miðunarmörkum," sagði Bjöm í samtali við Bændablaðið. Bæklingur Ferðaþjónustu bænda - Upp í sveit - er komin út. í honum era upplýsingar um þá 120 bæir út um allt land sem bjóða upp á gistingu, máltíðir og af- þreyingu. Þama má fmna flest það sem fólk þarf að vita um staðina svo sem upplýsingar um síma- númer, heimilisfang, póstföng, fjölda gistirýma og tegund gisting- ar. Einnig er getið þeirrar af- þreyingar sem er í boði á staðnum og opnunartíma ferðaþjónustunnar á viðkomandi bæ. Bæklingurinn Upp í sveit er fáanlegur á öllum upplýsingamiðstöðum, öllum Esso-bensínstöðvum og skrifstofu FB. Einnig má leita upplýsinga á slóðinni sveitás Ferðaþjónusta bænda er við Síðumúla 13 í Reykjavík. Síminn er 570 2700 Óþarfi að úða birki Það er algegn sjón þegar kemur fram í júní og júlí að sjá menn með grímur og í sérstökum fatnaði úða á tré í görðum. Þá era þeir að eitra fyrir blaðlús og trjámaðki. „Eg held að segja megi að frekar auðvelt sé að ráða við þessi skordýr. Margir velja þá leið að úða ekki neitt og það getur stundum gengið. Ef fólk er með birki í görðum sínum er til dæmis óþarfi að úða því það jafnar sig alltaf þegar líður á sumarið. Hins vegar era til víðitegundir sem verða alveg uppétnar ef ekki er úðað," segir Björn. Garðeigendur þurfa að vera á verði í júní Hann var spurður hvort veðurfar yfir veturinn hefði eitt- hvað að segja varðandi líf þeirra skordýra sem hrjá trén mest. Björn segir að varðandi trjámaðk og blaðlús þá séu það egg þeirra sem lifa af veturinn, en þau sitja á greinum trjánna. Ef veður era hörð yfir veturinn geta orðið afföll á eggjunum og því dregur úr þessum skordýrum eftir harða vetur. Bjöm bendir á að frosthörkur í nóvember og febrúar á liðnum vetri gætu haft þau áhrif að minna yrði um blaðlús og trjámaðk í ár en oft áður. „Síðan skiptir veðrið á maðka- tímanum miklu máli. Trjámaðkur er á ferðinni í u.þ.b. tvær vikur í júní og ef það er votviðrasamt á þessum tíma dregur úr maðkinum. En það er sem sagt í júnímánuði sem fólk þarf að vera á verði og fylgjast vel með þegar maðkurinn kemur í trén og úða þá strax," sagði Bjöm Gunnlaugsson. Ryðsveppurinn Bjöm að ryðsveppurinn hafi undanfarin ár verið vaxandi vandamál á gljávíði og ösp um sunnanvert landið. Ryðsveppir lifa af veturinn sem gró og það skiptir litlu máli varðandi skaða þótt vetur séu harðir. Það er ekki alveg sama hvort um er að ræða ösp eða gljá- víði, gangur mála er mismunandi eftir því hvor tegundin er. Asparryðsveppurinn hefur lerki sem millihýsil en veldur bara skaða á ösp. Gljávíðiryð finnst hins vegar einvörðungu á gljávíði, Hægt er að draga úr ryðsvepp á gljávíði með því að úða með sveppalyfi en lítið er hægt að gera við asparryðsvepp. 525 8070 er pöntunarsíminn ...eða veladeild@ih.is fyrir Kverneland Taarup Spin rúlluplastið V ROLUTBtHaS 3000 m SCBM8&&JÍ' ROliftTEXWJJS T OfíSm/uW 3000 m l Sami pöntunarsími fyrir CLAAS Original stórbaggagarnið og netið. 750 mm 5.495 kr. án vsk. 500 mm 4.495 kr. án vsk. Flutningur er innifalinn í verði hvert á land sem er* *á áfangastaði Landflutninga - miðað við lágmarkspöntun 14 stk. 500 mm rúllur eða 12 stk. 750 mm rúllur Umboðsmenn um land allt Ingvar Helgason hf. Sœvarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.