Börn og bækur - 01.04.1987, Page 8
Guðmundur Thorsteinsson "Muggur" var fæddur
árið 1891. Hann dó rúmlega þrítugur árið
1924 og var jarðsettur í kirkjugarðinum við
Suðurgötu í Reykjavík. Muggur var skáld,
söngvari og málari, listamaður af guðs náð.
Ef hann hefði náð hærri aldri er mjög erfitt
að spá um hvaða stefnu list hans hefði tekið,
því snilligáfa hans var ótvíræð.
Muggur samdi og skreytti eina barnabók:
Sagan af Dimmalimm / Guðmundur Thorsteinsson.
- Rv. : Helgafell, 1921. - 23 s. : myndir.
Bókin er 23 síður, ævintýri, prýdd 7 vatns-
litamyndum eftir höfund.
Texti bókarinnar er nú gefinn út á dönsku,
ensku, þýsku og frönsku auk íslensku útgáf-
unnar. Bókin hefur oft verið endurprentuð
og er titill hennar á ensku: The story of
Dimmalimm : a fairy tale with illustrations.
-6-