Börn og bækur - 01.04.1987, Side 29

Börn og bækur - 01.04.1987, Side 29
NÍNA TRYGGVADÓTTIR Nína Tryggvadóttir fæddist 16. marz 1913 á Seyðisfirði. Hún stundaði nám við Kvenna- skólann í Reykjavík árin 1927-1930. Á árunum 1933-19A6 nam hún myndlist m.a. í Myndlistar- skóla Finns Jónssonar og Jóhanns Briem, við Konunglegu listaakademíuna í Kaupmannahöfn og í París og New York. Nína lést í New York 18.6. 1968. Bækur sem Nína samdi og myndskreytti: Sagan af svörtu gimbur / Nína Tryggvadóttir. - Rv. : Gimbrarútgáfan, 1946. Kötturinn sem hvarf / Nína Tryggvadóttir. - Rv. : Heimskringla, 1947. Fljúgandi fiskisaga / Nína Tryggvadóttir. - Rv. : DAS, 1948. Stafirnir og klukkan / Nína Tryggvadóttir. - Rv. : Bækur og ritföng, 1949. Skjóni / Nína Tryggvadóttir. - Rv. : Helgafell, 1967. Myndirnar í bókum Nínu eru með ólíku móti. í bókinni Sagan af svörtu gimbur eru þær mjög skýrar og allir fletir vel afmarkaðir. I bókunum Kötturinn sem hvarf, Fljúgandi fiski- saga og Stafirnir og klukkan eru |3ær líkastar klippimyndum, grófar og skýrar. í síðustu bókinni, Skjóna, eru útlínur og fletir óljósari en hreyfingum og svip dýranna náð með örfáum breiðum strikum. Nína myndskreytti einnig ljóð Steins Steinars, Tindátana (1943) og ævintýrið Kerling vill hafa nokkuð fyrir snúð sinn (1946). -27-

x

Börn og bækur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og bækur
https://timarit.is/publication/921

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.