Bændablaðið - 01.09.1992, Side 4
6. TBL. 6. ÁRG. SEPTEMBER 1992
Halldór Blöndal á aðalfundi SB:
TVÍBENT HVORT
ÁKVEÐNAR
JAÐARBYGGÐIR EIGI
AÐ FARAí EYÐI
Halldór Blöndal, landbúnaðar-
ráöherra, tók til máls í eldhúsdags-
umræðum Stéttarsambandsfull-
trúa og sagði meðal annars að í
umræðunum hefðu ýmsir fest sig
viö smáatriði miðaö viö þann
vanda sem sauöfjárbændur ættu í
sem heild.
Hann sagði að á sfðasta hausti
hefði verið erfitt að meta hvort
misræmi yrði á milli fullvirðisréttar
og greiðslumarks og ekki hefði
verið rétt að stefna markaðs-
áætluninni þannig aö hætta yröi á
kjötskorti.
Þá ræddi landbúnaðarráðherra
byggðamál og kvað tvíbent hvort
ákveðnar jaðarbyggðir ættu að
fara í eyði. Lækka þyrfti kostnað
við aðföng til landbúnaðar og
hagræða yrði á öllum stigum -
framleiðslu, vinnslu, dreiftngu og
sölu. Þá yrði að ganga fast eftir að
innflutningsreglur yrðu virtar
þegar innflutningur landbúnaðar-
afurða yrði aukinn og herða eftirlit
í því sambandi. Iialldór kvað
reglugerð með mjólkursamningn-
um vera næstum tilbúna og yrði
hún gefin út innan fárra daga.
HENTU EKKI BILUÐUM HLUT - SPURÐU OKKUR FYRST
Viö viljum leysa vanda þinn.
Velkominn sértu vinurinn.
RENNISMÍÐI - FRÆSIVINNA - SLÍPUN - VÉLAVIÐGERÐIR
• Endurbyggjum bensín og díselvélar.
• Slípum sveifarása, borum blokkir.
• Réitum af höfuölegusæti í blokkum.
• Lögum legusæti og kambása í heddum.
• Breytum og endumýjum drifsköft.
• Plönum hedd, blokkir o.fl.
• Rennum ventla og ventilsæti.
• Lögum legu-og slitfleti með
stál- kopar- keramikefnum o.fl.
• Margskonar nýsmíði.
ALLT ÞETTA OG MARGT MARGT FLEIRA
VÉLAVERKSTÆÐIÐ EGILL H.F.
SMIÐJUVEGI 9A 200 KÓPAVOGI. SÍMI: 91-44445.
Hann sagði að núverandi ríkis-
stjórn væri ekki verr við íslenskan
landbúnaö en öðrum ríkisstjórnum
heföi veriö, - hún hefði aðeins úr
minna að spila og þvf yröi að
miðla.
Þá ræddi landbúnaðarráðherra
málefni Baulu hf. og sagði að
tilkoma fyrirtækisins hefði aukið
eftirspurn eftir jógúrt. Grundvöllur
þess haft hinsvegar verið veikur og
íyrirtækið ekki fengið að njóta
jafnréttis gagnvart öðrum mjólkur-
iðnaöi. Því hefði verið sanngirnis-
mál að verða viö beiöni stjórnar
Mjólkursamlagsins á Húsavík aö
rekstur Baulu hf. yrði reiknaður
inn f uppgjör mjólkursamlagsins
með tilliti til verðmiðlunar.
Þá ræddi landbúnaðarráðherra
um fjárfestingar í mjólkuriönaöi og
sagði aö bygging Mjólkursamsöl-
unnar f Reykjavík hefði verið of-
fjárfesting sem nú kallaði á að
leggja yrði Mjólkursamlagið í
Borgarnesi niður og ef til vill
Flóabúið líka. Einnig hefði lölu-
verð offjárfesting átt sér stað f
sláturhúsum.
Landbúnaðarráðherra lauk
máli sínu með því að skýra frá að
því, að því miður heföi hann ekki
umboö til að geta lýst því yfir á
þessum fundi að staðiö yrði við
bókun sex í búvörusamningi (um
skógræktarstörf bænda). Þá sagði
Halldór að nú væri unniö að
breytingum á jarða- og ábúðar-
lögurn með tilliti til væntanlegra
milliríkjasamninga.
BÆNDABLAÐIÐ &
LANDSBYGGÐIN
Einar á Skörðugili:
RÚLLUTÆKNIN
FÆKKAR
ATVINNUTÆKIFÆRUM
í SVEITUM
"Rúllutæknin fækkar atvinnu-
tækifærum í sveitum," sagði
Einar E. Gíslason á Syðra
Skörðugili í Skagafirði meðai
annars í eldhúsdagsumræðum
á aðaifundi Stéttarsambands
bænda.
Einar kvaðst ekki hafa tekið
þessa heyverkunaraðferð í notkun
og af þeim sökum geta veitt þrem-
ur ungmennum atvinnu við hey-
skapinn í sumar sem annars hefðu
aö öllum líkindum ekki téngið neitt
að gera.
Einar sagði að rúllutæknin,
sem nú hefði rutt sér til rúms um
allar sveitir, hefði mikinn stofn-
kostnað í för með sér sem óvíst
væri hvort bændur næðu til baka
meö aukinni hagræðingu. Rúllu-
hey hentaði auk þess illa til
fóörunar hrossa og heföi heldur
enga kosti umfram hey sem vél-
bundið væri í litla bagga þegar
fóðrun sauðfjár og jafnvel naut-
gripa ætti f hlut. Hann kvaðst ekki
kom auga á þá allsherjar hagræð-
ingu sem f þessari heyverkunar-
aðferö ætti að felast og nú þegar
að kreppti með atvinnu í dreilbýl-
inu fækkaði hún atvinnutækifær-
um f sveitum.
ÞI
TANDUR sf.
Dugguvogi 1,104 Reykjavík Sími 91 - 688855
KÚAbÆNdllR!
Notkun efnanna frá TANDRI
auðveldar ykkur baráttuna gegn júgurbólgu
D - 90
Gerileyðandi hreinsir
fyrir mjaltakerfi.
Mjög virkur. Kemur í
veg fyrir útfellingar.
Aðeins 100 g. í hvern þvott.
1 fata = 200 þvottar.
SöllJSTAðÍR
Mjólkursamlag Borgfirðinga
Mjólkursamlagið í Búðardal
Mjólkursamlagið á Patreksfirði
Hafsteinn Vilhjálmsson, ísafirði
Vélsm. Húnvetninga, Blönduósi
Heildv. Röst, Sauðárkróki
Þvottahúsið Mjallhvít, Akureyri
Á. G. Guömundsson, Húsavík
Mjólkursamlagið KHB, Egilsstöðum
Mjólkurbú Flóamanna, Selfossi
JOnuYFA
JoðdýÍA
Sótthreinsar,
mýkir, græðir.
Joðdýfa eftir
mjaltir kemur
í veg fyrir
júgurbólgusmitun.
JÚqURllREÍNSÍR
Sótthreinsandi. Inniheldur
Chlorhexidine glúkonat
ásamt mýkjandi
yfirborðsvirkum efnum.
JucíukkkkM
JÚqURkREM
MEÖ SÓlvÖRN
Joðófor - júgurkrem.
Endist daglangt.
Græðir og fyrirbyggir
þurrkmyndun.