Skátaforinginn - 01.05.1991, Blaðsíða 17

Skátaforinginn - 01.05.1991, Blaðsíða 17
ALHEIMSMOT KANDERSTEG yfir aldur. Alþjóðaráð hefur skipað undirbúningsnefnd til að skipuleggja ferðina og hefur megin starf hennar verið fólgið í upplýsingaöflun og kynningu. Nú er komið að því að skrá hugs- anlega þátttakendur og hefur umsóknarfrestur verið ákveðinn til 20. maí n.k. HVAÐ KOSTAR? Enn er ekki komið endanlegt verð á ferðina en gert er ráð fyrir að kostnaður hvers þátttakenda verði um 100.000.- krónur. Inni- falið í því verði er m.a. mótsgjald- ið, fullt faeði, allar ferðir, trygg- ingar o.fl. Ymsir kostnaðarsamir dagskrárliðir eru ekki innifaldir í mótsgjaldinu og þarf því að greiða fyrir þá sérstaldega vilji menn taka þátt í þeim. Gert er ráð fyrir að margir þátttakendur vilji nýta sér tækifærið og ferðast um eftir mótið og mun undir- búningsnefndin aðstoða áhuga- sama um að skipuleggja slíkt ferðalag. ALLT SEM ÞARF Til að gera dvöl þátttakenda sem ánægjulegasta munu móts- haldarar bjóða upp á aUa þá þjónustu sem við nútímafólk er- um vön að hafa aðgang að. Þrjár verslanir og sölutum, pósthús, símstöð, banki og ferðaskrifstofa eru á meðal þeirrar þjónustu sem í boði er. MATARMÁLIN Gífurleg fjölbreytni í mataræði er eitt aðalsmerki mótsins. Sett verða upp tíu mismunandi eld- hús sem hvert um sig matreiðir ákveðna tegund matar. Við faum tældfæri til að kynnast matar- Æ V I N T Ý R I FJALLAFERÐIR URRLIFUN Æ V I N T Ý R I FALLHLÍFASTÖKK URRLIFUN gerðartist frá Þýskalandi, Frakk- landi, Asíu, Bandaríkjunum, Suð- ur-Ameríku og ítalfu auk hinnar fjölbreyttu matargerðar heima- manna. Og fyrir þá sem vilja býð- ur eitt eldhúsið eingöngu upp á grænmetisfæði. Þátttakendum er svo frjálst að borða það sem þeir helst kjósa. Auk hinna tíu eldhúsa munu þrír veitingastaðir og kaffihús taka vel á móti gestum sínum með fjölbreyttum mat og margs konar uppákomum s.s. leiksýn- ingum og þjóðlagatónlist. SKÁTAFORINGINN -17

x

Skátaforinginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátaforinginn
https://timarit.is/publication/909

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.