Skátaforinginn - 01.05.1991, Blaðsíða 26
IVI
S K A T U rs/l
SINGAPORE
FRAMHALD:
FJÖLBREYTT
NÁMSKEIÐ
Af þeim námskeiöum sem í
boði eru á vetuma má t.d. nefna
skíða- og snjóbrettanámskeið.
A sumrin er hins vegar boðið
upp á fallhlífastökk (paraglid-
ing), ísklifur (technical ice) og
(jallamennsku (snow and ice),
kíettaklifur og fleira. Eins er
boðið upp á fjallahjólaferðir
(hægt að leigja hjól), markferð-
ir (high adventure) og bara
hreint hvað sem er. Staðurinn
er alveg frábær. Þangað er að
sjálfsögðu einnig hægt að koma
án þess að gera neitt. Ódýr gist-
ing og matur.... - Nokkurs kon-
ar alþjóðlegt Úlfljótsvatn með
landsmótsyfirbragði.
ALÞJÓÐLEGUR
BRAGUR
Starfsmenn miðstöðvarinnar
eru flestir sjálfboðaliðar. Þegar
ég var þar unnu þar 4 Englend-
ingar, Ástrali, I>jóðverji, Sviss-
lendingur, Dani, Norðmaður
og Bonairebúi. Því má vissu-
lega segja að alþjóðlegur brag-
ur sé yfir staðnum.
Þrír íslenskir skátar hafa farið
til Kandersteg að vinna. Lág-
marksdvöl er 3 mánuðir. Á
sumrin (frá miðjum júní fram í
miðjan september) eru 20
starfsmenn og störfin eru t.d.
tjafdbúðastjórar, markferða-
stjórar, klifurleiðbeinendur,
skálaverðir í The Chalet og The
Tower og skyndihjálparfröm-
uðir. Yfir haustönnina (frá
miðjum septcmber fram í miðj-
an desember) eru 5 starfsmenn
sem eru duglegir við að finna
sér eitthvað að gera. Eins er
með vorönnina (frá miðjum
mars fram í miðjan júní). Störf-
in á þcssum tfmum eru mun
fjölbreyttari og snúast mikið
um undirbúningogviðhald, því
þá eru færri gestir. Á vetuma
vinna þama 8 skátar. Og eins
og þeir segja, þá þarft þú að
"elska snjó, skíði, ost, snjó,
skíði..." Á þessum tíma em yfir-
leitt margir gestir og mikið um
að vera, sem flest tengist snjó og
kulda.
EITTHVAÐ FYRIR ÞIG?
Allir skátar, 18 ára og eldri,
geta sótt um vinnu í Kanders-
teg. Það hjálpar mikið til að
kunna fleiri tungumál en ensk-
una, sem er lágmark. Einnig er
gott að búa yfir einhverri sér-
stakri kunnáttu (t.d. clda-
mennsku, viðhaldi, skíða-
mennsku, klifri o.fl.). Þú skalt
hins vegar ekki sækja um, ef þú
fyllir flokk letingja og úrillra,
lætur illa að stjóm og ert morg-
unfúl(l). Ef þú, skáti góður,
hefur í hyggju að prófa eitthvað
nýtt og spennandi, skaltu endi-
lega hafa samband við skrif-
stofu BÍS og fá nánari upplýs-
ingar. Þar getur þú einnig feng-
ið nöfh og heimilisföng þeirra
Islendinga sem verið hafa í
starfsmannabúðunum og
spjaltað við þá.
EKKI MISSA AF
MÓTINU !
Þar sem undirbúningur fyrir
Rovermótið í Kandersteg 1992
er þegar kominn á fullt skrið og
allt stefnir í stóran hóp ís-
lcnskra þátttakenda vona ég að
enginn roverskáti láti það stór-
kostlega tækifæri fram hjá sér
fara, ef hann á annað borð hef-
ur mögulcika á að komast.
SKATAR I SINGAPORE
Singapore er eyja, tæpir 1.000
ferkílómetrar að stærð en íbúar
em um 2,7 milljónir. Það gefur
því auga leið, að lítið er um
óbyggð svæði með óspilltri nátt-
úm, þar sem hægt er að fara í
gönguferðir eða útilegur. Ég
held að við á Islandi metum ekki
nægilega kostina við að búa í okk-
ar strjálbýla, fallega landi, þar
sem möguleikar til útivistar em
óendanlegir.
CAMP CHRISTINE
Eina dagstund gafst þingfulltrú-
um kostur á að hcimsækja stað-
inn, þar sem Singapore-skátar
fara í útilegur. Staðurinn er kall-
aður Camp Christine og minnti
mig dálílið á Úlfljótsvatn. Þama
vom svefnskálar, vinnuskálar og
tjaldsvæði, sem lá niður að vatni.
Skátaflokkar og sveitir geta sótt
um að fá að dvelja þarna nokkra
daga og var mikil aðsókn í þarf,
eins og gefur að skifja.
Þegar okkur bar að garði var
mikið um að vera á svæðinu.
Fjöldi skáta, allt frá 7 ára Ijósálf-
um og upp í unglinga vom að
leysa ýmis verkefni á víð og dreif
um svæðið og vomm við hvött til
að taka þátt í ýmsum lcikjum og
föndri. Var gaman að sjá, hvernig
gamalt og nýtt blandaðisl saman.
Nokkrir skátar vom að leika sér í
æfafomum "steinaleik" sem t.d.
Afríkubúar könnuðust við, á
meðan aðrir vom að búa til kör-
fur úr plastflöskum.
STÓRFLJÓT Á
SVIPSTUNDU
Föndurverkefnin og innilcikim-
ir fóru fram í vinnuskálun-
um.sem vom aðeins yfirbyggðir
pallar, veggjalausir. A miðjum
heimsóknam'manum sáum við,
hve nauðsynlegt var að hafa þetta
yfirbyggt, því þá kom þvflík hclli-
rigning að ég hefði aldrei trúað
því að svo mikið gæti rignt. Á
svipstundu mynduðust stórfljót
allt í kring um okkur, en þctta
hafði greinilega gerst áður, því út
um allt var kerfi af stokkum, sem
tók við vatnsflaumnum. Nokkm
áður en fór að rigna heyrði ég
einhverjar drunur og spurði
skáta, sem vom að sýna mér tjald-
búðina sína hvaða hljóð þetta
væri. Þcir horfðu á mig, undrandi
á svip og sögðu að þelta væru
þmmur. Ég reyndi að afsaka fá-
fræði mína og sagði að þrumur
heyrðust næstum aldrei það scm
ég ætti heima. Einn skátinn
spurði mig steinhissa: "Hvernig
vitið þið þá hvenær von er á rign-
ingu?"
„BJÖLLUNET”
Ei lt af því semvarígangiá svæð-
inu var flokkakeppni. Flokkarnir
fóm á milli pósta og áttu að leysa
ýmis verkefni á afmörkuðum
tíma. Það var gaman að sjá, hve
það er lítill munur á skátastúlk-
um í flokkakeppni á íslandi og
hinum meginn á hncttinum.
Ákafinn og ánægjan skein úr
hverju andliti og mikið kapp var
í öllum.
Tvö vcrkefni fundust mér sér-
staklega skemmtileg. Annað var
"bjöllunct": milli tveggja stanga,
ca. 2 m hárra var fléttað net, með
misjafnlcga stórum möskvum,
aflir þó það stórir að krakki
komst í gegnum. Flokkurinn átti
að koma öllum skátunum í gegn-
um netið, án þcss að heyrðist í
bjöllum, sem hengdar voru á net-
ið. Ekki mátti fara nema einu
sinni í gcgnum hvem möskva.
Þetta reyndi mikið á samvinnu
allra í flokknum og var gaman að
sjá skátana glíma við þetta.
VATNSFATA-
LÍFSHÆTTA!
Hitt verkcfnið var nokkuð flók-
ið, en þeir tveir flokkar, sem ég
fylgdist með, leystu það ágæt-
lega. Flokkurinn stóð á brekku-
brún. Neðan við brekkuna var
TEXTI & MYNDIR: BJORK THOMSEN
Síöastliöiö sumar áttl ég þess kost aö sækja alþjóöaráöstefnu kvenskáta
í Singapore. Ráöstefnan stóö í tíu daga og var flesta daga setiö frá
morgnl til kvölds á fundum og rætt um lagabreytingar, áætlanagerð,
fjármál, inntöku nýrra landa o.fl. o.fl. Ég hef áöur greint frá þingstörfum
og samþykktum, sem á þinginu voru geröar, en nú langar mig til aö segja
frá nokkrum viðburöum, sem ekki snerta þinghaldið sjálft.
26 - SKÁTAFORINGINN