Bændablaðið - 12.11.2002, Blaðsíða 21
Þriðjudagur 12. nóvember 2002
BÆNDABLAÐIÐ
21
Búnaðarþing sett 4. mars 2003:
eitt af stóru mðlunum
Undirbúningur fyrir næsta
Búnaðarþing er að hefjast, en
þingið verður sett þriðjudaginn
4. mars 2003 og mun standa
fram eftir vikunni.
Ari Teitsson, formaður
Bændasamtakanna, sagði að
samkvæmt venju yrði á þinginu
Qallað um þau mál sem efst eru á
baugi í landbúnaðinum hverju
sinni. Á þessari stundu væri ekki
fúllséð hvemig mál þróast fram til
4. mars nk.
„Þó er ljóst að staðan á kjöt-
markaði hlýtur að vera eitthvað
sem Búnaðarþing veltir alvarlega
Vicon RV1601 í línrækflna
Nú á dögunum veitti Feyging
ehf. viðtöku Vicon RV 1601 fast-
kjama rúlluvél sem er hin fyrsta
sinnar gerðar hérlendis. Vél þessi
er sérútbúin til að rúlla lín en
Feyging ehf. ræktar lín hér á landi
í samstarfi við íslenska bændur.
Sérstaða þessarar vélar er sú að
hún er útbúin með svokölluðum
FLEX aukabúnaði sem setur gam
á milli laga í línrúllunni en þannig
festast lögin ekki saman og hún
rúllar jafnt út sem er nauðsynlegt
fyrir vinnslu á líninu í verk-
smiðjunni. Þessi vél er þó ekki ein-
göngu útbúin fyrir línuppskeru því
að hægt er að rúlla allar gerðir af
heyi með henni.
Tölvan í henni býður upp á
fjórar stillingar, eina fyrir þurrt
hey, aðra fyrir lín, þriðju fyrir rakt
eða smátt hey, t.d. há, og þá fjórðu
fyrir hálm. Þannig að komin er á
markað fastkjama rúlluvél sem
Vetrarsport 2003 á Akureyri
Dagana 23. og 24. nóvember verður sýningin Vetrarsport 2003
haldin í íþróttahöllinni á Akureyri. Sýningin hefur fyrir löngu
unnið sér fastan sess meðal þeirra fjölmörgu sem stunda
vetrarsport af einhverju tagi, enda er á sýningunni mikið úrval
alls kyns búnaðar, tækja og varnings sem viðkemur vetrarsporti
hvers konar.
Þetta er í sextánda sinn sem sýningin Vetrarsport er haldin á
Akureyri og hefur hún notið mikilla vinsælda allt frá upphafi.
Vélsleðar og ýmis búnaður sem tengist vélsleðasporti eru áberandi
á sýningunni að þessu sinni eins og áður, en þar kennir þó að
sjálfsögðu ýmissa annarra grasa. Fyrirtæki á ýmsum sviðum
munu kynna þjónustu sína og söluvarning og væri of langt mál að
telja upp allar þær tegundir vöru og þjónustu sem kynntar verða
á sýningunni. Sjón er sögu ríkari! Markmiðið með sýningunni er
fyrst og fremst að auka áhuga á útivist að vetrarlagi og vekja
athygli almennings á þeim fjölmörgu og skemmtilegu möguleikum
sem við Islendingar höfum til að njóta hins íslenska vetrar.
Það er Félag vélsleðamanna í Eyjafirði sem stendur fyrir
sýningunni Vetrarsport 2003 eins og jafnan áður. Sýningin verður
opin kl. 10-18 laugardaginn 23. nóvember og kl. 13-18
sunnudaginn 24. nóvember.
Landssími íslands og alpjðnustan
Framhald afforsiðu
greiddi kostnaðarauka til notenda
ATM-þjónustu. Með samþykkt
þeirrar tillögu yrði stórt skref
stigið í þá átt, að fjarskipta-
kostnaður á Islandi verði sá sami.
Þá verður með sanni hægt að segja
að öll almenn fjarskiptaþjónusta,
svo sem hefðbundinn talsími og
farsími, ISDN, ADSL og ATM og
þar með IP-þjónusta, verði seld
gegn sama verði um allt land,“
sagði Sturla Böðvarsson, sam-
gönguráðherra.
Aliyggjur af smugu Símans
„Það efast enginn um velvilja
stjómvalda og Símans í þessu
máli. Fjölmargir bændur hafa sótt
um ISDN og þeir sem hafa fengið
slíka tengingu eru himinlifandi
með öflugra og ömggara sambandi
við Intemetið. Síminn hefúr varið
töluverðum fjármunum, eitt síma-
fyrirtækja, til að gera þetta mögu-
legt enda ber þeim að tryggja
öllum landsmönnum gagnaflutnings-
þjónstu í samræmi við reglugerð
um alþjónustu, eins og kom fram í
svari ráðherra. Það eru hins vegar
ástæða til að hafa áhyggjur af
þeirri smugu að alþjónustu-
veitandi, þ.e. Síminn, geti hafnað
umsókn ef símstöð er í meiri en 10
km fjarlægð frá umsækjanda eða
kostnaður ef kostnaður er áætlaður
sérstaklega mikill. Reyndar veit ég
ekki til að Síminn hafi hafnað
nokkurri umsókn en greinilegt er
að fyrirtækið tekur sér oft of
langan tíma til að svara um-
sóknum.
Ég óttast að sú undantekning
sem veitt er í leyfisbréfi Lands-
síma íslands hf. eigi við of marga
bændur í hinum dreifðu byggðum
því mörkin um synjun eru of rúm.
Hvað ef bóndi er í 11 km fjarlægð
frá símstöð og hver leggur mat á
hvað er sérstaklega mikill kostnaður?
Hvar standa þeir bændur sem
munu ekki fá að njóta þessarar
þjónustu?
Hreint og klárt hyggóamál
Þetta er hreint og klárt
byggðamál og stjómvöld verða að
tryggja að allir njóti sömu
lágmarksþjónustu.
I næstu viku munum við
Sigurgeir Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri BI, eiga fund með
Brynjólfi Bjamasyni, ffam-
kvæmdastjóra Landssíma íslands
hf. Á þessum fúndi skýrist staða
mála vonandi,“ sagði Jón B
Lorange, forstöðumaður tölvu-
deildar Bændasamtakanna þegar
Bændablaðið bar svar ráðherra
undir hann.
fyrir sér því hún er ógnun við af-
komu stórs hluta bændastétt-
arinnar. Sömuleiðis hljótum við
áfram að velta fyrir okkur þjóð-
lendumálum og þeirri þróun sem
þar á sér stað, sem er önnur en
maður átti von á. Evrópumálin
verða örugglega mikið rædd á
þinginu og sú umræða sem er í
gangi í þjóðfélaginu um aðild
Islands að Evrópusambandinu og
áhrif þess á landbúnaðinn. Það eru
líka í gangi viðræður um nýja
alþjóðasamninga og þeim hljótum
við að velta fyrir okkur á Bún-
aðarþingi, hvemig þeir þróast og
hvaða áhrif þeir munu hafa á land-
búnaðinn. Þá verða að sjálfsögðu
til umræðu ýmis réttinda- og kjara-
mál bænda. Þetta tel ég að verði
helstu mál þingsins," sagði Ari
Teitsson.
hentar við allar mögulegar að-
stæður.
Baggastærð er 120x80-160 cm
og einnig er hægt að fá vélina með
söxunarbúnaði, 10-23 hnífa.
í apríl nk. er væntanleg á
markaðinn rúllu- og pökkunarvél
(samstæða) frá Vicon með bæði
RV1601 og RV1901 fastkjama-
vélum og Kvemeland pökkun-
arvélum að aftan. Þessi vél verður
boðin í takmörkuðu magni næsta
sumar.
- Frá Ingvari Helgasyni
Fjarnám í búfræði <^>
Nýir nemendur verða teknir inn í fjarnám
bændadeildar LBH á komandi vorönn, ef næg
þátttaka fæst. Fjarnám í búfræði er fyrst og
fremst ætlað starfandi bændafólki og miðað við
að nýnemar taki 4-8 einingar á fyrstu önn.
Námið fer að mestu fram um tölvupóst en þó er
ætlast til að nemendur komi að Hvanneyri við
upphaf annar og einnig til verklegra æfinga í
einstökum áföngum.
Nánari upplýsingar fást hjá Eddu Þorvaldsdóttur,
umsjónarmanni fjarnáms (edda@hvanneyri.is) og Birni
Garðarssyni, kennslustjóra (bjorng@hvanneyri.is).
Umsóknir berist á ofangreind netföng fyrir 22. nóv. 2002.
LBH -Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri
437 0000 - lbh@hvanneyri.is - www.hvanneyri.is
Þj óðlendufundur
Opinn fundur um þjóðlendumál verður haldinn 15. nóv. nk. í
Súlnasal Hótel Sögu og hefst kl. 16.00
Fundarboðendur eru:
Landeigendur í samvinnu við Bændasamtök íslands
Fundarstjórar:
Ólafur Björnsson hrl og Sigurgeir Þorgeirsson framkvstj. Bændasamtakanna
Dagskrá:
Gunnar Sæmundsson varaform. Bændasamtakanna : Ávarp
Framsöguræður:
Sigurður Líndal prófessor: Lög um þjóðlendur og framkvæmd þeirra
Ragnar Aðalsteinsson hrl: Eignarréttur og mannréttindi
Örn Bergsson bóndi Hofi, Öræfum: Væntingar bænda til þjóðlendulaga, orð og efndir.
Björn Sigurðsson bóndi Úthlíð.Biskupstungum: Framkvæmd þjóðlendulaga
frá sjónarhóli landeiganda.
Að loknum framsöguerindum verða opnar umræður.
Bændur og aðrir landeigendur eru hvattir til að mæta á fundinn
MultiMint
MultiMint er mýkjandi hitakrem sem m.a. inniheldur
japanska piparmintuolíu.
MultiMint er sérlega til þess fallið að mýkja upp
júgur/júgurhluta og á þann hátt flýtt fyrir lækningu sem
og dregið úr vefjaskemmdum júgurhlutans.
Forsenda árangurs felst í því aö nudda hitakreminu inn
í júgurhlutann 2-5 sinnum á dag í 2-5 daga.
Pakkningastærð: 250 ml og 500 ml.
VARUÐ!
- GEYMIST ÞAR SEM BÖRN NÁ EKKI TIL.
- FORÐIST AÐ EFNIÐ BERIST í AUGU OG SLÍMHIMNUR.
Útsölustaðir:
Innflutningur og drelfing:
Mjólkurbú og búrekstrarvöruverslanir PharmaNor hf.