Skátaforinginn - 01.05.1991, Blaðsíða 6
Markmiðið mcð útgáfunni er að
auðvelda félagsforingjum að
halda til haga þeim upplýsingum
sem þeir fá frá skrifstofunni. Á
tímabilinu voru gefin út 6 tölu-
blöð.
Skrifstofa BÍS annast útgáfu á
Aðalstjómartíðindum en sú út-
gáfa hófst í júlí 1989. Aðalstjóm-
artíðindi em eingöngu send til
aðalstjómarfulltrúa og hafa að
geyma fundargerðir fram-
kvæmdastjórnar, aðalstjómar og
fastaráða auk ýmissa annarra
upplýsinga. Gefin vom út 10
tölublöð á tímabilinu.
Sú nýbreytni var tekin upp í
byrjun árs 1991 að gefa út vegg-
spjaldið „Töflufréttir”. Töflu-
fréttir eru sendar mánaðarlega
út með félagsforingjafréttum og
innihalda þær upplýsingar um
það helsta sem á döfinni er.
Töflufréttir eru gefnar út um
miðbik hvcrs mánaðar og gilda
fyrir mánuðinn þar á eftir. Er
það von stjórnar að þetta muni
efla enn frekar upplýsingaflæði
til starfandi skáta. Skrifstofa BÍS
hefur umsjón með útgáfunni.
Gefin var út símaskrá BÍS. Inni-
heldur hún nöfn, heimilisföng
og símanúmer allra fétagsfor-
ingja, félagsstjórna og allra skáta
í stjórnum og ráðum BÍS.
Gefið var út íyrsta heftið í nýjum
smábókaflokk sem ber yfirskrift-
ina „Fræðslurit BÍS”. Fyrsta
heftið heitir: „Stofnun, skipu-
lagning og starfisáætlun skátafé-
lags - hugmyndir og tillögur”.
Efnið í bókina var unnið af starfs-
ráði Skátasambands Reykjavíkur.
Erindrekstur
Ekki hefur verið starfsmaður í
starfi erindreka frá því vorið
1989. Starfsmenn skrifstofu og
framkvæmdastjóm hafa leitast
við að sinna því starfi á tímabil-
inu. I því sambandi er helst að
nefna eftirfarandi:
- Vorið 1990 var unnin af skrif-
stofu BÍS ítarleg skýrsla um stöðu
félaganna, bæði hvað varðar
innra starf og húsnæðis- og íjár-
mál.
- Framkvæmdastjórn hélt fundi
með fulltrúum skátasambanda
utan höfúðborgarsvæðisins að
Úlíjótsvatni dagana 4. og 5. júlí
1990.
- Kristín Bjarnadóttir og Helgi
Eiríksson framkvæmdastjóri sátu
fund með skátafélögunum á
Vesturlandi 6. september.
- Helgi Eiriksson framkvæmda-
stjóri heimsótti skátafélögin á
Norð-Austurlandi dagana 12. til
15. nóvember 1990.
Einnig er rétt að taka fram að
framkvæmdastjórar landsmóts
og kynningarnefnd landsmóts
vom í góðu sambandi við öll fé-
lögin frá því í febrúar 1990 fram
að hausti sama ár.
Fjáraflanir
Landshappdrætti BÍS.
Seinni hluta ágústsmánaðar
flutti framkvæmdastjóri LHS,
Björn Hermannsson, stjórn
bandalagsins þau boð að stjóm
LHS byðist til að hatda lands-
happdrætti fyrir bandalagið og
var það þegið. Happdrættið fór
af stað í lok septembermánaðar
og hlaut nafnið "Heiti potturinn".
Dregið var þann 19. október.
Mikil auglýsingaherferð fylgdi
happdrættinu og var meðal ann-
ars sendur út litprentaður kynn-
ingarbæklingur með áföstum
happdrættismiða í hvert hús á
landinu. Hagnaður varð að vísu
minni en vonir höfðu staðið til,
en happdrættið skilaði þó banda-
laginu nokkrum tekjum. Hins
vegar var auglýsingalegt gildi
hapf)drættisins gífurlegt og verð-
ur alls ekki metið til fjár. Frá
kynningarlegu sjónarmiði varð
happdrættið til að hnykkja enn
frekar á þeirri jákvæðu kynningu
sem skátahreyfingin fékk á síðast-
liðnu ári með landsmóti á Úlf-
ljótsvatni.
Límmiöasala
BÍS stóð fyrir landsfjáröflun á
árinu. Seldir vom límmiðar og
bílrúðumiðar með slagorðinu:
„Ávallt viðbúinn - og kemst heill
heim!” Salan gekk illa og kom
þar m.a. annars til hve fá félög
tóku þátt í sölunni.
Fastanefndir BÍS
Alþjóðaráð
Alþjóðaráð er skipað eftirtöld-
um skátum: Anna Gunnhildur
Sverrisdóttir, formaður, Amfinn-
ur U. Jónsson, erlendur bréfritari
drengjaskáta, Nína Hjaltadóttir,
erlendur bréfritari kvenskáta,
Guðrún Nikulásdóttir, Skátasam-
bandi Reykjavíkur, Sigurður
Bjarnason, Skátasambandi
Reykjaness, Emih'a P. Landmark,
Skátasambandi Vesturlands og
Hrönn Pétursdóttir, Skátasam-
bandi Norðurlands.
Samskipti við alþjóðaskrifstof-
urnar og Evrópuskrifstofurnar
hafa verið með hefðbundnum
hætti. Á límabilinu voru haldnar
alþjóðaráðstefnur beggja al-
þjóðabandalaganna sem BÍS er
aðili að. Tveir fulltrúar okkar
voru á hvorri ráðstefnu.
Norræna samstarfið hefur verið
með eðlilegum hætti og reis það
6 - SKÁTAFORINGINN
EFRITIL VINSTRI:
Kampakát eftir aö hafa fengiö heiöursmerki fyrir vel unnin störf.
F.v. Víking Eiríksson hlaut Skátakveöjuna, Hallbjörg
Þórarinsdóttir hlaut Þórshamarinn og Benjamín Axel Árnason en
hann hlaut einnig Þórshamarinn.
EFRITIL HÆGRI:
Framkvæmdastjórn BÍS: F.v. Páll Zóphóníasson, Kristín
Bjarnadóttir og Gunnar H. Eyjólfsson.
NEÐRI TIL VINSTRI:
Fulltrúar frá Skátasambandi Reykjaness: F.v. Björn Hilmarsson,
félagsforingi Vffils, Siguröur Bjarnason, varaformaöur SKR,
Ragnhildur Ingólfsdóttir félagsforingi, Víkverja og Sigurjón
Vilhjálmsson, formaöur SKR.