Bændablaðið - 01.04.1989, Side 17
AUKABLAÐ MEÐ 2. TBL.3. ÁRG. 1989
ÁBURÐARVERÐ 1989
Óski kaupandi áburðar sem búsettur er utan svæðis sem takmarkast af Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu, Kjósarsýslu, Gullbringusýslu og Rangárvallasýslu, að fá áburð afhentan
í Gufunesi og annast flutning áburðarins sjálfur skal hann fá endurgreitt sem nemur
flutningskostnaði Áburðarverksmiðjunnar á næsta hafnarstað ásamt uppskipunar-, vöru-
sjótryggingargjaldi.
Áburðarverksmiðjan mun ekki annast flutninga til Dalasýslu, Austur-Barðastrandarsýslu og
Vestur-Skaftafellssýslu. Hins vegar mun Áburðarverksmiðjan greiða flutningsstyrk til
áburðarkaupenda í framangreindum sýslum og ákvarðast flutningsstyrkurinn hverju sinni
með hliðsjón af flutningskostnaði til næstu hafnar.
Greiðslukjör
Árið 1989 eru greiðslukjör vegna áburðarkaupa sem hér segir:
a) Staðgreiðsla á verði viðkomandi mánaðar.
b) Kaupandi greiðir áburðinn með átta (8) jöfnum greiðslum sem hefjast í mars en lýkur í
október.
c) Kaupandi greiðir áburðinn með sex (6) jöfnum greiðslum sem hefjast í apríl en lýkur í
september.
d) Kaupandi greiðir áburðinn með fjórum (4) jöfnum greiðslum sem hefjast í maí en lýkur í
ágúst.
Afhending áburðarins til kaupanda samkvæmt liðum b, c og d miðast við að a.m.k. 25% af
andvirði áburðarins hafi verið greitt.
Gjalddagi er 25. hvers mánaðar
Sá hluti áburðar sem afhentur er á lánskjörum skuldfærist á staðgreiðsluverði sem í gildi er
í afhendingarmánuðinum en frá og með fyrsta degi næsta mánaðar eftir afhendingarmánuð
reiknast vextir á höfuðstól skuldarinnar.
BÆNDA- 17
BLAÐIÐ
Gerður skal viðskiptasamningur um lánsviðskipti
Vextir skulu á hverjum tíma vera þeir sömu og afurðarlánavextir sem auglýstir eru hjá
Landsbanka íslands. Vextir greiðast á sömu gjalddögum og afborganir.
Kaupandi skal leggja fram tryggingu fyrir þeim hluta viðskiptanna sem eru lánsviðskipti.
Gufunesi 17. mars 1989
^ ÁBURÐARVERKSMIÐJA RlKISINS