Bændablaðið - 12.11.2002, Síða 4

Bændablaðið - 12.11.2002, Síða 4
4 BÆNDABLAÐIÐ Þríðjudagur 12. nóvember 2002 Séra Karl V. Matthíasson alþingismaður: HluOaus últekt I fötækt nauösynleg Komin er fram á Alþingi þingsályktunar- tillaga um að gerð verði könnun á um- fangi fátæktar í landinu. Lagt er til að félagsmálaráðherra láti fara fram úttekt á umfangi, orsökum og afleiðingum fátæktar á Islandi með það að markmiði að leggja fram tillögur um úrbætur sem treysti öryggisnet velferðarkerfisins. Séra Karl V. Matthíasson alþingismaður er einn af flutningsmönnum tillögunnar. „Astæða þess að tillagan er flutt er sú mikla umræða sem verið hefur um fátækt í land- inu. Þeir sem hafa haldið umræðunni á lofti hafa vísað til Rauða krossins, Mæðra- styrksnefndar og Hjálparstofnunar kirkjunn- ar og annarra sem hafa samskipti við þá sem leita stuðnings. Stundum hefúr mönnum þótt sem þeir aðilar væru ekki hlutlausir. Þess vegna erum við að óska eftir því að skipuð verði nefnd til að ffamkvæma hlutlausa úttekt sem tekur af öll tvímæli um ástandið," sagði séra Karl í samtali við tíðindamann Bændablaðsins. Snertir bcendur Hann var spurður hvort staða bænda hefði verið könnuð sérstaklega í þessari umræðu. Hann sagði svo ekki vera, en þeir myndu koma mjög mikið inn í þetta ef rann- sóknamefnd yrði sett á laggirnar til að fara ofan í fátæktarmálið. „Orðið fátækt hefur borið á góma þegar bændastéttin hefúr verið nefnd, og þá alveg sérstaklega sauðíjárbændur. Margir halda því fram að þeir séu fátækasta stétt landsins. I framhaldi af því, ef sú verður niðurstaðan, er þörf aðgerða í þágu þeirrar stéttar. Það er óþolandi nú á tímum að eiga heila stétt sem er fátæk og til að útrýma þeirri fátækt þarf að láta þá stétt hafa aukið hlutverk í þágu samfélagsins," sagði séra Karl. Margt hœgt aó gera í því sambandi nefndi hann landvörslu, landgræðslu, varðveislu gróðurs og náttúrunnar. Umræðan um varðveislu lands- ins okkar og auðlinda samfélagsins verður sífellt meiri. Bændur, sem eru í nánum tengslum við náttúruna, gætu þá fengið gott og nauðsynlegt hlutverk í því sambandi. Þunnur þráðurinn Séra Karl var spurður hvort hann teldi að öryggisventlar velferðarkerfísins væm að bresta. „Eg held að þráðurinn sé því miður orðinn afar þunnurog að það þurfi að taka til hendinni ef hann á ekki að slitna og vel- ferðarkerfið að hrynja. Allar íréttir undan- farið um aukin vanskil og gjaldþrot benda einnig til þess að fátækt sé að aukast hér. Það er skylda stjómvalda að hafa vakandi auga með því sem er að gerast í samfélaginu og bregðast við þar sem pottur er brotinn og þess vegna komum við með þessa þings- ályktun sem ætti einnig að vera þeim fagnaðarefni sem halda því fram að fátæktarumræðan sé alltof mikil.“ Togstreíta milli v áðuneyta kemur I veg fyrir úttekt á jarOskjálftasvæOum Margrét Frímannsdóttir ásamt sjö öðrum þingmönnum, þar á meðal fjórum þingmönnum Suðurlandskjördæmis, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um að fram fari úttekt á ástandi eigna á öllum helstu jarð- skjálftasvæðum landsins. Þetta er í þriðja sinn sem tillagan er flutt á Alþingi en hún hefur aldrei fengist afgreidd. Margrét var spurð hvemig á því stæði að jafn sjálfsögð tillaga og þessi, sem þingmenn úr öllum flokkum standa að, fengist ekki afgreidd á Alþingi. Rannsóknarmiðstöðin á Selfossi ætti að hafa yfirumsjón „Það er dálítið einkennilegt vegna þess að það hafa komið mjög góðar umsagnir um þessa tillögu víða að. Auk þess virðast allir sammála um að það þurfi að fara í svona úttekt og þá ekki bara á Suðurlandi, jarðskjálftasvæðin eru víðar á landinu. Af einhverjum ástæðum virðist vera togstreita milli ráðuneyta um hver eigi að sjá um verkefnið. Ég hef lagt til að Rannsóknarmiðstöð um jarð- skjálfta á Selfossi verði falið þetta verk, en eins og er deilist það niður á umhverfisráðuneyti og menntamálaráðuneyti og deildir innan þeirra. Þar er ákveðin tog- streita á milli um það hver á að vinna verkin og síðan kemur iðnaðarráðuneytið með Orku- stofnun innan sinna vébanda inn í dæmið líka. Mér þykir það alveg sjálfsagt að Rannsóknarmiðstöðin á Selfossi hafi yfirumsjón með verkinu sem allir viðurkenna að bráðliggi á að vinna,“ sagði Mar- grét Frímannsdóttir. Nýr stapfsmaður í Búgapði Baldur Benjamínsson frá Ytri- Tjörnum í Eyjaljarðarsveit hefur verið ráðinn í hlutastarf sem ráðunautur hjá Búnaðar- sambandi Eyjafjarðar, Suður og Norður Þingeyinga. Starfssvið Baldurs er naut- griparækt, með áherslu á fóður- leiðbeiningar. Baldur er búfræði- kanditat frá Landbúnaðarhá- skólanum á Hvanneyri, en hefur auk þess nýlokið meistaraprófi í kynbótafræði ífá Landbúnaðarhá- skólanum í Kaupmannahöfn. Baldur hefur skrifstofúaðstöðu í Búgarði. /VS Landskeppni w- hunda að Hraunmúla Landskeppni fjárhunda var haldin að Hrauns- múla í Kolbeinstaðahreppi dagana 26.-27. okt. AIIs tóku 13 hundar þátt í keppninni, þar af 4 unghundar. Stóðu bæði smalar og hundar sig vel svo úr varð góð helgi. Úrslit í unghundakeppninni voru: Brynjar Hildibrandsson með Gutta, Kristján Sigurvinnsson með Snoppu, Svanur Guðmundss- on með Sunnu og Gísli Þórðarsson með Spólu. Úrslit í almenna flokknum eftir forkeppni á laugardeginum. Svanur Guðmundsson með Skessu 74 stig, Anna Dóra Markúsdóttir með Kát 71 stig, Guðmundur Guðmundsson með Sokka 67 stig, Gísli Þórðarsson með Tinnu, Valgeir Magnússon með Skottu og Svanur Guðmundsson með Vask. ‘'■ V*? W 1 5 J 1 V#;i| ..! I 1 nv/Mi í 1 'Æ&sx- 'ni Hfil '1 Hér má sjá þá sem komust í úrslit í almenna flokknum. Á myndinni eru frá vinstri: Svanur Guðmundsson, Anna Dóra Markúsdóttir, Guömundur Guðmundsson og Gísli Þórðarsson. Svanur Guðmundsson og Skessa Svanur Guðmundsson hefúr lengi átt góða smalahunda og hefur sigrað í landskeppninni tvö ár í röð. Hvaða grunn hundurinn þarf að hafa áður en þú ferð með hann í kindur? „Áður en ég fer að vinna með þá í kindum vil ég geta stoppað þá af hvar sem er og kallað á þá til mín. Ég byrja að vinna með þá 6-8 mánaða, sem er í raun fullsnemmt en ég gæti þess vel að vinna með þá í þjálum kindum. I alvöru vinnu eða smalamennsku fer ég ekki með þá fyrr en þeir eru orðnir töluvert tamdir, hins vegar nota ég þá í vinnu við kýmar.“ Hvað varð til þess að þú ákvaðst að byrja að keppa með hunda? „Ég byrjaði á því fyrir fjórum ámm og þá fyrst og ffemst til að hafa gaman af því. Þá var ég með eins og hálfs árs gamla tík og lenti í verulegum vandræðum í brautinni en skellti skuldinni á kindumar. Þegar ég fór að skoða rennslið á spólu varð mér ljóst að þar var fýrst og fremst um klúður hjá mér og tíkinni að ræða. Hún vann alltof hratt og alltof nálægt kindunum.Þá áttaði ég mig á því að þetta er í raun við- verandi vandamál við notkun smalahunda í dag. Hundur sem lendir í vandræðum í braut lendir líka í vandræðum í vinnu.“ Tekur þú þátt vegna keppn- innar eða til að sjá hundana þína í samanburði við aðra? „Ég kem með Skessu í keppni til að lofa fólki að sjá hund sem er orðinn nokkuð ömggur í braut, en yngri hundana fyrst og ffemst til að sjá veiku punktana hjá þeim. Hundamir mínir eru tamdir til að nota við vinnu og hafa aldrei verið æfðir í braut.“ Það vakti mikla athygli þegar þú sýndir hvernig þú getur stjórnað hundi gegnum talstöðvarsamband, hefur þú notað þetta mikið í haust? „Þegar við erum komin með svona mikið tamda hunda vinna þeir langtímum saman í 500m til 1500m Qarlægð ffá manni. Það hefúr alveg gríðarlega þýðingu að halda þeim vel ffá kindunum þannig að ekki komi til árekstra (sömu lögmál og í keppnisbraut). Ég gæti kennt þeim að hlýða flautu en þar sem þeir em aðeins notaðir í 10 daga á ári í þessari fjarlægð þá finnst mér mikið í lagt að kenna þeim annað skipunarkerfi. Ég hef notað talstöðina á 2 ára hund í smalamennskum í haust og það hefúr gengið frábærlega."

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.