Skátaforinginn - 01.05.1991, Blaðsíða 19
ALHEIMSMOT
KANDERSTEG
SAMFEU\GIÐ & UMHVERFIÐ
Nr. 29 - Góðir dagar í Olpunum
Verð: SFr 10
Þetta er tækifærið til að kynnast fjöllunum og þeirri vinnu sem þar fer fram, tækifæri til að aðstoða
fjallabændurna í heyskapnum og við mjólkurframleiðslu. Við munum læra leiki sem bændumir fara
í þegar þeir hafa lausa stund og njóta rólegra og hljóðlátra kvölda í upphæðum Sviss. Auk þess
munum við koma þér á óvart með nokkrum óvæntum uppákomum!
Útbúnaður: Gönguskór.
Hæfni: Gott líkamsástand.
Nr. 32 - Fjallatjörn
Verð: Innifafið í mótsgjaldi.
Hefur þú einhvem tíma gert þér þína eigin tjöm? Ef ekki skaltu koma með okkur upp í fjöllin þar
sem við munum kenna þér handbrögðin. Við munum vinna mcð skóflum og leita að trjám og flytja
þau til. A meðan á þessu stcndur færðu tækifærí til að kynnast vel gróður- og dýralífi Alpana. Ef þú
tclur ekki eftir þér að vinna skaltu skella þér með!
FERÐALOG
Nr. 48 - Alpaför
Vcrð: SFr 100
Frá upphafi vega hefur fólk
hrifist af því að ferðast yfir
Alpana. Við munum farayfir
Alpana frá Kandersteg til
Wallis. Þessi fcrð mun leiða
okkur upp til hæstu tinda,
um snæviþakin svæði og
jökla. Við munum gista í
(jallakofum og k\’nnast lífinu
hátt uppi í fjöllum. Útbún-
aður: Göngusk. og bakpoki.
Hæfni: Gott líkaml. ástand.
Nr. 71 - Fjöll & sveitir
Verð: Innif. í mótsgjaldi.
Frá Kandersteg í 2ja daga
hæk í 3000 m hæðyfir sjávar-
máli. Við munum gista í
notalegum fjallakofa og
horfa á sólarupprásina. Við
munum fara yfir jökul í fylgd
reynds leiðsögumanns.
Dagskráin heldur svo áfram
með spennandi hjólreiða-
ferð yfir (jallaskarð og við
munum gista undir berum
himni. Stórkostleg gúmmí-
bátaferð (rivcr-rafting) tekur
við af hjólreiðaferðinni og
um kvöldið munum við
kynna okkur næturlífið í
Genf! Útbúnaður: Göngu-
skór, bakpoki, sólgleraugu
og hlýr fatnaður. Hæfni:
Gott líkaml. ástand, geta
hjólað langar vegalengdir,
geta synt -400 m. án hvíld-
HANDMENNT & LISTIR
Nr. 35 - Ljósmyndanámskeiö
Verð: SFr 15
Hefur þú áhuga á Ijósmyndun? Viltu læra að nota myndavél
og framkalla þínar eigin myndir? Ef svo er skaltu koma með
okkur í „ljósmyndasafarí" um austurhluta Sviss. Við tökum
myndir af öllum mögulegum og ómögulcgum hlutum í náttúr-
unni og í byggð - allt eftir þínu cigin hugmyndaflugi.
Útbúnaður: Myndavél.
Nr. 37 - Sjónvarpsstöö mótsins
Verð: SFr 30
Þú munt kanna Sviss á mjög sérstakan hátt í fylgd með 3 til 4
róverskátum. Þú stansar stutt á hverjum stað og ferð fjölbrcytta
reynslu af Iandinu. Þú munt búa til fréttir og annað efni fyrir
sjónvarpsstöð mótsins í samvinnu við myndverið í Kandersteg.
Þú verður á ferðinni allan tímann og safnar efni sem sýnt verður
þátttakendum í Kandersteg á kvöldin.
Útbúnaður: Gönguskór.
V I N T Y R I
EKTA FONDUE
U l> P L I F U N
V I N T Y R I
KLETTAKLIF U R
UPPLIFUN
IÞROTTIR
Nr. 72 - Geggjuð skíöaferö
Verð: SFr 80
Er það ekki draumur allra að fara á skíði í Sviss? Við munum kynnast nýrri hlið á skíðaíþróttinni
þar sem við skíðum niður grasivaxnar brekkumar. Auk þcss munum við eyða töluverðum tíma í
fallahjólaferðir og ýmiss konar skoðunarferðir.
Nr. 79 - Kanóferö
Verð: SFr 60
Við byrjum á því að æfa okkur á lygnu vatni undir leiðsögn reyndra kennara. Síðan ferist fjör í
leikinn þegar við förum í rómantískan könnunarleiðangur niður eftir ánni Reuss. Löng kvöld við
varðeldinn og matseld á hlóðum munu skapa einstaka stemmningu sem engin ætti að láta fram hjá
sér fara.
SKÁTAFORINGINN -19