Skátaforinginn - 01.05.1991, Blaðsíða 18

Skátaforinginn - 01.05.1991, Blaðsíða 18
ALHEIMSMOT í KANDERSTEG DAGSKRÁIN Þátttakendum gefst kostur á að kynnast fjölmörgum hliðum á Sviss í gegnum fjölbreytta dag- skrá. Hver þátttakandi mun dvelja helming mótsins í tjald- búð í Kandersteg en hinn helm- inginn utan Kandersteg í sjálf- valdri dagskrá. Sú dagskrá er dreifð um allt land. Allir þátttakendur mun koma saman þrisvar sinnum í Kander- steg, við mótssetningu, um mið- bik mótsins og við mótsslit. Styttri dagskrárliðir Á hverjum degi verða u.þ.b. 50 dagskrártilboð í og við Kanders- teg. Þessi tilboð eru mismun- andi löng, alit frá einni klukku- stund upp í heilan dag. Sjö meg- in þemu verða í þessari dagskrá og hér að neðan eru nokkur dæmi um dagskrártilboð innan hvers þema. Athugið að þetta er ekki tæmandi skrá heldur aðeins nokkur dæmi! Menning Farið á tónleika eða í leikhús, dans, stjómmál og tungumála- námskeið. Handmennt Leirkeragerð, myndlist og strákörfugerð. Skoöunarferöir Söfn, borgir, heimsóknir í verk- smiðjur og opinberar stofnanir. Göngu- og fjallaferöir Farið í stuttar ferðir um fjöllin í nágreninu. íþróttir Svifdrekaflug, seglbrettasigl- ingar, körfubolti, glíma og hjól- reiðaferðir. Umhverfismál Sólarorka, landafræði. Ævintýraferöir Sig, bátsferðir í straumhöróum ám (river-rafting), veiðar, út- reiðatúrar og fjallasvif. í frítíma og á kvöldin Þann tíma sem þátttakendur eru í Kandersteg gefst kostur á að ganga fyrirvaralaust inn í nokkra dagskrárliði sem vcrða stöðugt í 18 - SKÁTAFORINGINN boöi. Þar má nefna sem dæmi morgunskokk, þjóðdansatíma, ýmsar íþróttir, leshorn, hand- menntogblásturíAlpahorn! Og á kvöldin má skclla sér á varðeld, inn á kaffihús, í umræðuhópa, spilaklúbb, diskótek cða í keilu. Lengri dagskráratriði Þessi dagskrártilboð eru geysi- lega fjölbreytt oggefa öllum þátt- takendum kost á að upplifa ælvin- týriviðsitthæfi. Þessi dagskrá fer fram um allt land. Fimmtíu þátt- takcndur eru í hverjum hópi. Þessari dagskrá er skipt upp í 7 megin þemu: » Ævintýri & upplifun » Ferðamennska » Menning & saga » Samfélagið & umhverfið » Handmennt & listir » Skoðunarferðir » fþróttir Áður en farið er til Sviss velja þátttakcndur sér þann dagskrár- lið sem þeir vilja taka þátt í. í kynningunni á hvcrjum dag- skrárlið er getið um þann útbún- að sem þátttakendur þurfa að hafa meðferðis, hvaða kröfur eru gerðar til þátttakenda og hve mikið þarf að borga aukalega ef viðkomandi dagskrárliður er ekki innifalin í mótsgjaldinu. Þessir dagskrárliðir eru 80 tals- ins en við skulum líta á nokkra sem valdir eru af handarhófi úr hverjum flokk. FERÐAMENNSKA Nr. 11 - Ævintýri í fjöllunum Verð: SFr 10 Við förum í hækferð í 3000 metra hæð yfir sjávarmáli í fallcgu landslagi Alpanna í Suðaustur-Sviss. Við mun- um kynnast gróðurfari Alp- ana og óbyggðum fjalladöl- um. Við munum fara á fjalla- hjólum að fallegu fjallavatni. Einnig munum við heim- sækja menningarsafn og kynnast siðum og venjum heimamanna. Útbúnaður: Gönguskórog bakpoki. Hæfni: Vera í góðu líkam- legu ástandi og geta hjólað langar vegalengdir. Nr. 17 - Ekta Sviss! Verð: SFr 20 Langar þig til að kynnast íjölbreytileika Sviss? Njóta náttúrufegurðar, syngja fram á nótt, kynnast stórfengleg- um vatnsföllum? Hefur þú áhuga á lækni og vísindum? Ertu forvitin um að kynnast náið mcnningu Svisslcnd- inga? Ef já, þá skaltu sitist í för mcð okkur í fjögurra daga könnunarleiðangur frá Kandcrsteg suður til Tessin. Útbúnaður: Gönguskórog bakpoki. MENNING & SAGA Nr. 20 - Landbúnaður Verð: SFr 15 Þetta er rétti dagskrárliður- inn fyrir þig ef þú hefur áhuga á að vita hvernig dæmigerður svissneskur landbúnaður gcngur fyrir sig. Ef þú hefur áhuga fyrir að matreiða, borða góðan svcitamat og kynna þér myndlist sveitafólksins þá skaltu ekki hika við að skrá þig í þennan dagskrárlið. Utbúnaður: Gönguskór. Nr. 25 - Könnunar- ferð í kastala Vcrð: SFr 40 Æ, hvað við höfðum það golt á miðöldum! Við mun- um heimsækja fjóra fallega og áhugaverða kastala í Can- tonsýslu. Auk þess að kynna okkursögu riddaranna mun- um við auðvitað gefa okkur tíma til að kynnast undur- fögru landslagi og fólkinu á svæðinu. Útbúnaður: Gönguskórog bakpoki. _________________________ÆVINTÝRI & UPPLIFUN_____________________________________ Nr. 2 - Ljós og myrkur Verð: Innifalið í mótsgjaldi Hér gefst þér kostur á að fara í ævintýralega bátsfcrð mcö „hellaívafi”. Við munum ferðast cftir UTilli fallegri á og rannsaka frægan helli. Við munum gista eina nótt í hellinum og hafa þar „fondue-partý”. Þessi nótt í hellinum er þó aöeins ein fjölmargra uppákoma sem við munu bjóða upp á. Útbúnaður: Góðir gönguskór, bakpoki. Hæfni: Geta synt a.m.k. 400 metra án þess að hvíla, ekki hafa innilokunarkcnnd. Nr. 8 - Ævintýri á ánni Aare Vcrð: SFr90 Við munum ferðast á gúmmíbáium eftir cinum fallegasta árfarvegi í Sviss. Viö munum hafa farangurinn með okkur í bátunum, gista í tjöldum og elda matinn á hlóðum. Auk bátsferðarinnar munum við kanna þær sveitir sem við ferðumst hjá. Þetta er rétta ferðin fyrir þá sem vilja rólegheit og rómantik, hugguleg kvöld við varðeldinn en auk þess æsispennandi siglingu um fossa og flúðir.

x

Skátaforinginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátaforinginn
https://timarit.is/publication/909

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.