Bændablaðið - 12.11.2002, Page 19
Þriðjudagur 12. nóvember 2002
BÆNDABLAÐIÐ
19
Búferlaflutningar í janúar-
september 2002
Dregur úr fúlksttningum
fil höfuOborgarsvæðisins
Hagstofa íslands hefur birt
tölur um búferlaflutninga fyrstu 9
mánuði þessa árs. Þar kemur fram
að dregið hefur úr fólksflutningum
frá landsbyggðinni til höfúðborg-
arsvæðisins. Aðfluttir umfram
brottflutta á þessu tímabili voru
525, en voru á sama tíma í fyrra
1324.
Á fyrstu níu mánuðum ársins
var skráð 43.891 breyting á lög-
heimili einstaklinga í þjóðskrá. Þar
af fluttu 23.517 innan sama sveit-
arfélags, 13.888 milli sveitarfé-
laga, 3.239 til landsins og 3.193
ffá því.
Á þessu tímabili fluttust aðeins
46 fleiri einstaklingar til landsins
en frá því. Brottfluttir íslendingar
voru 692 fleiri en aðfluttir. Aftur á
móti voru aðfluttir erlendir ríkis-
borgarar 738 fleiri en brottfluttir.
Á sama tíma árið 2001 voru að-
fluttir umfram brottflutta til
landsins umtalsvert fleiri en í ár,
eða 1.051.
Til höfúðborgarsvæðisins voru
aðfluttir umfram brottflutta 525. Á
landsbyggðinni fækkaði íbúum
vegna búferlaflutninga um 479.
Ekkert landsvæði utan höfuð-
borgarsvæðisins var með fleiri að-
flutta en brottflutta.
Flestir fluttu frá Norðurlandi
vestra (115), Vesttjörðum (106) og
Austurlandi (94). Af einstökum
sveitarfélögum fluttust flestir til
Kópavogs (398) og Hafnarfjarðar
(238), en flestir frá Reykjavík
(234), Vestmannaeyjum (64) og
Húsavíkurbæ (51).
LANDSTÚLPI1W
- Fjós eru okkar fag -
• Weelink fóðrunarkerfi
• Innréttingar og básadýnur
- ath! bæði í legubásafjós og básafiós.
• Steinrimlar og flórsköfukerfl í gripahús
• Veitum aðstoð og ráðgjöf við hönnuri fjósa
- hafið samband, við mætum á staðinn
• Loftræstingar
- í nýjar og eldri byggingar
Bændum býðst að
flokka ull sína sjálflr
Gengið hefur verið frá samningi milli Istex, Bændasamtaka Islands
og Landssamtaka sauðfjárbænda um móttöku, meðferð og greiðslu
fyrir ull til 1. september 2003.
Vegna erfiðleika á ullarvöru-
markaði felur samningurinn í sér
4,5% meðaltals lækkun á ullar-
verði í krónum talið milli ára. Enn
fremur er lækkað hlutfall
ullarverðs, sem greiða skal 1. dag
þriðja mánaðar eftir móttöku úr
80% í 70% og greiðslufrestur
eftirstöðva er lengdur í allt að niu
mánuðum frá móttöku.
Umsamið ullarverð er sem hér
segir (kr/kg af hreinni ull):
HÚ: 520,51
H1: 437,01
H2: 362,50
H3: 61,46
M1-S: 362,50
M1-G: 362,50
M1-M: 362,50
M2: 34,43
M3: 6,11
Sú nýbreytni er tekin upp í
þessum samningi, að bændum gefst
nú kostur á að flokka sjálfir ull sína
og fá fyrir það 15 kr. á kg af
óþveginni ull. Það er þó áskilið að
matið sé rétt. Trúnaðarmenn í ullar-
þvottastöð munu kanna flokkunina
og sé því svo ábótavant að
nauðsynlegt reynist að endurflokka
ullina, verður ekki greitt fyrir
heimaflokkunina. Sé heimaflokkun
bónda breytt, skal við uppgjör gera
honum grein fyrir ástæðum
breytinganna.
Samhliða þessum valkosti geta
bændur valið að senda ullina
ómetna til ístex eða fengið ullar-
matsmann heim svo sem verið
hefúr.
Bændur sem flokka sjálfir
verða að kynna sér vel matsreglur
og hvemig ganga skal frá ullinni til
sendingar. 1 þeim tilgangi hefúr
verið dreift ffæðslubæklingi um ull
og ullarmat ásamt myndbandi um
sama efni til allra leiðbeininga-
miðstöðva, þar sem bændur geta
nálgast þetta efhi, en bæklingurinn
var sendur öllum sauðfjárbændum
fyrir nokkrum ámm. Bændur eru
hvattir til að kynna sér þessar
leiðbeiningar og takast á við ullar-
matið. Það auðveldar bændum
flokkunina og eykur öryggið að
flokka æmar eftir lit (gulku/mislit)
og ástandi ullar áður en rúið er.
Hér á eftir fylgir samantekt á
helstu atriðum í skilgreiningum
mismunandi ullarflokka.
H-Úrval. Alhvít. gallalaus og
óskemmd ull. Ullin skal vera
togfín, þelmikil og gljáandi og al-
gerlega laus við galla (sbr. H1).
H1 -1. flokkur hvít ull. Hvít,
hrein, fremurtogfín ull, nær laus
við gul hár og laus við galla, svo
sem rusl, mor, þófa, mýrarrauða,
húsagulku og tvíklippingu. Laus
við þófasnepla og hnúta í togi.
H2 - II. flokkur hvít ull. Hvít
óskemmd ull sem ekki er tæk í I.
flokk vegna minni háttar galla,
svo sem gulra eða dökkra hára,
grófs togs, lítils þels, minni háttar
húsagulku, lítlls háttar þófa eða
þófasnepla og tvíklippingar. Laus
við rusl, heymor og mýrarrauða.
H3 - III. flokkur hvít ull. Hvít,
gölluð eða skemmd ull sem þó er
söluhæf, þ.e. ull sem er aðeins
þófin eða með þófasnepla í togi,
ull með mýrarrauða, ull með rusli
eða heymori í litlum mæli og
áberandi tvíklippt ull.
M1 -1. flokkur Sauðalitir.
Sauðsvart: Svört ull, laus við
grá eða móleit hár og sem stenst
að öðru leyti kröfur um I. flokk
Mórautt: Mórauð ull, laus við
gráan blæ (ekki grámórauð) og
sem stenst að öðru leyti kröfur
um I. flokk
Grátt: Grá ull með steingráan
blæ, laus við móleitan blæ og
sem stenst að öðru leyti kröfur
um I. flokk
M2 - II. flokkur mislit ull. öll
önnur óskemmd mislit ull, sem
stenst kröfur um II. flokk.
Snoðull er flokkuð samkvæmt
þessum skilgreiningum en auk
þess eftir lengd, sem hér segir:
I. flokkur - meðallengd yfir 6
cm og þellengd yfir 2,5 cm
II. flokkur - meðallengd yfir
4,5 cm og þellengd yfir 1,5 cm
III. flokkur - of stutt fyrir II.
flokk.
Kviðull fer að iafnaði í II. flokk
fhaustull) eða III. flokk fvetrarullV
sömuleiðis aróf læraull. Gula
hnakkaull á að aðskilja frá reifinu
við rúning og fleygja henni. (Ef
hún blandast ullinni getur það
fellt hana um flokk.)
Ull með miklu rusli eða heymori,
verulega þófinni ull og ull með
skítakleprum skal fleygt.
Sumarrúin ull (rúið eftir
sauðburð) telst ekki verslunar-
vara og skal fleygt. Ull sem
klippt er af gærum telst ekki
verslunarvara.
Skemmdri og mjög gallaðri
mislitri ull skal fleygt.
Flokkuð ull er sett í poka og
merkt með ullarflokki og nafúi
innleggjanda. Ull sem send er til
innleggs þarf að fylgja flokkunar-
blað, þar sem ffam kemur nafn
innleggjanda og fjöldi poka í
hverjum flokki. Ullin er vigtuð í
ullarþvottastöð áður en hún fer í
þvott.
Orðsending frá ístex um
merkingar á ullarpokum
Mikilvægt er að ullarinnleggjendur merki alla poka greinilega með
nafni, heimilisfangi og kennitölu. Einnig er nauðsynlegt að merkja
fjölda af pokum á alla merkimiða svo
öll ullin sé metin í einu og ekki vanti
poka í uppgjörið.
Framhlið á merkispjaldi:
'-3999
"afn: .. —
JonMPá/sson
He,mi'i: OrUnti
Kenn*«/a; 150565.3
Pokafjöldi:
15
Innleggjendur sem flokka ullina
sjálfir verða að skrifa nafn á flokki greinilega á hvern
poka. Fyrir aftan nafn á flokki þarf að merkja hvort sendingin sé
haust, vetrar eða sumarull með stöfunum H, V eða S
Bakhlið á merkispjaldi:
(dæmi um 1. flokk haustull).
Lárus Arnar Bjarni
s: 437 0023 / 869 4275 s: 486 5656 / 898 9190
Bændur í
Bænum - Gistið í
Kópavogi
Stúdíóíbúð með öllum búnaði til
skammtímaleigu.
Upplýsingar í símum 898 9782
og 564 2424
Allt til rafhitunar
Fyrir heimili og sumarhús
Oso-hitakútar
Oso hitakútar eru úr ryðfríu stáli að innan.
30 ára frábær reynsla.
Margar stærðir. Meðal annars 5 til 300 1.
Blöndunarloki, öryggis- og aftöppunarlokar
fylgja.
Einföld og fljótleg uppsetning.
Hagstætt verð.
WÖSAB olíufylltir ofnar
wMmm
Wösab olíufylltir ofnar.
Fallegir, vandaðir olíufylltir veggofnar
með termostati.
Innbyggð stilling til að halda 5° hita.
Stærðir: 400, 750, 800, 1000, 1600 og 2000 w.
Hæð: 30 eða 60 cm.
Hagstætt verð.
Oso hitatúpur
Margar stærðir. Meðal annars 5 til 15 kw.
Henta meðal annars fyrir miðstöðvarhitun og
einnig fyrir neysluvatn. Hagstætt verð.
Einar Farestveit & Co. hf
Borgartúni 28. sími: 562 2901 og 562 2900.
K
onjókeöjur fyrir
ÖH feraitelá....
Aðeins vara frá
viðurkendustu
framleiðendum
Tellefsdal - Trygg - OFA
Gunnebo-Weed
..! einum greenum
Smiðjuvegur 8 - Kóp
Sími: 577 6400